Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Varnar­málaráðherra Bret­lands segir af sér

  • What: UK defense minister resigns over budget disputes
  • Impact: Political fallout in UK defense sector
Read Full Article →

John Heal­ey, varnar­málaráðherra Bret­lands, hefur sagt af sér vegna ágreinings við Keir Star­mer for­sætis­ráðherra um fjár­mögnun breska hersins. Sam­kvæmt The Telegraph telur Heal­ey að fyrir­huguð áætlun ríkis­stjórnarinnar um fjár­festingu í varnar­málum gangi allt of skammt. Star­mer er sagður ætla að kynna áætlunina á næstu dögum, en hún hafi verið út­vötnuð eftir deilur milli for­sætis­ráðu­neytisins, varnar­málaráðu­neytisins og fjár­málaráðu­neytisins. Í af­sagnar­bréfi sínu segir Heal­ey að áætlunin gangi langt frá því að vera nógu langt til að mæta þörfum breskra varnar­mála og þeim öryggisáskorunum sem landið standi frammi fyrir. Hann segir að án nægi­lega öflugrar áætlunar neyðist hann til að taka ákvarðanir sem dragi úr viðbúnaði breska hersins, auki áhættu fyrir her­menn í að­gerðum og geti veikt öryggi landsins. Af­sögnin er mikið áfall fyrir Star­mer, sem hafði fyrr á árinu sagt að Bret­land yrði að mæta breyttu öryggis­um­hverfi með auknum krafti í varnar­málum. Í ræðu á öryggis­ráð­stefnunni í München í febrúar sagði for­sætis­ráðherrann að Bretar yrðu að verja meira fé til varnar­mála, gera meira og sam­hæfa að­gerðir betur. Sam­kvæmt The Telegraph hefur til­laga Star­mer hins vegar ekki staðið undir þeirri orðræðu. Heal­ey segir í bréfi sínu að for­sætis­ráðherrann viti hvað varnar­málin þurfi, enda hafi hann sjálfur fært sterk rök fyrir því í München. Ágreiningurinn snýst um hversu langt ríkis­stjórnin eigi að ganga í auknum varnarút­gjöldum á sama tíma og öryggis­um­hverfið í Evrópu og víðar hefur versnað. The Telegraph segir að Star­mer hafi boðið Heal­ey að auka varnarút­gjöld um aðeins 0,08% af lands­fram­leiðslu á árunum 2027 til 2030. Heal­ey telur það langt frá því að duga til að styrkja herinn með þeim hætti sem nauð­syn­legt sé.

Share this article