Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Minnisvarði afhjúpaður á sjómannadaginn

Read Full Article →

200 mílur | Morgunblaðið | 6.6.2026 | 15:40 Minnisvarði afhjúpaður á sjómannadaginn Minnisvarðinn verður tileinkaður síðutogurum en hér getur að líta einn slíkan, Jón Baldvinsson RE í ólgusjó. Mikið gat gengið á við veiðarnar. Ásgeir Ingvarsson [email protected] Setja bókamerki Bæjarlandslagið á Akureyri verður gert enn fallegra á sjómannadaginn en þá verður afhjúpaður glæsilegur minnisvarði tileinkaður síðutogaraútgerð á Íslandi. Sigfús Ólafur Helgason, fyrrverandi sjómaður og áhugamaður um íslenska útgerðarsögu, hefur leitt verkefnið en saga minnisvarðans hefst fyrir fimmtán árum: „Árið 2011 var haldin hér á Akureyri síðutogarasjómannahátíð og var þá kynnt hugmynd að minnismerki sem Jón Þórisson leikmunateiknari hannaði. Jón, sem núna er látinn, gaf sjómönnum hönnunina og var mikill hugur í mönnum að gera minnismerkið að veruleika. Hins vegar gekk fjármögnunin ekki nógu vel og hægt og rólega fjaraði undan verkefninu.“ Í fyrra komu góðir menn að máli við Sigfús og báðu hann að koma verkinu á koppinn. Hann fékk gott fólk til liðs við sig og í þetta skiptið gekk fjáröflunin og smíðin eins og í sögu. „Í þessum borgum var bæði landað og leikið sér og ekki allt prenthæft sem þar fór fram,“ segir Sigfús Ólafur Helgason um ævintýri síðutogarasjómanna erlendis. Morgunblaðið/Þorgeir Baldursson Vönduð ljósahönnun og bekkir til að tylla sér Minnismerkið hefur sterka vísan til síðutogaranna og gefa toggálgi og öldulínur verkinu sterkan svip. Þá var vandað til verka við ljósahönnun minnismerkisins sem og svæðisins þar sem það stendur og mun verkið njóta sín vel í rökkrinu, vel upplýst og fallegt. „Við hlið minnismerkisins verður að finna söguskilti þar sem stiklað er á stóru í sögu síðutogara en skiltið er skreytt með fjölda ljósmynda. Einnig stendur þar hjá kross með hólfi fyrir stormkerti og þangað getur fólk komið og minnst ástvina á gleði- og sorgarstundum.“ Verkinu var fundinn staður við fjöruborðið, rétt sunnan við og skammt frá húsi leikfélagsins en þar var einmitt útgerðarfélag Akureyringa stofnað 26. maí 1945. Fjöldi fyrirtækja og stéttarfélaga lagði verkefninu lið, sem og ráðuneyti atvinnuvega og menntamála, en Slippurinn tók að sér smíðina. Þessi teikning sýnir nokkurn veginn hvernig minnisvarðinn kemur til með að líta út. Áætlaður kostnaður er á bilinu 12-13 milljónir króna og er þá vinna umhverfis minnismerkið innifalin en þar verður komið fyrir þremur bekkjum þar sem fólk getur notið útsýnisins. Verkið er allt úr stáli: „Við notum gamla togblokk úr togara og gamla bobbinga sem ganga í þessu verki í endurnýjun lífdaga. Síðan mun smám saman falla á stálið, og leyfum við því að ryðga rétt eins og gömlu síðutogararnir gerðu enda var ekki alltaf verið að mála þá og halda þeim fínum. Þegar verkið hefur fengið tíma til að ryðga og fá á sig tiltekið yfirbragð stefnum við að því að lakka yfir það og varðveitum verkið betur þannig,“ upplýsir Sigfús en minnisvarðinn er nokkuð fyrirferðarmikill, eða hér um bil 7 metrar í ummál. Tímabil sem hagsæld samfélagsins byggist á Það er svo sannarlega við hæfi að minnast síðutogaratímabilsins með þessum hætti, og á þessum stað. Sigfús segir að á Akureyri hafi saga síðutogaranna spannað tímabilið frá 1947 til 1975 og að þeir hafi verið einn mikilvægasti burðarstólpi atvinnulífsins allan þann tíma – og lagt grunninn að þeim öflugu útgerðarfélögum sem starfa í bæjarfélaginu í dag. Sigfús hefur sankað að sér góðu safni mynda sem skrásetja sögu síðutogaranna en vinnan um borð var krefjandi og slítandi. Ljósmynd/Aðsend „Fyrsti síðutogarinn kom til landsins árið 1904 og olli straumhvörfum. Þetta voru með allra fyrstu vélknúnu skipum sem Íslendingar eignuðust og juku þau verðmætasköpun sjávarútvegsins til mikilla muna. Þegar Marshall-aðstoðin kom síðan í lok fyrri heimsstyrjaldar var fjármagnið m.a. notað til að endurnýja fiskiskipaflota Íslendinga og þannig fengu mörg sveitarfélög togara, og í framhaldinu voru stofnuð útgerðarfélög sem ráku frystihús og fiskverkanir.“ Minnisvarðinn heiðrar þessa sögu alla og líka þær fórnir sem sjómenn færðu við veiðarnar. Sigfús segir að þó að síðutogurunum hafi fylgt miklar framfarir þá hafi aðstæður um borð oft verið krefjandi og vinnan bæði slítandi og hættuleg, og bara frá 1947 til 1975 fórust fimmtán sjómenn á síðutogurum frá Akureyri. Lengra viðtal við Sigfús er að finna í sérblaði 200 mílna sem gefið er út í tilefni af sjómannadeginum. Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Skoða áskriftarleiðir Innskráning Gleymt lykilorð? Kennitala: Lykilorð: Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ég er nú þegar áskrifandi Ég er ekki með notendaaðgang Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Mest lesið Í gær Í vikunni Vara við tínslu kræklings úr fjörum Engin drauganet úr köngulóarsilki Viðbrögð Faxaflóahafna komu á óvart Vogmær á fiskasýningu Hafró Stærsti túr Blængs á Íslandsmiðum Gott samstarf við lögreglu sjaldséð Brim kaupir Lýsi á lægra verði 3.700 tonn á strandveiðum í maí Þyrla kölluð út vegna elds í fiskibáti Samningur Norðmanna vekur meiri ugg: „Viðkvæmt mál“ Vara við tínslu kræklings úr fjörum Viðbrögð Faxaflóahafna komu á óvart Stærsti túr Blængs á Íslandsmiðum Engin drauganet úr köngulóarsilki Átta sóttu um stöðu forstjóra Hafró 3.700 tonn á strandveiðum í maí Þyrla kölluð út vegna elds í fiskibáti Gott samstarf við lögreglu sjaldséð Brim kaupir Lýsi á lægra verði Lýsa yfir stuðningi við aðgerðir háseta Brim kaupir Lýsi á lægra verði Stærsti túr Blængs á Íslandsmiðum Þyrla kölluð út vegna elds í fiskibáti Vara við tínslu kræklings úr fjörum Átta sóttu um stöðu forstjóra Hafró Fimmtíu ár frá fullnaðarsigri á Bretum Fullveldisbaráttunni lauk 1. júní Viðbrögð Faxaflóahafna komu á óvart 3.700 tonn á strandveiðum í maí Samkomulag í höfn og verkfalli aflýst Fleira áhugavert Enn langt frá nákvæmni í eldgosaspám Fylgjast með keppni storknandi og flæðandi kviku Minna fé og færri styrkir þrátt fyrir aukin gæði Kaflaskil hjá bardagakind Afurðaverð » Afurð Dags. Meðalverð Þorskur, óslægður 5.6.26 638,65 kr/kg Þorskur, slægður 5.6.26 748,35 kr/kg Ýsa, óslægð 5.6.26 663,24 kr/kg Ýsa, slægð 5.6.26 591,47 kr/kg Ufsi, óslægður 5.6.26 352,15 kr/kg Ufsi, slægður 5.6.26 483,09 kr/kg Djúpkarfi 4.5.26 160,00 kr/kg Gullkarfi 5.6.26 315,33 kr/kg Litli karfi 1.6.26 25,00 kr/kg Blálanga, óslægð 4.6.26 388,23 kr/kg Fleiri tegundir » Nýjustu landanir » 6.6.26 Æsir BA 808 Grásleppunet Grásleppa 1.956 kg Þorskur 34 kg Samtals 1.990 kg 6.6.26 Svala Dís KE 29 Grásleppunet Grásleppa 1.208 kg Rauðmagi 36 kg Þorskur 33 kg Samtals 1.277 kg 6.6.26 Hrói SH 40 Grásleppunet Grásleppa 1.209 kg Samtals 1.209 kg 6.6.26 Rán DA 2 Grásleppunet Grásleppa 2.437 kg Samtals 2.437 kg 6.6.26 Bára SH 27 Gildra Þorskur - Noregi 2.710 kg Samtals 2.710 kg Skoða allar landanir » Mest lesið Í gær Í vikunni Vara við tínslu kræklings úr fjörum Engin drauganet úr köngulóarsilki Viðbrögð Faxaflóahafna komu á óvart Vogmær á fiskasýningu Hafró Stærsti túr Blængs á Íslandsmiðum Gott samstarf við lögreglu sjaldséð Brim kaupir Lýsi á lægra verði 3.700 tonn á strandveiðum í maí Þyrla kölluð út vegna elds í fiskibáti Samningur Norðmanna vekur meiri ugg: „Viðkvæmt mál“ Vara við tínslu kræklings úr fjörum Viðbrögð Faxaflóahafna komu á óvart Stærsti túr Blængs á Íslandsmiðum Engin drauganet úr köngulóarsilki Átta sóttu um stöðu forstjóra Hafró 3.700 tonn á strandveiðum í maí Þyrla kölluð út vegna elds í fiskibáti Gott samstarf við lögreglu sjaldséð Brim kaupir Lýsi á lægra verði Lýsa yfir stuðningi við aðgerðir háseta Brim kaupir Lýsi á lægra verði Stærsti túr Blængs á Íslandsmiðum Þyrla kölluð út vegna elds í fiskibáti Vara við tínslu kræklings úr fjörum Átta sóttu um stöðu forstjóra Hafró Fimmtíu ár frá fullnaðarsigri á Bretum Fullveldisbaráttunni lauk 1. júní Viðbrögð Faxaflóahafna komu á óvart 3.700 tonn á strandveiðum í maí Samkomulag í höfn og verkfalli aflýst Fleira áhugavert Skólastjóri gefur kerfum samfélagsins falleinkunn Fá lán aðeins hluta skólaársins Churchill of sundrandi og elitískur fyrir seðlana Þorvaldur segir kvikugang ekki upptök skjálftanna Afurðaverð » Afurð Dags. Meðalverð Þorskur, óslægður 5.6.26 638,65 kr/kg Þorskur, slægður 5.6.26 748,35 kr/kg Ýsa, óslægð 5.6.26 663,24 kr/kg Ýsa, slægð 5.6.26 591,47 kr/kg Ufsi, óslægður 5.6.26 352,15 kr/kg Ufsi, slægður 5.6.26 483,09 kr/kg Djúpkarfi 4.5.26 160,00 kr/kg Gullkarfi 5.6.26 315,33 kr/kg Litli karfi 1.6.26 25,00 kr/kg Blálanga, óslægð 4.6.26 388,23 kr/kg Fleiri tegundir » Nýjustu landanir » 6.6.26 Æsir BA 808 Grásleppunet Grásleppa 1.956 kg Þorskur 34 kg Samtals 1.990 kg 6.6.26 Svala Dís KE 29 Grásleppunet Grásleppa 1.208 kg Rauðmagi 36 kg Þorskur 33 kg Samtals 1.277 kg 6.6.26 Hrói SH 40 Grásleppunet Grásleppa 1.209 kg Samtals 1.209 kg 6.6.26 Rán DA 2 Grásleppunet Grásleppa 2.437 kg Samtals 2.437 kg 6.6.26 Bára SH 27 Gildra Þorskur - Noregi 2.710 kg Samtals 2.710 kg Skoða allar landanir »

Share this article