- What: Hotel security company Valpas detects bed bugs
- Impact: Hotel guests in Iceland
Innlent | Morgunblaðið | 8.6.2026 | 14:20 Herða baráttuna gegn veggjalúsum Þetta herbergi á Hótel Eyju í Brautarholti er vottað af Valpas. Til hægri sést búnaður fyrirtækisins. mbl.is/Anton Brink Höskuldur Daði Magnússon [email protected] Setja bókamerki Mikill vöxtur hefur verið í starfsemi alþjóðlega fyrirtækisins Valpas á Íslandi í ár. Fyrirtækið veitir hótelum vottun um að þar sé ekki að finna veggjalýs. Þetta þykir mikilvægt í síharðnandi heimi ferðaþjónustunnar. Morgunblaðið greindi frá innreið Valpas á Íslandsmarkað í febrúar síðastliðnum. Þá höfðu 15 hótel gengið frá samningum við fyrirtækið og þótti það hröð þróun. Í dag eru meira en 30% hótela á Íslandi í Valpas-netinu. Hvergi í heiminum finnst hærra hlutfall hjá Valpas. Framkvæmdastjórinn Martim Gois er hæstánægður með þessar viðtökur hér á landi. „Íslendingar tileinka sér þetta hraðar en við höfum séð á nokkrum öðrum markaði. Hótelstjórnendur hér sáu fljótt að það sem ferðalangar hafa mestar áhyggjur af er veggjalús. Þetta er nú orðinn þáttur í samkeppnishæfni hótela,“ segir Gois sem kom hingað til lands á dögunum. Hann segir enn fremur að samsetning ferðamanna hér bjóði upp á hraðari dreifingu á veggjalús en næstum því hvarvetna annars staðar í heiminum. Það skýrist af því að 95% gesta eru alþjóðlegir ferðamenn sem koma frá stöðum þar sem veggjalús verður sífellt erfiðari viðureignar. „Flestir gestir leigja bíl og gista 1-2 nætur á hverju hóteli og fara á milli 4-6 gististaða í einni ferð,“ segir hann og bætir við að einn smitberi geti því smitað mörg hótel á nokkrum dögum. Því fleiri hótel sem eru óvarin, þeim mun hraðari sé hringrásin, segir Gois. Á móti sé auðveldara að rjúfa smitkeðjuna eftir því sem vottuðum hótelum fjölgi. Martim Gois. Meindýr mikið áhyggjuefni Hann vísar í rannsókn fyrirtækisins Phocuswright sem birt er í þessum mánuði en þar kemur fram að meindýr séu nú helsta áhyggjuefni ferðamanna við bókun – framar hreinlæti, verðgildi og starfsfólki. Ferðamenn leggja meiri áherslu á öryggi gegn veggjalús en að Wi-Fi og loftkæling séu í lagi á sumum mörkuðum. Þá segjast meira en sjö af hverjum tíu ferðamönnum myndu borga 3-5% meira fyrir vottaða gistingu lausa við veggjalús. Þjónusta Valpas felst í því að skynjara er komið fyrir í rúmfæti eða annars staðar á hótelherberginu. Hann á að líkja eftir hita og öndun manneskju og þar með draga að sér veggjalýs. Ef veggjalýs gera vart við sig fær starfsfólk hótelsins tilkynningu í app og getur gripið strax inn í. Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Skoða áskriftarleiðir Innskráning Gleymt lykilorð? Kennitala: Lykilorð: Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ég er nú þegar áskrifandi Ég er ekki með notendaaðgang Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » Aðalsteinn aftur að sáttaborðinu Skoraði þrennu í sigri Frakka Ástráður: „Enn þá mjög erfið deila“ Gulf War veteran cycles across Iceland Flugfélög hafa meiri áhyggjur af sköttum en stríði Umræðan Rétturinn til að ráða eigin lífi Með brjóstvitið að leiðarljósi Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Níu aðildarríki andmæla umhverfiskröfum ESB Bubbi ávarpar þjóðina frá Noregi Segja Bandaríkin bera ábyrgð á átökum „Ekkert vesen“ að manna í viku Mest lesið Í gær Í vikunni Gjaldtaka aukin með innviðafélagi Lögin sem Bubbi tók í Höllinni Bubbi ávarpar þjóðina frá Noregi „Versta mögulega sviðsmynd“ Reykjavík orðið fyrir árásum vegna dyggðaskreytinga 100 milljóna tjón hjá Sorpu í Álfsnesi Mega ekki fella niður gönguleið í Álfabakka Herða baráttuna gegn veggjalúsum „Þá lýsi ég því yfir að við séum ófær um þetta“ Þurfa reglulega að kalla til aðstoð Bubbi sleit liðband Tilbúnir að slást í sundklefunum Katla gæti verið nálægt þanmörkum „Ég veit að munurinn er svona mikill“ Bubba fagnað: „Hann er bara kóngurinn“ Drengurinn er fundinn Katrín lofuð í Bretlandi Malbikun Reykjanesbrautar frestað Vann Hengil Ultra eftir aðeins 8 mánaða þjálfun 35 vilja starf sveitarstjóra í Eyjafjarðarsveit Bubbi sleit liðband Snarpur skjálfti á Mosfellsheiði Áslaug Arna hættir á Alþingi Andlát: Margrét Jónsdóttir Banaslys í umferðinni: Metinn óhæfur til aksturs Íslendings saknað á Taílandi Flugmaður Icelandair hjólar í Boga Margir kvarta undan tvöfaldri rukkun Ósátt við að föður sínum sé blandað í umræðuna Unglingsstúlka fannst meðvitundarlaus í Firði Nýjast á mbl.is » Aðalsteinn aftur að sáttaborðinu Skoraði þrennu í sigri Frakka Ástráður: „Enn þá mjög erfið deila“ Gulf War veteran cycles across Iceland Flugfélög hafa meiri áhyggjur af sköttum en stríði Umræðan Rétturinn til að ráða eigin lífi Með brjóstvitið að leiðarljósi Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Lausnin flóknari en gjaldmiðlaskipti Ástráður: „Enn þá mjög erfið deila“ Árásir Ísraela og Írana héldu áfram í nótt „Þá lýsi ég því yfir að við séum ófær um þetta“ Mest lesið Í gær Í vikunni Gjaldtaka aukin með innviðafélagi Lögin sem Bubbi tók í Höllinni Bubbi ávarpar þjóðina frá Noregi „Versta mögulega sviðsmynd“ Reykjavík orðið fyrir árásum vegna dyggðaskreytinga 100 milljóna tjón hjá Sorpu í Álfsnesi Mega ekki fella niður gönguleið í Álfabakka Herða baráttuna gegn veggjalúsum „Þá lýsi ég því yfir að við séum ófær um þetta“ Þurfa reglulega að kalla til aðstoð Bubbi sleit liðband Tilbúnir að slást í sundklefunum Katla gæti verið nálægt þanmörkum „Ég veit að munurinn er svona mikill“ Bubba fagnað: „Hann er bara kóngurinn“ Drengurinn er fundinn Katrín lofuð í Bretlandi Malbikun Reykjanesbrautar frestað Vann Hengil Ultra eftir aðeins 8 mánaða þjálfun 35 vilja starf sveitarstjóra í Eyjafjarðarsveit Bubbi sleit liðband Snarpur skjálfti á Mosfellsheiði Áslaug Arna hættir á Alþingi Andlát: Margrét Jónsdóttir Banaslys í umferðinni: Metinn óhæfur til aksturs Íslendings saknað á Taílandi Flugmaður Icelandair hjólar í Boga Margir kvarta undan tvöfaldri rukkun Ósátt við að föður sínum sé blandað í umræðuna Unglingsstúlka fannst meðvitundarlaus í Firði