Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Kvika segir upp 11

  • What: Kvika bank announces staff reductions and financial adjustments
  • Impact: Affected bank operations and financial performance
Read Full Article →

Kvika banki hefur að undanförnu ráðist í hagræðingaraðgerðir sem fela í sér að stöðugildum hjá bankanum hefur fækkað um samtals 18 á árinu. „Í dag áttu sér stað 11 sársaukafullar uppsagnir og jafnframt hefur verið tekin ákvörðun um að ráða ekki í stöður sem hafa losnað og munu losna á næstu mánuðum. Fækkun starfsfólks hefur náð til nánast allra eininga bankans,“ segir í tilkynningu Kviku til Kauphallarinnar. Gert er ráð fyrir að þessi fækkun stöðugilda muni leiða til kostnaðarlækkunar sem nemur tæplega 400 milljónum króna á ársgrundvelli. Einskiptiskostnaður vegna uppsagna nemur rúmlega 100 milljónum króna, sem gjaldfærðar verða á öðrum fjórðungi ársins. Kvika segir að þrátt fyrir umtalsverðan vöxt á flestum sviðum bankans kalli breytt og krefjandi umhverfi á stöðugt aðhald í rekstri, sem þessar breytingar endurspegla. Samkvæmt uppgjörum Kviku voru stöðugildi hjá samstæðunni 250 í lok árs 2025 og 248 í lok fyrsta ársfjórðungs. Fækkun stöðugilda í ár samsvarar því um 7% af heildar stöðugildum bankans.

Share this article