- What: IATA considers penalties for passengers who retrieve luggage during emergencies
- Impact: Aimed at improving safety and preventing disruptions during evacuations
Alþjóðasamtök flugfélaga (IATA) íhuga nú að sekta farþega sem grípa handfarangur sinn áður en þeir yfirgefa flugvélar í neyðartilvikum. Samtökin segja að grípa þurfi til harðari aðgerða gegn farþegum sem tefja rýmingu flugvéla með slíkum hætti. Á vef Telegraph segir að IATA hafi nýlega kynnt herferð undir heitinu Save a Life, Not a Bag en samtökin segja að sektir gætu komið til greina ef hegðun farþega breytist ekki. Aðgerðin kemur í kjölfar fjölgunar tilvika þar sem farþegar hafa tafið rýmingu með því að sækja töskur sínar. Samkvæmt rannsókn frá IATA kom í ljós að aðeins tveir þriðju farþega vissu að þeir áttu að skilja alla muni eftir í neyðartilvikum. Sjá einnig Flugdólgar gætu endað á sameiginlegum bannlista Tilraunir til að ná í töskur undan sætum eða úr farangurshólfum geta lokað fyrir gangvegi og neyðarútgang, hulið neyðarlýsingu eða valdið slysi á öðrum farþegum. Samtökin hafa bent á sláandi tilvik en eitt þeirra átti sér stað árið 2019 þegar farþegar Aeroflot reyndu að ná í handfarangur sinn á meðan flugvél rússneska flugfélagsins stóð í björtu báli í Moskvu. Alls létust 41 í því slysi. Árið 2023 héldu nánast allir farþegar sem sluppu úr brennandi flugvél Air China í Singapúr á farangri sínum, sem varð meðal annars til þess að fólk stíflaðist í gangvegi flugvélarinnar.