- What: Alleged breach of government ethics rules in Iceland
- Impact: May affect public trust in government operations
Innlent | mbl | 4.6.2026 | 14:16 Fór ráðuneytið á svig við siðareglur ríkisstjórnar? Hildur Sverrisdóttir, þingmaður og nýr oddviti Sjálfstæðisflokksins í Reykjavíkurkjördæmi suður. mbl.is/Karítas Setja bókamerki Tengdar fréttir Ísland og ESB Stjórnvöld nýti neyðar- og fullveldisrétt Íslands Ákall 18 forstjóra um sterkari rödd Íslands í ETS Mat ráðuneytis annað en höfunda Nigel Farage ólíklegur á fund Viðreisnar Segir stjórnvöld hafa sagt ósatt um skýrsluna » Fleiri tengdar fréttir Alþingi Segir stjórnvöld hafa sagt ósatt um skýrsluna Áslaug Arna tekur aftur sæti á Alþingi Bandarískir þingmenn einarðir stuðningsmenn NATO Langur hali útistandandi fyrir þinglok Ógnar íslensku atvinnulífi » Fleiri tengdar fréttir Hildur Sverrisdóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, lét í veðri vaka í óundirbúnum fyrirspurnartíma á Alþingi í dag að Stjórnarráð Íslands hefði farið á svig við siðareglur ríkisstjórnarinnar í tilkynningu um niðurstöður skýrslu erlendra sérfræðinga um gjaldmiðlamál Íslands. Sagði hún mikið áhyggjuefni að í tilkynningunni væru niðurstöður skýrslunnar orðaðar meira afgerandi en í sjálfri skýrslunni. Frétt af mbl.is Mat ráðuneytis annað en höfunda Kostnaðurinn „kunni að vera“ meiri „Ég vil af því tilefni, frú forseti, drepa niður í siðareglum ríkisstjórnarinnar. Þar segir að ráðherra skuli beita sér fyrir því að upplýsingum sé miðlað af nákvæmni, heilindum og með skýrum hætti. Enn fremur segir að ráðherra skuli hafa frumkvæði að því að leiðrétta eins fljótt og auðið er rangar eða villandi upplýsingar sem og hvers kyns misskilning er varðar málefni sem heyrir undir ráðherra. Í ljósi þess að siðareglur þessar voru undirritaðar af forsætisráðherra, Kristrúnu Frostadóttur, þann 11. mars 2025, vil ég spyrja hæstvirtan forsætisráðherra: Hvernig stenst kynning Stjórnarráðsins á niðurstöðum þessarar mikilvægu skýrslu siðareglur ríkisstjórnarinnar?“ Kristrún svaraði því til að það hefði ekki verið verkefni skýrsluhöfunda að gera tæmandi samanburð á því hver kostnaður og ábati væri af því að halda úti sjálfstæðum gjaldmiðli, enda liggi fyrir að það sé alltaf einhvers konar hagsmunamat. Kristrún sagði skýrt koma fram í skýrslunni að kostnaður við sjálfstæðan gjaldmiðil væri verulegur og að hann „kunni að vera“ meiri en sá ábati sem því fylgir, það megi sjá í lokaorðum skýrslunnar. Sagðist hún að engu leyti telja að málið snerti siðareglur ríkisstjórnarinnar. Frétt af mbl.is Segir stjórnvöld hafa sagt ósatt um skýrsluna Forsætisráðherra tæki ekki undir með fjármálaráðuneyti Hildur tók þá aftur til máls og sagðist heyra að forsætisráðherra tæki ekki undir niðurstöðu fjármálaráðuneytisins og vísaði þar til orðalags forsætisráðherra um að kostnaður við sjálfstæðan gjaldmiðil „kunni að vera“ meiri en sá ábati sem því fylgir en í tilkynningu Stjórnarráðsins segir að helstu niðurstöður skýrslunnar séu að kostnaðurinn við íslensku krónuna sé verulegur og „líklega“ að jafnaði meiri en sá ábati sem fylgir sjálfstæðum gjaldmiðli. Í viðtali í Morgunblaðinu í dag sagði Daði Már að skýrsluhöfundar hefðu unnið algjörlega sjálfstætt og án afskipta ráðuneytisins. Þannig gæti mat ráðuneytisins á þeirra greiningu verið annað en þeirra mat á eigin greiningu eða þeirra framsetning á eigin niðurstöðum. Sagði hann fjármálaráðuneytið vita ákveðinn hluta kostnaðarins og að hann sjálfur telji þann kostnað óásættanlega háan. Hildur sagði vissulega rétt að niðurstaða skýrslunnar væri að kostir og gallar væru við hvort tveggja en það væri þó ekki það sem fjármálaráðuneytið segði. Spurði hún forsætisráðherra hvort hann ætlaði að leiðrétta málflutning fjármálaráðherra eins og gerð væri krafa um í c-lið 6. gr. siðareglna ríkisstjórnarinnar. Frétt af mbl.is Röng túlkun ráðherra „Bara enn eitt leikritið?“ „Ég heyri að forsætisráðherra er sammála því að þetta sé ekki niðurstaða skýrslunnar og það verður þá væntanlega leiðrétt. Eða á allt að fá að ganga upp í pólitískum tilgangi og pólitískri vegferð ríkisstjórnarinnar? Meira að segja siðareglurnar skipta ekki máli. Hér undir er eitt stærsta hagsmunamál þjóðarinnar. Það segir skýrt í siðareglum ríkisstjórnarinnar að ráðherrar hafi þá skyldu að koma fram með réttar upplýsingar. Ef þær eru villandi, óvart eða ekki, þá ber að leiðrétta þær. Eru siðareglurnar bara enn eitt leikritið af hálfu þessarar ríkisstjórnar? Er ekkert heilagt?“ spurði Hildur. Kristrún svaraði því þá að fjármálaráðuneytið hefði sagt að líklega væri kostnaðurinn af krónunni að jafnaði meiri en ábatinn. „Þetta er rangtúlkun á þessari fréttatilkynningu. Það gefur að skilja þegar orð eins og „líklega“ og „að jafnaði“ eru notuð að þar er svigrúm fyrir fólk til að hafa sínar túlkanir á þeim niðurstöðum. Ég hef verið frekar skýr í mínu máli þegar kemur að kostnaði við íslensku krónuna. Ég veit alveg að það eru ákveðnir gallar sem fylgja því að fara inn í fastgengiskerfi. En ég veit líka að það er gríðarlegur kostnaður við núverandi kerfi og því er varpað fram í þessari skýrslu. Ég held að það færi betur á því að við eyddum tíma í að ræða efni skýrslunnar frekar en staka framsetningu þar sem að mínu mati er verið að snúa út úr og gera of mikið úr, og býsna langsótt að fara að tengja þetta við siðareglur. Við erum öll hér með getu til að taka málefnalegan þátt í þessari umræðu og lesa okkur til gagns þegar kemur að þessari skýrslu.“ Tengdar fréttir Ísland og ESB Stjórnvöld nýti neyðar- og fullveldisrétt Íslands Ákall 18 forstjóra um sterkari rödd Íslands í ETS Mat ráðuneytis annað en höfunda Nigel Farage ólíklegur á fund Viðreisnar Segir stjórnvöld hafa sagt ósatt um skýrsluna » Fleiri tengdar fréttir Alþingi Segir stjórnvöld hafa sagt ósatt um skýrsluna Áslaug Arna tekur aftur sæti á Alþingi Bandarískir þingmenn einarðir stuðningsmenn NATO Langur hali útistandandi fyrir þinglok Ógnar íslensku atvinnulífi » Fleiri tengdar fréttir Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » 2.000 nettengingar í Breiðholti í ólagi Fór ráðuneytið á svig við siðareglur ríkisstjórnar? Fimmtán laxa opnunarvakt í Norðurá Lilibet stal senunni á afmælisdeginum Beri „óþjóðrækni“ vitni Umræðan Evran er ekki töfralausn Engan afslátt Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Nigel Farage ólíklegur á fund Viðreisnar Verður ekki leyst með hernaði Erum augu og eyru bandalagsins Evruskýrslan „segir bara hálfa sögu“ Mest lesið Í gær Í vikunni SS hyggst hætta halal-slátrunum Andlát: Ragna Ragnars Hefur mikla þýðingu fyrir kaupendur fasteigna Þekkt nöfn í eigendahópi nýs kaffihúss Er bæði eyðilagður og sorgmæddur Vill skoða sölu eða niðurlagningu Sorpu Stærstu skjálftar síðan 2008 Sektuð fyrir að kalla dómara „lausláta mellu“ Stjórnvöld nýti neyðar- og fullveldisrétt Íslands Hundrað skjálftar mælst við Þórisjökul Áslaug Arna hættir á Alþingi Íslendings saknað á Taílandi Þota Icelandair föst á Tenerife eftir árekstur Andlát: Steingrímur Ari Arason Tekist á um hvort hundur megi drekka úr vatnshana Hegðunar- og agavandamál áberandi Vara við smáskilaboðum: Ekki ýta á hlekkinn Flytja fanga úr landi og losa um tugi rýma Deilan snúi ekki að launakjörum: Áratuga kverkatak Íslendingur vann 10 milljónir í Víkinglottó Snarpur skjálfti á Mosfellsheiði Fjölskyldufaðir hætt kominn eftir rof á pakkningum Lést við barnsburð á Landspítalanum Áslaug Arna hættir á Alþingi Andlát: Margrét Jónsdóttir Verulegur munur á árangri eftir grunnskólum Myndband: Handtaka í Hveragerði Íbúar skelkaðir eftir dularfullt lágflug Loka svæðinu eftir að víðfeðmt sprungunet var afhjúpað Íslendings saknað á Taílandi Nýjast á mbl.is » 2.000 nettengingar í Breiðholti í ólagi Fór ráðuneytið á svig við siðareglur ríkisstjórnar? Fimmtán laxa opnunarvakt í Norðurá Lilibet stal senunni á afmælisdeginum Beri „óþjóðrækni“ vitni Umræðan Evran er ekki töfralausn Engan afslátt Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Nigel Farage ólíklegur á fund Viðreisnar Hundrað skjálftar mælst við Þórisjökul Khamenei segir þingsályktunina þungt högg Mat ráðuneytis annað en höfunda Mest lesið Í gær Í vikunni SS hyggst hætta halal-slátrunum Andlát: Ragna Ragnars Hefur mikla þýðingu fyrir kaupendur fasteigna Þekkt nöfn í eigendahópi nýs kaffihúss Er bæði eyðilagður og sorgmæddur Vill skoða sölu eða niðurlagningu Sorpu Stærstu skjálftar síðan 2008 Sektuð fyrir að kalla dómara „lausláta mellu“ Stjórnvöld nýti neyðar- og fullveldisrétt Íslands Hundrað skjálftar mælst við Þórisjökul Áslaug Arna hættir á Alþingi Íslendings saknað á Taílandi Þota Icelandair föst á Tenerife eftir árekstur Andlát: Steingrímur Ari Arason Tekist á um hvort hundur megi drekka úr vatnshana Hegðunar- og agavandamál áberandi Vara við smáskilaboðum: Ekki ýta á hlekkinn Flytja fanga úr landi og losa um tugi rýma Deilan snúi ekki að launakjörum: Áratuga kverkatak Íslendingur vann 10 milljónir í Víkinglottó Snarpur skjálfti á Mosfellsheiði Fjölskyldufaðir hætt kominn eftir rof á pakkningum Lést við barnsburð á Landspítalanum Áslaug Arna hættir á Alþingi Andlát: Margrét Jónsdóttir Verulegur munur á árangri eftir grunnskólum Myndband: Handtaka í Hveragerði Íbúar skelkaðir eftir dularfullt lágflug Loka svæðinu eftir að víðfeðmt sprungunet var afhjúpað Íslendings saknað á Taílandi