Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Andlát: Tryggvi Gíslason

Read Full Article →

Innlent | Morgunblaðið | 10.6.2026 | 6:00 Andlát: Tryggvi Gíslason Tryggvi Gíslason. Setja bókamerki Tryggvi Gíslason, fyrrverandi skólameistari Menntaskólans á Akureyri (MA), er látinn rétt tæplega 88 ára. Hann lést á líknardeild aldraðra í Landakoti á mánudagsmorgun. Tryggvi fæddist á Bjargi á Norðfirði hinn 11. júní 1938, hjónunum Fanny Kristínu Ingvarsdóttur, húsfreyju frá Ekru í Norðfirði, og Gísla Kristjánssyni, útvegsbónda frá Sandhúsi í Mjóafirði, og átti fimm systkini. Hann ólst upp á Norðfirði til sjö ára aldurs, en þá flutti fjölskyldan til Akureyrar. Hann varð stúdent frá MA 1958 og lauk meistaraprófi í íslensku frá Háskóla Íslands 1968 með málfræði og norræn fræði sem sérgreinar. Hann lagði stund á nám í málvísindum við Björgvinjarháskóla í Noregi 1968-70 þar sem hann kenndi einnig norrænu, en sögu, heimspeki, og málvísindi nam hann við Edinborgarháskóla í Skotlandi 1994-95. Tryggvi var skipaður skólameistari við MA árið 1972, aðeins 34 ára gamall, og þar starfaði hann um ríflega þriggja áratuga skeið, allt til ársins 2003. Skólinn tók skiljanlega miklum breytingum á þessum tíma; þá reis m.a. kennsluhúsið Hólar og ný heimavist, en jafnframt tileinkaði skólinn sér hina nýju upplýsingatækni. Áður en hann varð skólameistari sinnti Tryggvi ýmsum kennslustörfum sunnan heiða, en ótal félagsstörfum alla tíð. Hann var blaðamaður við Tímann og erindreki Framsóknarflokksins 1958-59, fréttamaður hjá Ríkisútvarpinu 1962-68 og fréttaritari þess í Noregi 1968-72. Hann var bæjarfulltrúi á Akureyri 1978-82 og deildarstjóri í skóla- og menningarmáladeild Norrænu ráðherranefndarinnar í Kaupmannahöfn 1986-90. Hann var formaður Háskólanefndar Akureyrar 1980-86, formaður stjórnar Hollvinasamtaka Rúv. 2002-03 og formaður stjórnar Menningarfélagsins Hrauns í Öxnadal frá 2003. Tryggvi kvæntist Margréti Eggertsdóttur kennara árið 1959 og varð þeim sex barna auðið. Þau eru Arnheiður kennari, Eggert rekstrarverkfræðingur, Fanny Kristín sagnfræðingur, Gísli lögfræðingur, Tryggvi viðskiptafræðingur og Sveinn rekstrarverkfræðingur. Barnabörnin urðu 18 og barnabarnabörnin sjö. Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » Gæti farið frá Fram Manchester City bauð yfir 17 milljarða Getur ekkert sagt um tímasetningu þingloka Vísindamenn frá NASA rannsaka almyrkvann Messi tjáir sig um samskiptin við Daníel Umræðan Þjóðin þarf meira en hálfa gjaldmiðlaskýrslu Evran og áhættan Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Stefnir í hlýjasta dag sumarsins Telur fjöldagjaldþrot yfirvofandi Borgin gerði ekkert í nær þrjú og hálft ár Mál Steinu hjúkrunarfræðings fer fyrir Hæstarétt Mest lesið Í gær Í vikunni Stefnir í hlýjasta dag sumarsins Pottinum fargað: „Okkur finnst þetta sóun“ Telur fjöldagjaldþrot yfirvofandi Andlát: Tryggvi Gíslason Fékk þau svör að þetta væri ekki löglegt Hafna hugmyndum um undanþágur Einn banki bjargaði 258 milljónum í fyrra Þungt andrúmsloft á Vopnafirði Andlát: Þorsteinn Ólafsson Spáir bongóblíðu í höfuðborginni á föstudaginn „Mér hefur bara aldrei liðið betur“ Ráðuneytið nýtur lítillar virðingar Myndir: Fjaran hefur breyst til frambúðar Safnað fyrir fjölskyldu Bergs Ottós Malbikað yfir Íslandsmet ESB-aðild hefði miklar afleiðingar Fórnarlamb netsvika þarf að borga brúsann Pottinum fargað: „Okkur finnst þetta sóun“ Boðið í heimsókn eftir þuklið Hætta rannsókn vegna þriggja barna eftir misskilning Bubbi sleit liðband Áslaug Arna hættir á Alþingi Banaslys í umferðinni: Metinn óhæfur til aksturs Stefnir í hlýjasta dag sumarsins Íslendings saknað á Taílandi Ósátt við að föður sínum sé blandað í umræðuna Unglingsstúlka fannst meðvitundarlaus í Firði Ástæða til að hafa áhyggjur Myndir: Sjötugur Bubbi sló í gegn SS hyggst hætta halal-slátrunum Nýjast á mbl.is » Gæti farið frá Fram Manchester City bauð yfir 17 milljarða Getur ekkert sagt um tímasetningu þingloka Vísindamenn frá NASA rannsaka almyrkvann Messi tjáir sig um samskiptin við Daníel Umræðan Þjóðin þarf meira en hálfa gjaldmiðlaskýrslu Evran og áhættan Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Mál Steinu hjúkrunarfræðings fer fyrir Hæstarétt Borgin gerði ekkert í nær þrjú og hálft ár Einn banki bjargaði 258 milljónum í fyrra Segist ekkert hafa vitað um glæpi Epsteins Mest lesið Í gær Í vikunni Stefnir í hlýjasta dag sumarsins Pottinum fargað: „Okkur finnst þetta sóun“ Telur fjöldagjaldþrot yfirvofandi Andlát: Tryggvi Gíslason Fékk þau svör að þetta væri ekki löglegt Hafna hugmyndum um undanþágur Einn banki bjargaði 258 milljónum í fyrra Þungt andrúmsloft á Vopnafirði Andlát: Þorsteinn Ólafsson Spáir bongóblíðu í höfuðborginni á föstudaginn „Mér hefur bara aldrei liðið betur“ Ráðuneytið nýtur lítillar virðingar Myndir: Fjaran hefur breyst til frambúðar Safnað fyrir fjölskyldu Bergs Ottós Malbikað yfir Íslandsmet ESB-aðild hefði miklar afleiðingar Fórnarlamb netsvika þarf að borga brúsann Pottinum fargað: „Okkur finnst þetta sóun“ Boðið í heimsókn eftir þuklið Hætta rannsókn vegna þriggja barna eftir misskilning Bubbi sleit liðband Áslaug Arna hættir á Alþingi Banaslys í umferðinni: Metinn óhæfur til aksturs Stefnir í hlýjasta dag sumarsins Íslendings saknað á Taílandi Ósátt við að föður sínum sé blandað í umræðuna Unglingsstúlka fannst meðvitundarlaus í Firði Ástæða til að hafa áhyggjur Myndir: Sjötugur Bubbi sló í gegn SS hyggst hætta halal-slátrunum

Share this article