Delcy Rodríguez, starfandi forseti Venesúela, er nú stödd á Indlandi þar sem hún mun funda með Narendra Modi forsætisráðherra Indlands í dag. Á vef BBC segir að leiðtogarnir muni funda um viðskipti, fjárfestingar, heilbrigðismál og endurnýjanlega orku. Sérfræðingar búast hins vegar við því að olíumál verði í brennidepli en Indland er þriðja stærsta olíuinnflutningsland heims og hefur þjóðin stóraukið kaup sín á venesúelskri hráolíu undanfarna mánuði. Indland flytur inn rúmlega 90% af allri þeirri olíu sem þjóðin notar og fer um helmingur þess, eða um 2,5 til 2,7 milljónir tunna á dag, í gegnum Hormússundið. Sú siglingaleið er hins vegar lokuð vegna átakanna í Miðausturlöndum. Sjá einnig Olíuverð hækkað um 7% í dag Ástandið hefur gefið Venesúela, sem var fimmti stærsti hráolíubirgir Indlands í maí, meira vægi. Venesúela útvegaði Indlandi um 266 þúsund tunnur á dag, eða um 5,2% af heildarinnflutningi þess í síðasta mánuði. Aðeins Rússland, Sameinuðu arabísku furstadæmin, Sádí-Arabía og Brasilía útveguðu Indverjum meiri olíu samkvæmt greiningarfyrirtækinu Kpler. Þetta er í sjötta sinn sem Rodríguez heimsækir Indland og telja sérfræðingar að Venesúela gæti gefið Indverjum aukið tækifæri til að dreifa orkuinnflutningi sínum út fyrir Mið-Austurlönd. Það myndi einnig samræmast óskum Bandaríkjastjórnar um að Indverjar dragi úr olíuinnflutningi frá Rússlandi.