Fjármálastöðugleikanefnd hefur ákveðið að millibankagreiðslukerfi Seðlabankans og verðbréfauppgjörskerfi Nasdaq skuli teljast kerfislega mikilvægir og þess eðlis að röskun á starfsemi þeirra geti haft áhrif á fjármálastöðugleika. Þá teljist innlánakerfi Reiknistofu bankanna, greiðslukerfi Reiknistofu bankanna og rafræn auðkenning í fjármálaþjónustu hjá Auðkenni ehf. sem kjarnainnviðir fjármálakerfisins. Þetta kemur fram í yfirlýsingu fjármálastöðugleikanefndar. Nefndin segir áhættu í rekstri fjármálainnviða hafa aukist. Vaxandi netógn hafi fylgt tæknivæðingu, þróun í gervigreind og óróa á alþjóðavettvangi. „Mikilvægt er að Seðlabanki Íslands, önnur stjórnvöld og aðilar á fjármálamarkaði vinni markvisst saman að því að draga úr áhættu og að treysta viðbúnað svo hægt verði að bregðast skjótt og örugglega við alvarlegum rekstraratvikum og tryggja samfellu nauðsynlegrar fjármálaþjónustu. Samhæfður viðbúnaður gegn rekstraratvikum er grundvöllur fjármálastöðugleika.” Lánveitendur þurfi að að gæta að áhættu í byggingageiranum Nefndin segir að lánveitendur þurfi að gæta að aukinni áhættu í byggingageiranum og ítrekaði þar með skilaboð frá fyrri fundi sínum. „Húsnæðisverð hefur lækkað að raunvirði, íbúðum á sölu hefur fjölgað og lengur tekur að selja eignir, sérstaklega nýjar íbúðir. Skuldir fyrirtækja í byggingastarfsemi hafa vaxið síðustu misseri og merki eru um vaxandi vanskil þótt þau séu enn tiltölulega lítil.“ Sjá einnig Lýsa áhyggjum af íbúðamarkaðnum Bankarnir komu vel út úr álagsprófi Fjármálastöðugleikanefnd segir fjármálakerfið hér á landi traust og vel í stakk búið til að mæta ófyrirséðum áföllum. Fjárhagsstaða kerfislega mikilvægra banka sé sterk og aðgengi þeirra að markaðsfjármögnun greitt. „Viðvarandi óvissa í alþjóðlegum efnahagsmálum, versnandi verðbólguhorfur og háir vextir gætu reynt á viðnámsþrótt fjármálakerfisins á komandi misserum.” Þá bendi álagspróf Seðlabankans til þess að stóru bankarnir þrír geti staðið af sér verulegt áfall án þess að skerða um of framboð lánsfjár til viðskiptavina. Nefndin segir kortagreiðslur í netleysi vera þýðingarmikill þáttur í viðnámsþrótti greiðslumiðlunar. Sú lausn verði innleidd um mitt ár. „Fjármálastöðugleikanefnd leggur áherslu á að fjölga þurfi greiðsluleiðum með innviðum fyrir nýjar greiðslulausnir, svo sem greiðslur með millifærslum. Fjölbreytni í greiðslumiðlun eykur seiglu fjármálakerfisins og dregur úr líkum á víðtækri röskun við alvarleg rekstraratvik.”