Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Andlát: Þorsteinn Ólafsson

Read Full Article →

Innlent | mbl | 10.6.2026 | 11:16 | Uppfært 15:09 Andlát: Þorsteinn Ólafsson Þorsteinn Ólafsson, fv. landsliðsmarkvörður í knattspyrnu, er látinn, 75 ára að aldri. Setja bókamerki Þorsteinn Ólafsson, efnafræðingur og fv. landsliðsmarkvörður í knattspyrnu, lést þann 5. júní, 75 ára gamall. Þorsteinn fæddist í Keflavík 15. mars 1951. Foreldrar hans voru Ólafur A. Þorsteinsson, framkvæmdastjóri, og Hallbera Pálsdóttir húsmóðir. Þorsteinn lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum í Reykjavík 1972 og síðar prófi í efnafræði frá Lundarháskóla í Svíþjóð árið 1977. Hann starfaði sem efnafræðingur hjá lyfjafyrirtækinu AB Hässle í Gautaborg og eftir heimkomu frá Svíþjóð hóf hann störf hjá Efnaverksmiðjunni Sjöfn á Akureyri. Þegar yngsta dóttir Þorsteins greindist með hvítblæði 1988 söðlaði Þorsteinn um og kom að stofnun Styrktarfélags krabbameinssjúkra barna (SKB) ásamt öðrum foreldrum barna með krabbamein. Hann varð fyrsti formaður og framkvæmdastjóri félagsins. Starfsferlinum lauk Þorsteinn hjá Olís en þar starfaði hann til fjölda ára. Þá var Þorsteinn meðlimur Oddfellowreglunnar um árabil og allt til æviloka. Þorsteinn hóf ungur að stunda knattspyrnu og hóf hann feril sinn sem markvörður hjá ÍBK / Keflavík og í framhaldinu hjá Perstorps SK. Atvinnumannaferill Þorsteins hófst árið 1980 með samningi við IFK Göteborg og endaði sviplega með slæmu fótbroti í æfingaleik fyrir keppnistímabilið 1981. Þorsteinn átti stutt tímabil með IFK Trollhättan áður en hann gerði samning við Þór á Akureyri og var þá alkominn heim. Í lok ferilsins snéri Þorsteinn sér að þjálfun, var spilandi þjálfari með Þór Akureyri, þjálfari ÍF Magna, Keflavíkur, Hauka og Víðis í Garði. Hann lauk ferlinum 1992 sem spilandi þjálfari með Víði. Þorsteinn varð Íslandsmeistari með gullaldarliði ÍBK árin 1969, 1971 og 1973 og síðar bikarmeistari árið 1975. Á ferlinum spilaði Þorsteinn á móti stærstu félögum í Evrópu, eins og Real Madrid, Arsenal, Everton svo eitthvað sé nefnt. Aukinheldur átti Þorsteinn að baki 16 landsleiki á árunum 1971-1980. Eftirlifandi eiginkona Þorsteins er Guðný Eiríksdóttir, fædd 1953. Með fyrri eiginkonu, Katrínu S. Guðjónsdóttur, átti Þorsteinn dæturnar Sólveigu, Höllu, Stellu Maris og Söndru. Synir Guðnýjar og stjúpsynir Þorsteins eru Guðbjörn og Bjarki. Barnabörn Þorsteins eru 15 og barnabarnabörnin 7. Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » United fylgist með Englendingnum Unnið að lausn vegna ólyktar Börnin vilja flytja í hundahöllina Barnaverndarstarfsmaður alvarlega sár eftir árás Vara gegn hættu á vaxtahækkunum og kalla á aðhald Umræðan Tækifærin eru ekki síður hér Allt í plati Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Vísindamenn frá NASA rannsaka almyrkvann Fjársjóðsleit við Íslandsstrendur Sambandið verra eftir lokun 3G Flugstjórar með tæpar þrjár milljónir Mest lesið Í gær Í vikunni Flugstjórar með tæpar þrjár milljónir Dæmið gengur ekki upp Nýjar íbúðir seljast ekki á ásettu verði Tveir stungnir með hnífi Ótímabær og ranglega orðuð auglýsing Átti engra annarra kosta völ Sambandið verra eftir lokun 3G Einn vann 90 milljónir Fóru of geyst í innleiðingu laganna Endurtökum vonandi ekki sömu mistökin Stefnir í hlýjasta dag sumarsins Telur fjöldagjaldþrot yfirvofandi Pottinum fargað: „Okkur finnst þetta sóun“ Andlát: Tryggvi Gíslason Fékk þau svör að þetta væri ekki löglegt Einn vann 90 milljónir Hafna hugmyndum um undanþágur Einn banki bjargaði 258 milljónum í fyrra Þungt andrúmsloft á Vopnafirði Andlát: Þorsteinn Ólafsson Bubbi sleit liðband Stefnir í hlýjasta dag sumarsins Banaslys í umferðinni: Metinn óhæfur til aksturs Ósátt við að föður sínum sé blandað í umræðuna Unglingsstúlka fannst meðvitundarlaus í Firði Ástæða til að hafa áhyggjur Myndir: Sjötugur Bubbi sló í gegn SS hyggst hætta halal-slátrunum Þekkt nöfn í eigendahópi nýs kaffihúss Pottinum fargað: „Okkur finnst þetta sóun“ Nýjast á mbl.is » United fylgist með Englendingnum Unnið að lausn vegna ólyktar Börnin vilja flytja í hundahöllina Barnaverndarstarfsmaður alvarlega sár eftir árás Vara gegn hættu á vaxtahækkunum og kalla á aðhald Umræðan Tækifærin eru ekki síður hér Allt í plati Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert „Ekkert sem bannar þetta“ Sonurinn tók að koma heim með falleinkunnir Vísindamenn frá NASA rannsaka almyrkvann Virði fasteigna lækkar á milli ára Mest lesið Í gær Í vikunni Flugstjórar með tæpar þrjár milljónir Dæmið gengur ekki upp Nýjar íbúðir seljast ekki á ásettu verði Tveir stungnir með hnífi Ótímabær og ranglega orðuð auglýsing Átti engra annarra kosta völ Sambandið verra eftir lokun 3G Einn vann 90 milljónir Fóru of geyst í innleiðingu laganna Endurtökum vonandi ekki sömu mistökin Stefnir í hlýjasta dag sumarsins Telur fjöldagjaldþrot yfirvofandi Pottinum fargað: „Okkur finnst þetta sóun“ Andlát: Tryggvi Gíslason Fékk þau svör að þetta væri ekki löglegt Einn vann 90 milljónir Hafna hugmyndum um undanþágur Einn banki bjargaði 258 milljónum í fyrra Þungt andrúmsloft á Vopnafirði Andlát: Þorsteinn Ólafsson Bubbi sleit liðband Stefnir í hlýjasta dag sumarsins Banaslys í umferðinni: Metinn óhæfur til aksturs Ósátt við að föður sínum sé blandað í umræðuna Unglingsstúlka fannst meðvitundarlaus í Firði Ástæða til að hafa áhyggjur Myndir: Sjötugur Bubbi sló í gegn SS hyggst hætta halal-slátrunum Þekkt nöfn í eigendahópi nýs kaffihúss Pottinum fargað: „Okkur finnst þetta sóun“

Share this article