Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

43% atvinnulausra ekki í atvinnuleit

Read Full Article →

Vinnumarkaðurinn kann að hafa kólnað meira en hefðbundnar atvinnuleysistölur gefa til kynna, þar sem stór hópur atvinnulausra er ekki lengur í atvinnuleit. Þetta kemur fram í greiningu Kára S. Friðrikssonar, hagfræðings hjá Arion banka. Í greiningunni er bent á að hlutfall starfandi fólks á aldrinum 24 til 54 ára hafi lækkað úr 89,7% á fjórða ársfjórðungi 2024 í 86,5% á fyrsta ársfjórðungi þessa árs. Þar er miðað við fjögurra fjórðunga hlaupandi meðaltal til að jafna út ársfjórðungssveiflur. Á sama tíma lækkaði atvinnuþátttaka sama aldurshóps úr 92,1% í 90,7%. Atvinnuþátttaka og hlutfall vinnandi Samkvæmt útreikningi Arion banka bendir þróunin til þess að hátt hlutfall, eða í kringum 43% miðað við grófar forsendur, þeirra sem eru ekki lengur með vinnu teljist ekki avinnulausir, því þeir eru ekki í avinnuleit. Atvinnuleysi og hlutfall vinnulítilla Með öðrum orðum: fyrir hverja hundrað einstaklinga, hlutfallslega séð, sem hurfu úr hópi starfandi á þessu tímabili virðist um fjörutíu manna hópur hafa farið út af vinnumarkaði fremur en að mælast atvinnulaus. Þetta er það sem stundum er kallað falið atvinnuleysi. Þá versnar staða vinnumarkaðarins án þess að það komi að fullu fram í atvinnuleysistölum, vegna þess að fólk sem ekki er í vinnu telst ekki atvinnulaust nema það sé jafnframt virkt í atvinnuleit. Í greiningunni er tekið fram að atvinnuleysi væri nú meira ef atvinnuþátttakan hefði ekki minnkað. Það þýðir að hefðbundnar atvinnuleysistölur kunna að vanmeta hversu mikið hefur hægt á vinnumarkaðinum. Þróunin þarf þó að skoðast í samhengi. Atvinnuþátttaka var sögulega mikil árið 2024 og því getur hluti lækkunarinnar endurspeglað ákveðna leiðréttingu frá mjög háu stigi. Engu að síður er niðurstaðan sú að minnkandi atvinnuþátttaka geti skýlt hluta þeirrar kólnunar sem hefur orðið á vinnumarkaði síðustu misseri. Vinnumálastofnun birtir atvinnuleysistölur á föstudag, sem gefa frekari vísbendingu um stöðuna á vinnumarkaði.

Share this article