Innlent | mbl | 8.6.2026 | 19:20 Fleiri ölvunar- og fíkniefnaakstursbrot en síðustu ár Í skýrslunni má sjá að hjá lögreglu eru skráð 704 brot það sem af er ári þar sem ökumaður var grunaður um akstur undir áhrifum ávana- og fíkniefna, frá byrjun janúar til loka maímánaðar. mbl.is/Kristinn Magnússon Setja bókamerki Fjöldi brota þar sem ökumenn óku ölvaðir eða undir áhrifum ávana- og fíkniefna er meiri það sem af er ári miðað við síðustu þrjú ár þar á undan. Þetta sýna nýjar mánaðarlegar afbrotatölur frá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu. Frétt af mbl.is Glæpum fjölgar ekki á milli mánaða Yfir 150 fleiri brot skráð frá því í fyrra Í skýrslunni má sjá að hjá lögreglu eru skráð 704 brot það sem af er ári þar sem ökumaður var grunaður um akstur undir áhrifum ávana- og fíkniefna, frá byrjun janúar til loka maímánaðar. Á sama tímabili árið 2025 voru skráð 542 brot, 433 árið 2024 og 487 árið 2023. Þá má sjá að brotin hafa snarhækkað síðustu tvo mánuði ársins þar sem 187 brot voru skráð í apríl og 179 í maí. Í því samhengi má nefna að meðaltal skráðra brota síðustu sex mánuði er 136 og meðaltal síðustu 12 mánaða 122 brot. Fjöldi brota þar sem ökumaður var grunaður um akstur undir áhrifum ávana- og fíkniefna á höfuðborgarsvæðinu. Skjáskot/afbrotatölfræði lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Ölvunarakstur hækkar einnig Einnig má sjá hækkun á tilkynntum brotum um ölvunarakstur en frá upphafi janúar til loka maí á þessu ári hafa verið skráð 448 slík brot. Á sama tímabili í fyrra voru brotin 408, 303 árið 2024 og 430 árið 2023. Fjöldi tilkynntra brota um ölvunarakstur síðustu tvo mánuði var 97, en meðaltal þeirra brota síðustu sex mánuði er 92 brot og meðaltal síðastliðna 12 mánuði 91 brot. Flest brotanna voru skráð í janúar, 112 talsins, en fæst í febrúar, 61 brot. Fjöldi brota þar sem ökumaður var grunaður um ölvun við akstur á höfuðborgarsvæðinu. Skjáskot/afbrotatölfræði lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Mjög óvænt rekinn frá Arsenal Segist aldrei hafa komið til greina sem Bond Loka svæðinu umhverfis Madison Square Garden Patagonia í mál við Pattie Gonia Sómalski dómarinn fær ekki að dæma á HM Umræðan Rétturinn til að ráða eigin lífi Með brjóstvitið að leiðarljósi Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Mikilvægustu hagstjórnartækin Bubbi ávarpar þjóðina frá Noregi Árásir Ísraela og Írana héldu áfram í nótt Fái ekki að skipta um nafn Mest lesið Í gær Í vikunni Gjaldtaka aukin með innviðafélagi Bubbi ávarpar þjóðina frá Noregi Lögin sem Bubbi tók í Höllinni „Versta mögulega sviðsmynd“ Reykjavík orðið fyrir árásum vegna dyggðaskreytinga 100 milljóna tjón hjá Sorpu í Álfsnesi Mega ekki fella niður gönguleið í Álfabakka Þurfa reglulega að kalla til aðstoð Herða baráttuna gegn veggjalúsum „Þá lýsi ég því yfir að við séum ófær um þetta“ Bubbi sleit liðband Tilbúnir að slást í sundklefunum Katla gæti verið nálægt þanmörkum „Ég veit að munurinn er svona mikill“ Bubba fagnað: „Hann er bara kóngurinn“ Drengurinn er fundinn Katrín lofuð í Bretlandi Malbikun Reykjanesbrautar frestað Vann Hengil Ultra eftir aðeins 8 mánaða þjálfun 35 vilja starf sveitarstjóra í Eyjafjarðarsveit Bubbi sleit liðband Snarpur skjálfti á Mosfellsheiði Áslaug Arna hættir á Alþingi Andlát: Margrét Jónsdóttir Banaslys í umferðinni: Metinn óhæfur til aksturs Íslendings saknað á Taílandi Flugmaður Icelandair hjólar í Boga Margir kvarta undan tvöfaldri rukkun Ósátt við að föður sínum sé blandað í umræðuna Unglingsstúlka fannst meðvitundarlaus í Firði Nýjast á mbl.is » Mjög óvænt rekinn frá Arsenal Segist aldrei hafa komið til greina sem Bond Loka svæðinu umhverfis Madison Square Garden Patagonia í mál við Pattie Gonia Sómalski dómarinn fær ekki að dæma á HM Umræðan Rétturinn til að ráða eigin lífi Með brjóstvitið að leiðarljósi Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Níu aðildarríki andmæla umhverfiskröfum ESB Hafnar því að ESB-aðild hafi áhrif á varnarsamning 35 látnir: Íbúar óttast eftirskjálfta Mikilvægustu hagstjórnartækin Mest lesið Í gær Í vikunni Gjaldtaka aukin með innviðafélagi Bubbi ávarpar þjóðina frá Noregi Lögin sem Bubbi tók í Höllinni „Versta mögulega sviðsmynd“ Reykjavík orðið fyrir árásum vegna dyggðaskreytinga 100 milljóna tjón hjá Sorpu í Álfsnesi Mega ekki fella niður gönguleið í Álfabakka Þurfa reglulega að kalla til aðstoð Herða baráttuna gegn veggjalúsum „Þá lýsi ég því yfir að við séum ófær um þetta“ Bubbi sleit liðband Tilbúnir að slást í sundklefunum Katla gæti verið nálægt þanmörkum „Ég veit að munurinn er svona mikill“ Bubba fagnað: „Hann er bara kóngurinn“ Drengurinn er fundinn Katrín lofuð í Bretlandi Malbikun Reykjanesbrautar frestað Vann Hengil Ultra eftir aðeins 8 mánaða þjálfun 35 vilja starf sveitarstjóra í Eyjafjarðarsveit Bubbi sleit liðband Snarpur skjálfti á Mosfellsheiði Áslaug Arna hættir á Alþingi Andlát: Margrét Jónsdóttir Banaslys í umferðinni: Metinn óhæfur til aksturs Íslendings saknað á Taílandi Flugmaður Icelandair hjólar í Boga Margir kvarta undan tvöfaldri rukkun Ósátt við að föður sínum sé blandað í umræðuna Unglingsstúlka fannst meðvitundarlaus í Firði