Í nýrri þjóðhagsspá Íslandsbanka er spáð því að peningastefnunefnd Seðlabankans muni hækka stýrivexti í ágúst, sem yrði þá þriðja vaxtahækkun Seðlabankans í röð. „Í kjölfarið verði stýrivextirnir óbreyttir fram á fyrsta fjórðung næsta árs en þá hefjist hægfara vaxtalækkunarferli sem standa mun fram á árið 2028. Því vaxtalækkunarferli gæti lokið með stýrivextina í kring um 6,0% ef efnahags- og verðbólguþróun verður í takti við spár okkar,“ segir í þjóðhagsspánni. Greining Íslandsbanka telur að jafnvægisstig raunvaxta í hagkerfinu á næstunni verði hærra en flestir væntu fyrir nokkrum misserum. Það sé í takti við alþjóðlega þróun en skýrist einnig af þrálátari verðbólgu og meiri seiglu í hagkerfinu en útlit var fyrir. „Langtímavextir eru enn háir og hafa þokast upp það sem af er ári. Miðað við vaxtaferla ríkisbréfa eru 10 ára óverðtryggðir grunnvextir nú u.þ.b. 6,9% og samsvarandi verðtryggðir vextir 2,9%. Raunvaxtastig í landinu er því enn allhátt á flestalla mælikvarða.“ Bankinn áætlar að langtíma nafnvextir gætu lækkað í 6,0% á spátímanum og raunvextir í 2,5%. Langtíma verðbólguálag yrði samkvæmt því 3,5% samanborið við tæplega 4,0% álag um þessar mundir. Mynd tekin úr þjóðhagsspánni. Líklegt að innflutt verðbólga aukist Verðbólga hefur aukist talsvert síðasta hálfa árið og mældist 5,1% í maí. Greining Íslandsbanka segir hluta af aukinni verðbólgu mega rekja til hækkunar olíuverðs en innlendir þættir séu þó áfram meginástæða verðbólgunnar um þessar mundir. „Mikil óvissa ríkir um umfang frekari hækkana í kjölfar átakanna, en líklegt er að innflutt verðbólga aukist á næstunni. Við gerum ráð fyrir að þrýstingur skili sér smám saman inn í verðlag, með þeim afleiðingum að verðbólga verði í kringum 5% á þessu ári.“ Spáin gerir ráð fyrir að forsenduákvæði kjarasamninga muni bresta í haust en að kjarasamningar á almennum vinnumarkaði muni þó halda. Líklega verði þó samið um lítillega meiri launahækkanir á næsta ári fyrir vikið. Þjóðhagsspáin gerir ráð fyrir að laun muni hækka um 6,2% í ár, 5,7% árið 2027 og 4,9% árið 2028.