Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Spá því að verðbólga aukist í sumar

Read Full Article →

Hagfræðideild Landsbankans spáir því að verðbólga muni standa í stað milli mánaða og mælast 5,1% í júní. Jafnframt gerir bankinn ráð fyrir að verðbólga verði 5,3%, 5,5% í ágúst og 5,4% í september. „Spáin er aðeins hærri en síðasta spá sem við birtum í kjölfar þess að Hagstofan birti verðbólgutölur í maí. Munurinn skýrist nær eingöngu af því að verðkönnun okkar á bensíni var hærri en við gerðum ráð fyrir í síðustu spá, auk þess sem við gerum nú ráð fyrir að olíuverð haldist hærra lengur,“ segir í nýrri hagsjá bankans. Hagfræðideild bankans segir eldsneytisverð og flugfargjöld hafa áfram mest áhrif á verðbólguþróun næstu mánuði, samkvæmt spánni. Bent er á að lækkun á virðisaukaskatti á eldsneyti í maí olli því að verðbólga hjaðnaði úr 5,2% í 5,1%, en án lækkunar á virðisaukaskatti hefði verðbólga aukist og mælst 5,5%. Úrræðið verður í gildi út ágústmánuð en í september hækkar eldsneytisverð aftur, að öðru óbreyttu. Gert er ráð fyrir því að vísitala neysluverðs hækki um 0,81% á milli mánaða í júní. „Ferðaþjónustutengdir liðir hækka alla jafna í júní og mun verð á flugfargjöldum til útlanda hafa mest áhrif til hækkunar, gangi spáin eftir. Við gerum einnig ráð fyrir hækkun á hótelum og veitingastöðum í júnímælingunni.“

Share this article