Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Fisktækniskólinn aftur heim til Grindavíkur

Read Full Article →

Fisktækniskóli Íslands tekur á ný til starfa í Grindavík frá og með haustönn 2026. Skólinn flytur þá starfsemi sína úr Suðnesjabæ þar sem hann hefur verið í tvö ár. Samkomulag hefur náðst um leigu á skólahúsnæði í eigu Grindavíkurbæjar í Hópsskóla. Fisktækniskólinn gegnir mikilvægu hlutverki í íslenskum sjávarútvegi og hefur verið nátengdur Grindavík frá upphafi. Flutningurinn markar því mikilvægt skref í áframhaldandi uppbyggingu bæjarins og styrkir um leið mennta- og atvinnulíf á svæðinu. Hagnýtt nám á framhaldsskólastigi Nýverið útskrifaði skólinn 45 nemendur og áfram verður boðið upp á fjölbreytt og hagnýtt nám á framhaldsskólastigi sem tengist sjávarútvegi. Námið byggir á tveggja ára grunnnámi þar sem skipt er á milli skólanáms og starfsnáms á vinnustöðum, meðal annars í sjómennsku, fiskvinnslu og fiskeldi. Einnig verður áfram boðið upp á framhaldsnám í fiskeldi ásamt fjölbreyttum námskeiðum fyrir einstaklinga og fyrirtæki í sjávarútvegi og tengdum greinum. Flutningur Fisktækniskólans heim til Grindavíkur er jákvætt skref fyrir samfélagið allt og enn eitt merkið um aukna starfsemi og uppbyggingu í bænum.

Share this article