Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Vaxandi áhyggjur af stöðu Icelandair

Read Full Article →

Allt er í hnút í kjaradeilu flugmanna og Icelandair á sama tíma og óvissan hefur sjaldan verið meiri um rekstrar­horfur flugfélagsins. Þungavigtarmenn í fjármálageiranum á borð við Davíð Rúdólfsson, framkvæmdastjóra Gildis, Kjartan Smári Höskuldsson, framkvæmdastjóra Íslandssjóða, og Marinó Örn Tryggvason, fyrrverandi forstjóra Kviku, stigið fram og lýst yfir þungum áhyggjum yfir stöðu mála. Samkvæmt nýju verðmati frá Jakobsson Capital er gert ráð fyrir að rekstur Icelandair skili tíu milljarða tapi í ár en áður var áætlað að afkoman yrði kringum núllið. En flugmenn standa vörð um sinn málstað og í vikunni ákvað einn þeirra, Ólafur Pétursson, „að opna bókhaldið“ eins og það var orðað í umfjöllun Vísis. Það sem vakti athygli hrafnanna við þá opinberun var að þar kom allt fram um vinnutilhögun flugmannsins nema það hvað hann fær greitt fyrir störf sín. Ekki skal fullyrt neitt hvað megi lesa úr því varðandi stöðuna í kjaradeilunni. Huginn og Muninn er einn af föstum ritstjórnardálkum Viðskiptablaðsins. Þessi pistill birtist fyrst í blaðinu sem kom út 3. júní 2026.

Share this article