Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Ísland í sterkri samningsstöðu gagnvart Evrópusambandinu

  • What: Iceland's strong position in negotiations with the EU
  • Impact: Diplomatic discussions on bilateral relations and EU policies
Read Full Article →

Betra er fyrir lönd að vera með sæti við borðið heldur en fyrir utan Evrópusambandið, að mati utanríkisráðherra Austurríkis. Hún telur Ísland í sterkri samningsstöðu gagnvart Evrópusambandinu. Með sæti við borðið Beate Meinl-Reisinger, utanríkisráðherra Austurríkis, og Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, utanríkisráðherra, hittust á fundi í utanríkisráðuneytinu í dag. Þær ræddu meðal annars tvíhliða samband Íslands og Austurríkis, norðurslóðir og innrásarstríðið í Úkraínu. Evrópumálin bar einnig á góma. Meinl-Reisinger segir þjóðirnar tvær ólíkar en eigi samt margt sameiginlegt. Austurríki gekk í Evrópusambandið 1995. Hún segir mikinn mun á því að vera hluti af EES eða í Evrópusambandinu. „Þið eruð með sæti við borðið. Þið tækjuð þátt í að móta þær reglur sem þarf að hlýða. Ég myndi telja afar ákjósanlegt að hafa slíkt vægi í svo mikilvægum málum.“ Stækkun ESB öflugt verkfæri Hún segir stöðu Íslands gagnvart Evrópusambandinu sterka þrátt fyrir smæð. „Þið eruð í sterkri stöðu núna því Evrópusambandið, framkvæmdastjórnin og aðildarríkin skilja nú að stækkun sambandsins er öflugt og mikilvægt verkfæri í landfræðilegri stefnumótun.“ Í breyttum heimi dagsins í dag vilji stórveldi koma hagsmunum sínum á framfæri á ýmsan hátt. Til dæmis með pólitískum þrýstingi eða hervaldi. „Þess vegna er það, í samhengi landfræðilegrar stefnumótunar, einnig í þágu Evrópusambandsins og aðildarríkjanna, að þið gangið kannski aftur til aðildarviðræðna og ákveðið síðan að ganga í sambandið. Það er fullveldisákvörðun. Þið eruð í sterkri samningsstöðu, það er mín skoðun.“ Ísland er í sterkri samningsstöðu gagnvart Evrópusambandinu fari svo að aðildarviðræður haldi áfram, segir utanríkisráðherra Austurríkis. Hún telur betra fyrir lönd að vera með sæti við borðið heldur en fyrir utan sambandið.

Share this article