Sía fréttalista Sía eftir dagsetningu dd . mm . áááá – dd . mm . áááá Innlent Erlent Menning og dægurmál Íþróttir Fyrir 2 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Höfuðborgarsvæðið Drengur sem lögregla lýsti eftir er fundinn Sigrún Björk Hjartardóttir Lögreglubíll úr flota lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. RÚV / Bjarni Rúnarsson Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur fundið 12 ára dreng sem hún lýsti eftir fyrr í kvöld. Hann fannst heill á húfi að því er segir í tilkynningu. Lögreglan þakkar alla veitta aðstoð. Fréttin var uppfærð með nýrri fyrirsögn og mynd eftir að drengurinn fannst. Fyrir 31 mínútuERLENDAR FRÉTTIR Stríð í Mið-Austurlöndum Trump skipar Netanjahú að svara ekki árásum Írana Bandaríkjaforseti segir Ísraela þurfa að sætta sig við niðurstöður samningaviðræðna Bandaríkjanna og Írans. Hann ráði för en ekki forsætisráðherra Ísraels. Fyrir 1 tímaERLENDAR FRÉTTIR Bandaríkin Óskilamunir úr Uber til sýnis: gervitennur, lifandi humar og trúlofunarhringur Hálft kíló af kavíar, gervitennur, lifandi humar og trúlofunarhringur er meðal þess sem hefur gleymst í Uber-bílum í Bandaríkjunum. Þessir hlutir og fjöldi annarra eru til sýnis í New York. Fyrir 1 tímaINNLENDAR FRÉTTIR Rangárþing eystra „Nú þurfum við að treysta á veðurguðina til að halda áfram“ Heyskapur er hafinn í Fljótshlíð. Bóndi í Bollakoti í Rangárþingi segir sprettuna hafa tekið við sér í hlýindum og vætu að undanförnu. Hann segist reyna eftir fremsta megni að komast hjá rigningunni. Fyrir 1 tímaINNLENDAR FRÉTTIR Reykjavíkurborg Vélmenni hefur störf á hjúkrunarheimili í Fossvogi Þjónustuvélmenni hefur tekið til starfa á hjúkrunarheimili í höfuðborginni. Vélmennið fer á milli borða í matsalnum í þeim tilgangi að létta á starfsfólki þegar leirtau er tekið af borðum. Fyrir 2 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Samfélag Skrúðganga, kappróður og kraftakarlar á sjómannadaginn Sjómannadagurinn var haldinn hátíðlegur um allt land í dag, meðal annars í Reykjavík, Hafnarfirði og Ólafsfirði. Fyrir 2 tímumERLENDAR FRÉTTIR Stríð í Mið-Austurlöndum Íranar skjóta á Ísrael Íran hefur hafið flugskeyta- og drónaárásir að norðanverðu Ísrael í kjölfar þess að ísraelski herinn gerði loftárásir á suðurhluta Beirút í Líbanon fyrr í dag. Fyrir 2 tímumÍÞRÓTTIR HM í fótbolta 2026 Noregur náði jafntefli við Marokkó Undirbúningur karlalandsliða fyrir HM heldur áfram og vináttuleikir spilaðir víða í dag. Noregur og Marakkó mættust í kvöld og skildu jöfn, 1-1. Fyrir 3 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Náttúra Mývatn vaknar af vetrardvala Eftir napurt vor fyrir norðan er Mývatn að vakna til lífsins með tilheyrandi mýflugum og fuglalífi. Búist er við mikilli flugu í sumar, eins og síðasta sumar. Fyrir 3 tímumERLENDAR FRÉTTIR Stríð í Mið-Austurlöndum Stríð í 100 daga – friður ekki í augsýn Hundrað dagar eru síðan Bandaríkjamenn og Ísraelar hófu loftárásir á Íran. Þúsundir hafa fallið og friður virðist ekki í augsýn. Fyrir 4 tímumERLENDAR FRÉTTIR Stríð í Mið-Austurlöndum Ísraelar gera árás á eina af stjórnstöðvum Hezbollah Mist Þormóðsdóttir Grönvold Ísraelsher gerði árásir í Beirút í Líbanon í dag. Árásirnar beindust að tveimur íbúðum í byggingum í suðurhluta borgarinnar. Í yfirlýsingu ísraelska hersins segir að eftir eldflaugaárásir Hezbollah-samtakanna á borgaraleg skotmörk í Ísrael hafi Ísraelsher ákveðið að svara með árás á eina af stjórnstöðvum samtakanna. Fyrr í vikunni kynntu líbanskir og ísraelskir sendiherrar vopnahléssamkomulag þar sem þess var krafist að árásum Hezbollah linnti og að hópurinn hörfaði frá landamærum Ísraels. Samtökin höfnuðu samkomulaginu og kröfðust þess að Ísraelar yfirgæfu líbönsk yfirráðasvæði. Lebanese security officers gather at the site where an Israeli airstrike hit a building in Dahiyeh, Beirut's southern suburb, Lebanon, Sunday, June 7, 2026. (AP Photo/Hassan Ammar) AP / Hassan Ammar Fyrir 4 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Reykjavíkurborg Gæsum og gæsarungum bjargað frá umferð og vörgum Starfsfólk Fjölskyldu- og húsdýragarðsins í Laugardal er nú með nokkrar gæsafjölskyldur í umsjón sinni en einni fjölskyldunni var bjargað af mikilli umferðargötu í höfuðborginni og frá varginum, sem gerði allt til að ná ungunum. Fyrir 4 tímumERLENDAR FRÉTTIR Perú Spennuþrungið andrúmsloft er íbúar Perú ganga að kjörborðinu Síðari umferð forsetakosninga í Perú stendur yfir í dag. Á síðustu tíu árum hafa átta gegnt embætti forseta. Mótmæli, óstöðugleiki og vantraust í garð stjórnvalda hafa sett mark sitt á kosningarnar. Fyrir 4 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Kosningar Prófuðu rafræna kjörskrá í fyrsta sinn í vor: „Heppin að fá aðra kosningu í ágúst“ Með tilkomu rafrænnar kjörskrár geta kjósendur kosið á hvaða kjörstað sem er í sínu kjördæmi. Fagstjóri hjá Þjóðskrá segir stefnt að því að innleiða kerfið á næstu árum. Fyrir 4 tímumÍÞRÓTTIR Golf Aron Snær vann þriðja mótið í röð Þriðja mót golfmótaraðar GSÍ fór fram í rjómablíðu í Þorlákshöfn um helgina. Einstefna var í kvennaflokki þar sem Eva Kristinsdóttir bar sigur úr bítum en í karlaflokki var mikil spenna. Aron Snær Júlíusson hélt áfram að gera það gott. Fyrir 4 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Varnarmál Ekki ástæða til að hafa áhyggjur af njósnaskipinu Rússneskt herskip hefur lónað innan efnahagslögsögunnar síðustu daga eftir að hafa vaktað æfingar Atlantshafsbandalagsins í maí. Ekki er ástæða til að hafa áhyggjur, segir utanríkisráðuneytið, skipið er undir stöðugu eftirliti. Fyrir 4 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Sveitarstjórnarkosningar 2026 Nýr meirihluti í Sveitarfélaginu Vogum Björg Ásta Þórðardóttir verður bæjarstjóri nýs meirihluta D, E og L-lista í Sveitarfélaginu Vogum. Fyrir 5 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Tækni og vísindi Stjórnlaus þróun gervigreindar mikið áhyggjuefni Engin merki eru um að hægja fari á þróun gervigreindar, segir Halldóra Mogensen, sérfræðingur í vísindanefnd ESB um gervigreind. Leiðandi gervigreindarfyrirtæki vill samstillt átak til að hægja á þróuninni. Fyrir 5 tímumÍÞRÓTTIR Fótbolti Aftur hneig Eriksen niður Danmörk mætti Úkraínu í vináttulandsleik í dag en hætt var við leikinn þar sem Daninn Christian Eriksen hneig niður í síðari hálfleik. Þetta er ekki í fyrsta sinn sem það gerist en danska knattspyrnusambandið segir aðstæður betri nú. Fyrir 5 tímumÍÞRÓTTIR Tennis Tilfinningaflóð þegar fyrsti risatitillinn var í höfn Úrslitin réðust í dag í karlaflokki á Opna franska meistaramótinu í tennis. Þar mættust Ítalinn Flavio Cobolli og Þjóðverjinn Alexander Zverev, en hvorugur hafði áður unnið risamót í tennis. Fyrir 6 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Heilbrigðismál Loka 20 hjúkrunarrýmum á Selfossi Heilbrigðisstofnun Suðurlands vinnur með heilbrigðisráðuneytinu að því að tryggja að þjónusta verði áfram á Suðurlandi. Fyrir 6 tímumÍÞRÓTTIR Fótbolti Pressulausar inn í leikinn: „Velkomnar á Laugardalsvöll“ Íslenska kvennalandsliðið í fótbolta mætir Spáni á Laugardalsvelli á þriðjudag í leik sem hefur raunar enga þýðingu fyrir Ísland hvað næstu skref varðar. Spánn getur hins vegar tryggt sæti sitt á HM en íslenska liðið mætir pressulaust. Fyrir 6 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Samgöngur Töluverðar umferðartafir í Reykjavík vegna sjómannadagsfögnuða Ásta Hlín Magnúsdóttir Töluverðar umferðartafir eru í kringum miðbæ Reykjavíkur og búist við því að svo verði eitthvað áfram, segir Logi Sigurjónsson aðalvarðstjóri hjá Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu. Hann segir orsakir tafana fjölsótt hátíðahöld í tilefni sjómannadags. Gera megi ráð fyrir því að umferðin fari að ganga greiðar fyrir sig nú undir kvöld þegar formlegri dagskrá ljúki. Töluverðar umferðartafir eru vegna sjómannadags. RÚV / Ragnar Visage Fyrir 8 tímumÍÞRÓTTIR Formúla 1 Antonelli stunginn af Sjötta formúlu eitt keppni tímabilsins, og ein sú þekktasta, fór fram í dag þegar Mónakókappaksturinn var haldinn í furstadæminum við Miðjarðarhaf. Antonelli bætti stöðu sína enn fremur í heimsmeistarakeppninni. Fyrir 8 tímumERLENDAR FRÉTTIR Innrás í Úkraínu Úkraínuforseti fordæmir „viðurstyggilegar“ árásir Rússa á Tsjornobyl Úkraínuforseti segir Rússa hafa gert loftárásir í 13 héruðum í Úkraínu í nótt, meðal annars á geymsluaðstöðu fyrir kjarnorkuver í Tsjornobyl. Úkraínuher gerði árásir á Sankti Pétursborg í gær. Fulltrúar fjögurra ríkja funda í Downinstræti í dag. Fyrir 8 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Leit og björgun Ætluðu að hjóla Fjallabak en mættu krapi og snjó Erlendir göngumenn á Mælifellssandi nutu aðstoðar björgunarsveitarmanna í nótt. Fyrir 9 tímumERLENDAR FRÉTTIR Armenía Velja kjósendur að styrkja tengsl við Evrópu eða Rússa? Þingkosningar fara fram í Armeníu í dag. Flokkur forsætisráðherra landsins, sem vill styrkja tengsl við Evrópu, er með mest fylgi samkvæmt skoðanakönnunum. Fyrir 9 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Efnahagsmál Áfram stefnt að hallalausum fjárlögum Formaður fjárlaganefndar Alþingis segir enn stefnt að því að skila hallalausum fjárlögum á næsta ári þrátt fyrir versnandi efnahagshorfur. 7. júní 2026 kl. 13:58INNLENDAR FRÉTTIR Kjaramál Icelandair og flugmenn funda að nýju á morgun Mist Þormóðsdóttir Grönvold Boðað hefur verið til fundar hjá ríkissáttasemjara í vinnudeilu Félags Íslenska atvinnuflugmanna (FÍA) við Icelandair. Ástráður Haraldsson ríkissáttasemjari staðfestir að samninganefndir hafi verið boðaðar til fundar við sig á morgun klukkan fjögur. Hann segir fundinum ætlað að halda samtölum áfram í deilunni en gaf ekki frekari upplýsingar um hvað yrði rætt. Á fundi á fimmtudagskvöld kynnti Icelandair tillögur að lausn fyrir FÍA. Ástráður sagðist þá binda vonir við að samninganefnd flugmanna legði fram tillögur eða gagntilboð eftir að hafa farið yfir tillögur Icelandair. RÚV / Ragnar Visage 7. júní 2026 kl. 13:57INNLENDAR FRÉTTIR Samfélag Sjómannadagurinn haldinn hátíðlegur víða um land Sjómannadagurinn er í dag. Víða er boðið upp á fjölbreytta dagskrá. Deginum er ætla að heiðra íslenska sjómenn og að minna á mikilvægi sjómennskunnar. 7. júní 2026 kl. 13:05INNLENDAR FRÉTTIR Samgöngur Mikil aukning flugfarþega um Akureyrarflugvöll Erlendum komufarþegum um Akureyrarflugvöll fjölgaði um 9