Security News

Cybersecurity news aggregator

HIGH Attacks RÚV

Trump segir Írana eiga eftir að gjalda fyrir gjörðir sínar

The provided article describes geopolitical military conflict and political statements, not a technical software vulnerability or cyber threat. Therefore, no technical details such as attack vectors, CVSS scores, affected software versions, patches, or workarounds are present to summarize for IT security professionals.
Read Full Article →

SAMANTEKT Stríð í Mið-Austurlöndum „Þeir halda áfram að láta sem við séum fífl“ Átökin milli Íran og Bandaríkjanna stigmögnuðust í nótt. Þau hafa ekki verið harðari frá 8. apríl þegar vopnahlé komst á. Íransher gerði eldflaugaárásir á bandarískar herstöðvar í Barein, Jórdaníu og Kúveit, þriggja ríkja við Persaflóa í nótt. Bandaríkjaher segist hafa gert nákvæmar árásir á loftvarnarkerfi Írana, stjórnstöðvar á jörðu og ratsjárstöðvar við Hormússund. Árásirnar hafi verið gerðar í hefndarskyni eftir að Íranar grönduðu bandarískri þyrlu á mánudag. Fjöldi ríkja hefur fordæmt og gagnrýnt árásir beggja vegna og varað við afleiðingum áframhaldandi átaka. Óvissa ríkir um hvort varanlegt vopnahlé sé í augsýn, þrátt fyrir staðhæfingar Bandaríkjaforseta þess efnis. Ísraelsher hóf í morgun árásir í suðurhluta Líbanon eftir að hafa fyrirskipað íbúum að flýja heimili sín tafarlaust. Forsetar Bandaríkjanna og Íran hafa tjáð sig um árásir næturinnar og áhrif þeirra á friðarumleitanir milli ríkjanna tveggja. Mist Þormóðsdóttir Grönvold 10. júní 2026 kl. 08:37, uppfært kl. 18:16 A A A Átökin í Mið-Austurlöndum stigmögnuðust í nótt. AP – Julia Demaree Nikhinson 10. júní 2026 kl. 18:15 Trump heitir hörðum árásum ef Íranir semja ekki Átök milli Írans og Bandaríkjanna hafa harðnað til muna eftir stigmögnun í nótt. Hér er það helsta sem gerðist í dag. Íranir gerðu árásir á bandarískar herstöðvar í Miðausturlöndum og Bandaríkjamenn gerðu þungar árásir á Íran. Bandaríkin ætla að gera harðar árásir á Íran ef samningur næst ekki milli ríkjanna, sagði Donald Trump Bandaríkjaforseti við blaðamenn í Hvíta húsinu í dag. Hann sagði samning vera í nánd en sakaði Írani um blekkingar. Þetta hefur teflt friðarumleitunum í tvísýnu og pattstaða er í samningaviðræðum. Samningamenn frá Katar fóru til Tehran í morgun til að freista þess að lægja öldurnar. Framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna varaði við hættu á allsherjarstríði í Miðausturlöndum. Við ljúkum þessari fréttavakt hér og þökkum samfylgdina. 10. júní 2026 kl. 16:28 Trump segir Bandaríkin vilja „þýðingarmikið“ samkomulag Donald Trump Bandaríkjaforseti segir Bandaríkin vilja „þýðingarmikið“ samkomulag við Íran. Á blaðamannafundi í Hvíta húsinu í dag sagði forsetinn stjórn sína ætla að ráðast á Írana af miklum krafti. Á sama tíma hvatti hann íranska leiðtoga til að undirrita samkomulag um að binda enda á átökin. „Þeir ættu að undirrita samkomulagið, þetta er góður samningur,“ sagði Trump við fjölmiðla í dag. Hann bætti því við að tillagan sem fyrir lægi bannaði Íran að eiga kjarnorkuvopn. „Við sjáum hvað gerist. Við fórum í harðar árásir í gær og ætlum okkur hið sama í dag. Og við sjáum hvað gerist með samkomulagið. Við vorum mjög nálægt því að ná samkomulagi en þeir halda áfram að ýta við okkur. Þeir halda áfram að láta sem við séum fífl,“ sagði forsetinn. AP / Julia Demaree Nikhinson 10. júní 2026 kl. 15:03 Erdogan segir Tyrklandi stafa ógn af aðgerðum Ísraels Recep Tayyip Erdogan Tyrklandsforseti segir aðgerðir Ísraels í Sýrlandi og Líbanon hafa umtalsverð áhrif á önnur lönd, þar á meðal Tyrkland. Erdogan hefur gagnrýnt framferði ísraelskra yfirvalda harðlega að undanförnu, bæði í átökunum í Mið-Austurlöndum og í átökunum fyrir botni Miðjarðarhafs. Þar að auki hefur hann slitið öllum viðskiptasamböndum milli ríkjanna og hvatt alþjóðasamfélagið til þess að gera slíkt hið sama. Í samtali við tyrkneska ríkisfjölmiðilinn Anadolu segir forsetinn öryggi Tyrklands langt frá því að vera að fullu tryggt innan landamæra þess. Hann segir Tyrki ekki geta horft framhjá árásum sem beinist að löndum bræðra sinna. Þá sagði Erdogan Ísraela halda fast í „blekkinguna um fyrirheitna landið“ og að Tyrkir væru fullkomlega meðvitaðir um það hvert sitt lokatakmark væri. Hann varaði við því að ef „bófar Ísraels yrðu ekki stöðvaðir fengi allur heimurinn að finna fyrir afleiðingunum.“ AP / Khalil Hamra Benjamin Netanjahú, forsætisráðherra Ísraels, hefur svarað ummælum Erdogan. Í svari sínu sagði Netanjahú Tyrklandsforseta vera einræðisherra, uppfullan gyðingahaturs. Hann sagði hann jafnframt vera „síðasta manninn sem prédikað gæti siðferði fyrir Ísraelsríki.“ Netanjahú hét því að Ísrael héldi áfram að beita sér gegn Íran og áhangendum þess með valdi. EPA / ILIA YEFIMOVICH / POOL 10. júní 2026 kl. 14:18 Friðarviðræður enn í pattstöðu Friðarviðræður milli Bandaríkjanna og Ísraels eru enn í pattstöðu og erfiðlega gengur að ná málamiðlunum um lykilatriði samninga. Þá standa upptök árása á síðustu sólarhringum í vegi fyrir frekari framgangi viðræðna. Í dag fór sendinefnd frá Katar til Teheran, höfuðborgar Írans, að hitta íranska fulltrúa írönsku samninganefndarinnar, í viðleitni til þess að brúa bilið í samningaviðræðum milli ríkjanna. Í umfjöllun CNN er haft eftir heimildamanni að heimsóknin gefi til kynna að friðarviðræður séu enn á borðinu þrátt fyrir árásir ríkjanna í nótt. Fyrr í dag sagði Donald Trump Bandaríkjaforseti í færslu á samfélagsmiðlinum X að Íranar ættu eftir að gjalda fyrir það að eyða of löngum tíma í að semja við Bandaríkin. Fyrir fáeinum dögum, áður en árásir ríkjanna hófust að nýju, sagði forsetinn í samtali við fjölmiðla að samningar ættu að geta verið í höfn á næstu dögum. epaselect epa13011954 An Iranian woman walks past a residential building, destroyed by previous US-Israeli airstrikes, in Tehran, Iran, 02 June 2026. The Iranian Foreign Minister stated that the agreement between Iran and the US is 'a ceasefire on all fronts, including in Lebanon,' warning that its breach on one front constitutes a 'violation of the ceasefire on all fronts.' EPA/ABEDIN TAHERKENAREH RESTRICTIONS: NO Access Israel Media/Persian Language TV Stations Outside Iran/Strictly No Access BBC Persian/VOA Persian/Manoto TV/Iran International TV. (As mandated by Iran's Directorate General for Foreign Media) -- EPA / ABEDIN TAHERKENAREH 10. júní 2026 kl. 14:04 – uppfært 13 drepnir í árásum Ísraelshers í Líbanon Þrettán hafa látið lífið og fimmtán særst í árásum ísraelska hersins í grennd við Týros í suðurhluta Líbanon í dag. Samkvæmt líbönskum fjölmiðlum létust níu manns og sjö særðust í bænum Tirdaba en í bænum Deir Qanoun létust þrír og þrír særðust. Þá lést að minnsta kosti einn og fimm særðust í Týros, þar sem björgunarsveitir vinna að því að hreinsa til í rústunum. EPA / ATEF SAFADI 10. júní 2026 kl. 13:38 Sameinuðu þjóðirnar rannsaka brot á alþjóðalögum í Líbanon Mannréttindaskrifstofa Sameinuðu þjóðanna ætlar að senda teymi rannsakenda til Líbanons í næstu viku til þess að meta hvort þar hafi verið framin brot á alþjóðalögum á undanförnum mánuðum. Þetta segir Volker Türk, yfirmaður mannréttindaráðs Sameinuðu þjóðanna. Í byrjun mars réðust Hezbollah-samtökin á Ísrael og sýndu þannig fram á samstöðu samtakanna með Íran, sem þá sat undir árásum Bandaríkjanna og Ísraelsmanna. Eftir árás Hezbollah svaraði Ísraelsher með umfangsmiklum loftárásum og innrásum í Líbanon. AP/Keystone / Martial Trezzini 10. júní 2026 kl. 12:24 – uppfært „Harðstjórinn í Mið-Austurlöndum er DAUÐUR!!!“ Donald Trump Bandaríkjaforseti segir Írana eiga eftir að gjalda fyrir það að hafa tekið of langan tíma í samningaviðræður um endalok stríðsins. „Íran talar bara og gerir ekkert,“ segir forsetinn í færslu á samfélagsmiðlinum X. „Harðsstjórinn í Mið-Austurlöndum er DAUÐUR!!! Þeir hafa tekið of langan tíma í að semja um samning sem hefði verið frábær fyrir það, nú verða þeir að greiða verðið!!!.“ Í færslunni tilgreinir Trump ekki hvernig Íranar komi til með að gjalda fyrir árásir sínar á bandarískar herstöðvar í Barein, Jórdaníu og Kúveit. Hann hefur ítrekað sagt að Bandaríkin séu nálægt því að landa samkomulagi við Íran um lok stríðsins en litlar blikur eru á lofti um að framfarir hafi náðst að undanförnu. AP / Mark Schiefelbein 10. júní 2026 kl. 12:13 – uppfært Forseti Írans segir brýnt að friðarumleitanir haldi áfram Masoud Pezeshkian, forseti Írans, segir brýnt að friðarumleitanir haldi áfram. Í samtali við íranska fjölmiðla í dag segir forsetinn fyrrverandi æðsta leiðtoga íslamska ríkisins Ali Khamenei hafa ítrekað lagt áherslu á mikilvægi þess að reyna að semja til þess að komast hjá því að festast í ástandi sem fæli hvorki í sér stríð né frið. „Ef við viljum komast yfir þetta ástand þar sem hvorki stríð né friður er, hvað ættum við þá að gera? Ef við tökum ekki þátt í viðræðum, hvaða kosti eigum við þá?“ segir Pezeshkian. „Það var á þessum forsendum sem Khamenei féllst á það að viðræðurnar héldu áfram og á lokastigum voru fyrirmæli hans að við ættum að fara og leysa málin.“ EPA / YAHYA ARHAB 10. júní 2026 kl. 11:33 Nágrannaríki fordæma árásir Írana á „systurlönd“ sín harðlega Fjöldi ríkja hefur gagnrýnt hefndarárásir Írana á þrjú ríki í Persaflóa í nótt. Árásirnar beindust að bandarískum hernaðarskotmörkum í Kúveit, Jórdaníu og Barein. Í yfirlýsingu frá utanríkisráðuneyti Egyptalands segir að stjórnvöld þar í landi fordæmi árásirnar harðlega. Með þeim hafi verið brotið á fullveldi og landhelgi „systurlanda“ Egyptalands. Ráðuneytið segir árásirnar afar hættulegar og að þær ógni bæði öryggi og stöðugleika svæðisins í heild sinni. Utanríkisráðuneyti Sameinuðu arabísku furstadæmanna hefur kallað árásirnar „hryðjuverkaárásir“ og lýst yfir fullum stuðningi sínum við löndin þrjú sem fyrir þeim urðu. Utanríkisráðuneyti Katar segir árásirnar gróft brot á reglum alþjóðalaga. Í yfirlýsingu ráðuneytisins draga stjórnvöld í Katar einnig fram mikilvægi þess að hlífa svæðinu við „afleiðingum óréttmætra árása“ og því að vinna markvisst að því að endurheimta öryggi á alþjóðavettvangi. 10. júní 2026 kl. 11:04 – uppfært Herinn í Bahrein hvetur almenning til að gæta varúðar Herstjórnin í Barein hefur virkjað hæsta viðbúnaðarstig landsins vegna árása íranska hersins í nótt. Yfirvöld segja markvissar árásir á óbreytta borgara og einkaeignir vera gróft brot á alþjóðlegum mannúðarlögum. Í samtali við fjölmiðla segja yfirvöld í Barein loftvarnir hersins hafa stöðvað og eytt fjölda hættulegra loftárása Írans í viðleitni til þess að vernda konungsríkið. Þar segir jafnframt að

Share this article