Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Brúa bilið milli sjónvarps og samfélagsmiðla

Read Full Article →

Ný auglýsingaleið verður frumsýnd á Íslandi í dag þegar Auglýsinga RÍL fer í fyrsta sinn í loftið á Sýn. Í tilkynningu segir að um sé að ræða nýja nálgun í íslenskri auglýsingamiðlun þar sem samfélagsmiðlaefni fyrirtækja fær nýtt líf í sjónvarpi. Fyrirtæki geta nú nýtt „reel- og story“-efni sem þau framleiða fyrir samfélagsmiðla og birt það í sjónvarpinu. Auglýsinga RÍL byggir á þeirri hugmynd að brúa bilið á milli samfélagsmiðla og sjónvarps. „Í mörg ár hafa íslensk fyrirtæki fjárfest sífellt stærri hluta markaðsfjár síns í erlendum samfélagsmiðlum. Nú er í fyrsta sinn komin leið til að nýta sama efni á íslenskum fjölmiðli, með tryggðu áhorfi og í faglegu sjónvarpsumhverfi,“ segir Sigmar Vilhjálmsson, sölustjóri hjá Sýn. Sjá einnig Skúli tvöfaldar stöðu sína í Sýn Auglýsinga RÍL er sérstaklega hannað fyrir það efni sem fyrirtæki eru nú þegar að framleiða fyrir Instagram, Facebook og TikTok. Efnið er sent inn í hefðbundnu 9:16 formi og aðlagað fyrir sjónvarpsbirtingar af sérfræðingum SÝN. Með tilkomu Auglýsinga RÍL skapast ný tenging á milli tveggja stærstu auglýsingamiðla samtímans. Fyrirtæki þurfa því ekki lengur að velja á milli samfélagsmiðla og sjónvarps og geta þess í stað gert bæði. Verkefnið hefur einnig stærri þýðingu fyrir íslenskt fjölmiðlaumhverfi en stór hluti þess auglýsingafjár sem varið er í samfélagsmiðla hefur hingað til runnið til alþjóðlegra tæknifyrirtækja erlendis. Með Auglýsinga RÍL fá fyrirtæki nú kost á að nýta hluta þess fjár í íslenskum fjölmiðlum og ná þannig til íslenskra neytenda í íslensku efnisumhverfi.

Share this article