Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Fjársjóðsleit við Íslandsstrendur

  • What: Archaeological investigation of a shipwreck near Langanes in Iceland.
  • Impact: The wreck, believed to be over 300 years old, may contain valuable historical artifacts.
Read Full Article →

Innlent | Morgunblaðið | 11.6.2026 | 9:55 | Uppfært 11:35 Fjársjóðsleit við Íslandsstrendur Steinunn Kristjánsdóttir og Ragnar Edvardsson. Samsett mynd Elínborg Una Einarsdóttir [email protected] Setja bókamerki Fyrir rúmlega þrjú hundruð árum fórst flutningaskipið Höfðaskip í ofsaveðri úti fyrir Langanesi á norðausturhorni landsins en í rituðum heimildum kemur fram að aldrei hafi dýrmætari farmur sokkið við Íslandsstrendur. Um borð voru allir skipverjar, þar á meðal Hannes Þorleifsson, forveri Árna Magnússonar handritasafnara, sennilega allt handritasafn hans og ýmsir aðrir dýrmætir gripir. Aldrei hefur verið gerð tilraun til að finna flak skipsins og farm þess, en fljótlega verður breyting þar á. Í sumar hefst leit að Höfðaskipi úti fyrir Langanesi en fornleifafræðingurinn Steinunn Kristjánsdóttir, sem fer fyrir verkefninu í samstarfi við neðansjávarfornleifafræðinginn Ragnar Edvardsson, segir að í raun sé um að ræða sannkallaða fjársjóðsleit. Ákveðið var að ráðast í verkefnið undir lok árs 2024 en síðan þá hefur mest púður farið í að afmarka leitarsvæði þar sem skipið kann að leynast. Haustið 1682 lagði Höfðaskipið af stað frá Spákonufellshöfða við Skagaströnd og var á leið til Kaupmannahafnar þegar það fórst við Langanes. Flutningaskip á borð við Höfðaskip sigldu yfirleitt með fram ströndu og sukku því alla jafna skammt undan landi en neðansjávarmælingar hafa sýnt að flök þeirra liggja að meðaltali innan sex kílómetra frá strandlínunni. Frétt af mbl.is Aldrei verið reynt því hugmyndin þótti galin Renna blint í sjóinn Nú hafa fornleifafræðingarnir sem standa að leitinni afmarkað svæði, sem spannar nokkra tugi ferkílómetra, þar sem skipið kann að leynast. Byrjað verður að skanna sjávarbotn svæðisins í sumar í von um að finna flakið. „Það er stór áfangi að vera komin með þessi kort og það er ofboðsleg vinna á bak við þau. Þau þurfa að vera mjög nákvæm því við getum ekki bara ætt af stað og byrjað að mæla,“ segir Steinunn. Þrátt fyrir það er alls ekki víst að flakið leynist á svæðinu sem þegar hefur verið afmarkað. „Við erum að renna svolítið blint í sjóinn með þetta, í orðsins fyllstu merkingu, þó að við séum bara frekar bjartsýn,“ segir hún. Fyrsti liður verkefnisins er einfaldlega að staðsetja skipið en Steinunn segir að það myndu vera mikil tíðindi ef það tekst. Í kjölfarið yrði svo ráðist í frekari rannsóknir á flakinu og farminum. „Þetta er fjársjóðsleit, ég viðurkenni það alveg, þótt það hljómi ekki mjög vísindalega. Við erum náttúrulega að reyna að sjá hvað var þarna um borð.“ Kort/mbl.is Aldrei hafi sokkið skip með jafn miklum verðmætum En hvað er talið að hafi verið um borð í skipinu? „Það er ekki vitað nema að í samtímaheimildum segir að aldrei hafi sokkið skip með jafn miklum verðmætum um borð á Íslandi eins og þarna,“ segir Steinunn. Þá er vitað að Hannes Þorleifsson handritasafnari hafi verið um borð og að öllum líkindum allt handritasafn hans. „Það er vitað að það voru mjög merkileg handrit um borð og þar á meðal afrit af Sturlungu sem vitað var að var til á Þingeyrum,“ segir Steinunn. Hún bætir við að yfirleitt hafi handrit og dýrgripir verið flutt í kistum og því sé möguleiki á að þeir hafi varðveist á hafsbotni. Það fari þó algjörlega eftir skilyrðum. „Skinnhandrit ættu til dæmis alveg að geta varðveist. Það er bara álíka hvort það er í landi eða ekki hvernig varðveislan er og hún er kannski ekki síðri á sjávarbotni því að þá er minna verið að hreyfa við þessu.“ Þá furðar Steinunn sig á því að fleiri neðansjávarfornleifarannsóknir hafi ekki verið framkvæmdar við Íslandsstrendur. Tækniframþróun síðustu ára hefur gert slíkar rannsóknir mun aðgengilegri og eru þær að verða tíðari í nágrannalöndunum. Að lokum segir Steinunn að hún geri ráð fyrir að ein helsta áskorunin þegar kemur að því að staðsetja skipið verði hve mörg flök leynast á hafsbotni. „Það er náttúrulega vandamálið sem við erum að glíma við, hvað það eru mörg flök alls staðar við landið og frá öllum tímum og það verður kannski mesta áskorunin að reyna að vinsa úr því. En það verður spennandi að sjá hvort það tekst og við erum bara bjartsýn,“ segir hún. „Það er nokkurn veginn vitað hvernig skip þetta var. Höfðaskipin er nafn á skipum sem sigldu reglulega á milli Íslands og Danmerkur. Þau breyttust náttúrulega með tímanum og það er vitað um fleiri höfðaskip sem sukku seinna. En þetta er örugglega svona skúta eða bryggja með möstrum.“ Lítið vitað Ragnar Edvardsson, neðansjávarfornleifafræðingur hjá Rannsóknasetri Háskóla Íslands á Vestfjörðum, hefur leitt vinnuna við að afmarka leitarsvæðið. Spurður hvernig farið var að því segir hann: „Staðreyndin er náttúrulega sú að við vitum nákvæmlega ekkert hvar í Eystri-firðinum skipið liggur. Venjulega undir þeim kringumstæðum, þar sem þú ert með stór svæði, þá byrjarðu bara að skipta því upp í leitarsvæði og svo bara ferðu skipulega yfir svæðin. Og ef ekkert kemur í ljós á þeim svæðum sem við erum búin að afmarka núna þá þurfum við bara að fara að stækka leitarsvæðið og leita annars staðar. Það eina sem við höfum úr riti er úr annálum og þar segir bara að skipið hafi farist við Langanes og svo rak brak á land á Langanesi. Það er það eina sem við höfum þannig að við byrjum náttúrulega við Langanes.“ Leitarsvæðinu hefur verið skipt upp í þrjú minni svæði, svæði A, B og C, en byrjað verður að leita á svæði A í sumar. Ragnar segir að það sé vegna þess að Landhelgisgæslan muni veita rannsókninni lið í nokkra daga í sumar og verður sá tími nýttur til að rannsaka mesta dýpið sem er á svæði A. „Gæslan sjálf er með það sem heitir multibeam-sónar, fjölgeislamæli, á botninum á mæliskipinu þeirra. Hann sendir frá sér yfir 500 hljóðbylgjur sem skella á hafsbotninum og því sem er á hafsbotninum og sendir svo geislann til baka,“ segir hann og bætir við að þannig verði til eins konar mynd af yfirborði hafsbotnsins. „Síðan í áframhaldandi mælingum erum við með svokallaðan sidescan-sónar sem er tvígeislamælir. Hann vinnur eins en hann er bara með tvo geisla og gefur aðeins öðruvísi myndir sem er oft auðveldara að túlka.“ Ef rannsóknum verður svo haldið áfram eftir sumarið verður fjarstýrður kafbátur sem Rannsóknasetur Háskóla Íslands fær afhentan á næstu mánuðum sennilega nýttur í verkið. Getur tekið mörg ár Er einhver leið að segja hve mikið af afmarkaða svæðinu sem þið hafið kortlegt verður rannsakað í sumar? „Það er alveg vonlaust að segja. Það fer algjörlega eftir veðri. Það getur brugðið til beggja vona. Við náum örugglega að minnsta kosti með Landhelgisgæslunni djúpu svæðunum, sem sagt ystu reitunum. En svo er bara spurning hvernig veðrið verður, hversu vel við náum að halda áfram að mæla upp það sem er nær landi. Þannig að það er vonlaust að segja en það má alveg benda á að þegar er verið að leita að svona skipi sem ekki er vitað nákvæmlega hvar fórst og ekki vitað heldur í hvaða ástandi það er getur það tekið mörg ár. Nema við séum heppin, það er alltaf möguleiki líka.“ Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Skoða áskriftarleiðir Innskráning Gleymt lykilorð? Kennitala: Lykilorð: Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ég er nú þegar áskrifandi Ég er ekki með notendaaðgang Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér 1 blogg um fréttina Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Bloggað um fréttina Torfi Kristján Stefánsson: Peningaplott Nýjast á mbl.is » Subway auglýsir verð í evrum Samfélag sem gaman er að tilheyra Bjóða í leikmann Tottenham Trial in the Edition Hotel case begins today David Hockney er látinn Umræðan Höggvið á orkuhnúta, einn af öðrum Lausnin er ekki meiri skattar Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Endurtökum vonandi ekki sömu mistökin Óttast er að hundruð missi vinnuna Veðurfyrirbærið El Niño er hafið Kristrún: „Auðvitað mótmælum við óeðlilegum afskiptum“ Mest lesið Í gær Í vikunni Réðst á dreng í sundi Málið dagaði uppi hjá starfsmanni Hagræðingarhópur kynntur Verðmætin gætu hafa varðveist á hafsbotni Hitinn gæti náð 20 stigum Álverðið hefur rokið upp Spá 16-22 milljarða halla árið 2027 Farþegar skildir eftir vegna ölvunar Grindvíkingar boða til mótmæla fyrir utan Alþingishúsið Óttast er að hundruð missi vinnuna Flugstjórar með tæpar þrjár milljónir Réðst á dreng í sundi Óttast er að hundruð missi vinnuna Íslenskur maður ekki fundið sársauka í 73 ár Lokuðu skrifstofum Hagkaupa eftir alvarlega hótun Dæmið gengur ekki upp Farþegar skildir eftir vegna ölvunar Nýjar íbúðir seljast ekki á ásettu verði Borgarstjóri fagnar stórafmæli í Ráðhúsinu Dró sér 3,3 milljónir vegna leigu á Tenerife Bubbi sleit liðband Stefnir í hlýjasta dag sumarsins Flugstjórar með tæpar þrjár milljónir Ástæða til að hafa áhyggjur Myndir: Sjötugur Bubbi sló í gegn Réðst á dreng í sundi Pottinum fargað: „Okkur finnst þetta sóun“ Um 300 þegar fengið viðvörun Tilbúnir að slást í sundklefunum Ósátt við að föður sínum sé blandað í umræðuna Nýjast á mbl.is » Subway auglýsir verð í evrum Samfélag sem gaman er að tilheyra Bjóða í leikmann Tottenham Trial in the Edition Hotel case begins today David Hockney er látinn Umræðan Höggvið á orkuhnúta, einn af öðrum Lausnin er ekki meiri skattar Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Fjársjóðsleit við Íslandsstrendur Fleiri leikir á RÚV 2 en áður Óttast er að hundruð missi vinnuna Íslenskur maður ekki fundið sársauka í 73 ár Mest lesið Í gær Í vikunni Réðst á dreng í sundi Málið dagaði uppi hjá starfsmanni Hagræðingarhópur kynntur Verðmætin gætu hafa varðveist á hafsbotni Hitinn gæti náð 20 stigum Álverðið hefur rokið upp

Share this article