Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Minna fé og færri styrkir þrátt fyrir aukin gæði

Read Full Article →

Innlent | mbl | 5.6.2026 | 11:05 Minna fé og færri styrkir þrátt fyrir aukin gæði Samkeppnisskortur á íslenskum markaði hefur orðið til þess að námsgögn eru oft óvönduð eða úrelt. mbl.is/Anton Brink Setja bókamerki Tengdar fréttir Skólakerfið í vanda Birtingarmynd miklu stærri vanda „Grundvallaratriði fyrir íslenska þjóð“ Hefur greinilega farið úrskeiðis löngu áður Stjórnin „gjörsamlega að taka þetta mjög alvarlega“ Tuttugu ára tilmæli til ráðuneytisins enn í gildi » Fleiri tengdar fréttir Þróunarsjóður námsgagna hefur úthlutað 82 milljónum til 24 verkefna. Um er að ræða færri verkefni en þau sem hafa fengið úthlutun síðustu ár, en undanfarið hefur sjóðurinn sjálfur sem og íslenskir bókaútgefendur gagnrýnt mjög þá upphæð sem yfirvöld setja í þróun námsgagna hér á landi. Í nýlegri skýrslu sjóðsins kom fram að fjármagn til þróunar námsefnis í íslenskum skólum hefði rýrnað um 60 prósent á undanförnum tveimur áratugum og væri nú aðeins um fjórðungur af því sem lægst gerist annars staðar á Norðurlöndunum. Í kjölfar skýrslunnar skoraði Rithöfundasamband Íslands á ríkisstjórnina að bæta fyrir áratuga vanrækslu og margfalda framlög til framleiðslu námsgagna. Þá kallaði Anna Lea Friðriksdóttir, formaður Félags bókaútgefenda, í viðtali við Morgunblaðið eftir því að fyrirkomulag námsgagnaútgáfu yrði fært yfir á frjálsan markað til að gera kennurum kleift að velja námsefni sjálfir. Frétt af mbl.is Námsgögn fjársvelt í áratugi Frétt af mbl.is Grátbáðu ráðuneytið um peninga án árangurs Einn af hverjum fimm fékk styrk Markmið Þróunarsjóðs námsmanna er að styðja við nýsköpun, þróun, gerð og útgáfu námsgagna fyrir leik-, grunn- og framhaldsskóla „með það að markmiði að tryggja aukið framboð og fjölbreytileika námsgagna í samræmi við þarfir nemenda og skóla“. Í tilkynningu kemur fram að sjóðnum hafi borist 125 umsóknir í ár, þar sem sótt var um rúmlega 385 m.kr., en aðeins fimmtungur umsókna fékk brautargengi. „Umsóknir voru fleiri en fyrri ár og gæði þeirra jukust milli ára,“ segir í tilkynningu þróunarsjóðsins. Hámarksviðmið þróunarstyrks var hækkað úr tveimur í þrjár milljónir króna og úr fjórum í sex milljónir króna fyrir þróunar- og útgáfustyrk sem var raunvirðishækkun þar sem styrkupphæð hafði haldist óbreytt í fjölda ára. Þessi breyting ásamt því að fjármagn til úthlutunar lækkar milli ára leiddi til þess að færri verkefni fá styrk í ár í samanburði við fyrri ár. Frétt af mbl.is „Gyrðum okkur í bók!“ Frétt af mbl.is Úgefendur vilja ólmir komast inn á markaðinn Eftirfarandi 24 verkefni hlutu styrk árið 2026: 1. Bergmann Guðmundsson (2.900.000 kr.) Orðagreining Íslenska og tjáning fyrir grunnskóla, efsta stig Þjálfar nemendur í að greina íslensk orð með gagnvirku vefnámsefni sem styður sjálfstætt nám og betri skilning á málfræði. 2. Björk Bryngeirsdóttir og Rasmus Steenberg Christiansen (2.500.000 kr.) Danska – námsefni fyrir 10. bekk: Skoleliv Erlend tungumál fyrir grunnskóla, efsta stig Þróar sveigjanlegt námsefni í dönsku sem tengir tungumálanám við daglegt líf ungmenna og eykur þátttöku og sjálfstraust. 3. Forlagið ehf. (1.800.000 kr.) VÍSINDALÆSI - Sólmyrkvar. Sjöunda bókin í léttlestrarbókaflokki um vísindi. Náttúrufræðigreinar fyrir grunnskóla, miðstig Kynnir sólmyrkva á aðgengilegan hátt í léttlestrarbók sem vekur áhuga á vísindum og tengir við raunverulega atburði. 4. Friðrik Óli Atlason (2.970.000 kr.) Rökrásir og Iðnsmíði — opinn kennsluvefur um forritun iðntölva Verk- og starfsnám fyrir framhaldsskóla Þróar opinn kennsluvef þar sem nemendur læra forritun iðntölva með því að prófa, smíða og herma eigin lausnir. 5. Gasverk ehf. (3.000.000 kr.) Dýrin okkar, táknmálsbók Íslenska og tjáning fyrir leikskóla Kennslugögn sem efla læsi og samskipti á íslensku táknmáli fyrir heyrnarskert og heyrnarlaus leikskólabörn. 6. Hans Rúnar Snorrason (2.500.000 kr.) velritun.is – Gagnvirkur kennsluvefur í fingrasetningu Íslenska og tjáning fyrir grunnskóla, miðstig Ókeypis kennsluvefur sem þjálfar fingrasetningu og vélritun á íslensku lyklaborði. 7. Heiðrún Villa Ingudóttir (6.000.000 kr.) Þróun og útgáfa námsefnis Gæðastundar Íslenska og tjáning fyrir leikskóla Kennslugögn sem efla tilfinningalæsi og tjáningu ungra barna með leik, samtali og þátttöku. Efnið styður sjálfsvitund og félagsfærni og skapar rými fyrir börn til að þekkja og orða eigin líðan og líðan annarra. 8. Hildur Björnsdóttir (2.000.000 kr.) „Tölum saman – Tvítyngd samræðuspjöld fyrir unglingastig (íslenska–spænska)” Íslenska og tjáning fyrir grunnskóla, efsta stig Þróar tvítyngd samræðuspjöld sem styðja nemendur með spænsku sem móðurmál í að efla orðaforða, samskipti og þátttöku í íslensku skólaumhverfi. 9. IÐNMENNT ses. (6.000.000 kr.) Töflubók fyrir málm- og véltækni Verk- og starfsnám fyrir framhaldsskóla Þýðing og staðfærsla á nýrri Töflubók fyrir málm- og véltæknibrautir. 10. IÐNMENNT ses. (4.000.000 kr.) Stýringar og tæknibúnaður Verk- og starfsnám fyrir framhaldsskóla Námsefni um stýringar og tæknibúnað sem eflir skilning á hönnun og virkni lagnakerfa. 11. IÐNMENNT ses. (4.000.000 kr.) Stærðfræði 4 – frumsamið námsefni fyrir lokaáfanga í stærðfræði á framhaldsskólastigi Stærðfræði fyrir framhaldsskóla Byggir á frumsömdu námsefni sem hefur verið þróað og prófað á undanförnum árum. 12. Ingibjörg V Kaldalóns (5.500.000 kr.) Samkennd í samfélaginu: Félags, tilfinninga og siðferðisnám Samfélagsgreinar fyrir grunnskóla, efsta stig Þýðir og aðlagar alþjóðlegt námsefni sem eflir samkennd, félagsfærni og siðferðisvitund nemenda. Verkefnið styður kennara og nemendur í að byggja upp jákvæð samskipti og styrkir velferð og öryggi í skólastarfi. 13. Karítas Hrundar Pálsdóttir (3.000.000 kr.) Íslenskar og pólskar tvímála sögur á einföldu máli Íslenska og tjáning fyrir framhaldsskóla Tvímála sögur á íslensku og pólsku sem styðja tungumála- og menningarlæsi og styðja við inngildingu pólskumælandi nemenda. 14. Ketill Heiðar Guðmundsson (2.010.000 kr.) Gagnvirkar sýndartilraunastofur í eðlis- og efnafræði Náttúrufræðigreinar fyrir framhaldsskóla Þróar gagnvirkt námsefni sem tengir eðlis- og efnafræði við íslenskt atvinnulíf og raunveruleg viðfangsefni. 15. Kolbrún Halldórsdóttir (1.950.000 kr.) Áfram íslenska: Laxdæla saga Íslenska og tjáning fyrir framhaldsskóla Gagnvirkt námsefni sem gerir Laxdælu sögu aðgengilega og styður lesskilning og orðaforða. 16. Kristian Guttesen (5.500.000 kr.) Tækniseigla: Þverfaglegt vandamálamiðað námsefni í gervigreind fyrir framhaldsskóla Tölvufræði og upplýsingatækni fyrir framhaldsskóla Þverfaglegt námsefni um gervigreind sem eflir gagnrýna hugsun og ábyrga notkun tækni. 17. Pappírsbátur, félagasamtök (3.000.000 kr.) Lesum Saman: Þróun og útgáfa stafræns og prentaðs námsefnis fyrir lestur, íslensku sem annað mál og inngildandi málþroska í grunnskóla Íslenska og tjáning fyrir grunnskóla, miðstig Námsefni sem styður lestur og tjáningu með jafningjalærdómi og aðgengilegum textum. 18. Ragnar Þór Pétursson (3.000.000 kr.) Hagnýt verkefni um gervigreind fyrir unglinga Tölvufræði og upplýsingatækni fyrir grunnskóla, efsta stig Safn verkefna og kennsluhugmynda sem tengjast tæknilegum, samfélagslegum og siðferðislegum hliðum gervigreindar. 19. RATA ehf. (4.000.000 kr.) Hugmyndasmiðir - Nýsköpun í skólastarfi Verk- og starfsnám fyrir grunnskóla, miðstig Námsefni í nýsköpun með myndböndum, verkefnum og verkstæðum sem styðja hugmyndavinnu og lausnaleit. 20. Sigurður Fjalar Jónsson (3.000.000 kr.) Stafræn lífsleikni á starfsbrautum Tölvufræði og upplýsingatækni fyrir framhaldsskóla Nemendamiðað, verklegt, fjölbreytt og sveigjanlegt námsefni þar sem markmiðið er að kenna nemendum á starfs- og sérnámsbrautum framhaldskólanna stafræna lífsleikni. 21. SM13 ehf. (2.550.000 kr.) Rafmagn í daglegu lífi – bók og verkefni fyrir yngsta stig Náttúrufræðigreinar fyrir grunnskóla, yngsta stig Námsefni sem kynnir rafmagn með skapandi verkefnum og eflir tæknilæsi og skilning barna. 22. Undralingur ehf. (3.000.000 kr.) Viðbótarþjálfun lestrarbóka Undralings Íslenska og tjáning fyrir grunnskóla, yngsta stig Miðar að því að efla læsi og málvitund barna með markvissri, stigskiptri lestrarþjálfun í tengslum við lifandi lestrarbækur. 23. Þórður Kristinsson (3.000.000 kr.) Fjölmiðlalæsi á tímum samfélagsmiðla og gervigreindar Samfélagsgreinar fyrir grunnskóla, efsta stig Þróar námsefni sem eflir fjölmiðlalæsi og gagnrýna hugsun í stafrænum heimi. 24. Þórunn Rakel Gylfadóttir (5.000.000 kr.) Segðu Eyjafjallajökull! Íslenska og tjáning fyrir grunnskóla, efsta stig Námsefni sem styður málleikni og skapandi tjáningu. Efnið byggir á reynslu ungs innflytjanda og eflir skilning, tungumálafærni og tengingu við fjölbreyttan bakgrunn nemenda. Tengdar fréttir Skólakerfið í vanda Birtingarmynd miklu stærri vanda „Grundvallaratriði fyrir íslenska þjóð“ Hefur greinilega farið úrskeiðis löngu áður Stjórnin „gjörsamlega að taka þetta mjög alvarlega“ Tuttugu ára tilmæli til ráðuneytisins enn í gildi » Fleiri tengdar fréttir Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Þuklaður á Íslandi en ekki í Róm Helgi nýr útibússtjóri á Sauðárkróki Sara Björk komin heim Minna fé og færri styrkir þrátt fyrir aukin gæði Engin svör frá ráðuneytinu Umræðan Evrópusambandið og átökin um auðlindirnar Þeir sem ekki eru verst settir Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert „Þetta er bara alveg hræðilegt“ Ekki frá höfundum komið Banaslys í umferðinni: Metinn óhæfur til aksturs „Grundvallaratriði fyrir íslenska þjóð“ Mest lesið Í gær Í vikunni Ósátt við að föður sínum sé blandað í umræðuna „Fólk á bara að hafa vit á þessu sjálft“ Dró sér tæpar sex milljónir sem bæjarfulltrúi Um 300 þegar fengið viðvörun Ekki frá höfundum komið Andlát: Þórir Lárusson Andlát: Vigfús Kr. Vigfússon „Ég er alltaf jákvæður. Ég vinn við það“ Livio gert að greiða Ingunni 25 milljónir Brotamenn með þunga dóma gætu fengið reynslulausn Banaslys í umferðinni: Metinn óhæfur til aksturs SS hyggst hætta halal-slátrunum Unglingsstúlka fannst meðvitundarlaus í Firði Þekkt nöfn í eigendahópi nýs kaffihúss Andlát: Ragna Ragnars Hefur mikla þýðingu fyrir kaupendur

Share this article