Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

ESB: Dvínandi stuðningur hjá kjó­sendum stjórnar­flokkanna

Read Full Article →

Meirihluti landsmanna er andvígur aðild Íslands að Evrópusambandinu samkvæmt nýrri könnun, sem Gallup gerði fyrir Viðskiptablaðið. Þegar einvörðungu er litið á þá sem tóku afstöðu þá er niðurstaðan sú að 54% eru andvíg inngöngu í ESB og 46% hlynnt. Þetta er nákvæmlega sama niðurstaða og í samskonar könnun, sem Gallup gerði fyrir Viðskiptablaðið í byrjun apríl. Í könnun Gallup var spurt: Ert þú hlynnt(ur) eða andvíg(ur) því að Ísland gangi í Evrópusambandið (ESB)? Þegar þeir sem svara hvorki né eru teknir með í reikninginn þá er niðurstaðan sú að 39% segjast hlynnt inngöngu í ESB, 16% segjast hvorki hlynnt né andvíg og 46% segjast andvíg inngöngu í Evrópusambandið. Í könnuninni í byrjun apríl sögðust 40% hlynnt inngöngu, 13% svöruðu hvorki né og 47% sögðust andvíg. Það hefur því mjög lítil breyting orðið á afstöðu landsmanna til inngöngu í Evrópusambandið á síðustu tveimur mánuðum. Það kemur ekki á óvart að kjósendur Samfylkingarinnar og Viðreisnar séu hlynntastir inngöngu í Evrópusambandið. Alls eru 72% kjósenda beggja þessara flokka hlynntir inngöngu. Þetta er nokkuð lægra hlutfall en í byrjun apríl. Nánar er fjallað um málið í Viðskiptablaðinu . Áskrifendur geta lesið fréttina í heild hér .

Share this article