Innlent | mbl | 2.6.2026 | 16:10 „Þetta eru auðvitað kaflaskil í mínu lífi“ Heiða Björg Hilmisdóttir. mbl.is/Hulda Margrét Setja bókamerki Tengdar fréttir Sveitarstjórnarkosningar Vilja ljúka 190 verkefnum á fjórum árum Hildur: „Fyrst og fremst spennt“ Fólk vill „burt með þetta rugl“ Beint: Fyrsti fundur nýrrar borgarstjórnar Endurskoða Suðurlandsbraut strax » Fleiri tengdar fréttir Heiða Björg Hilmisdóttir segir það ákveðin kaflaskil að láta af embætti borgarstjóra. Henni líst þó vel á Hildi Björnsdóttur sem nýjan borgarstjóra Reykvíkinga og segir að hún muni gefa Hildi öll þau ráð sem getur, enda sé starfið umfangsmikið. Heiða afhenti Hildi formlega lyklavöldin á skrifstofu borgarstjóra fyrr í dag. „Þetta eru auðvitað kaflaskil í mínu lífi, en ég er bara mjög stolt af mínum verkefnum og verkum okkar, bæði síðasta meirihluta og síðustu ár, segir Heiða í samtali við mbl.is. „Ég held að það sé bara venjulegt að stundum séu skipti. Mér líst vel á Hildi og ég held að hún eigi eftir að standa sig vel í þessu hlutverki og við munum bara veita henni ráð og aðhald eftir því sem þarf.“ Frétt af mbl.is Hildur: „Fyrst og fremst spennt“ Heiða afhenti Hildi lyklavöldin á skrifstofu borgarstjóra fyrr í dag. mbl.is/Hulda Margrét Þetta er mjög umfangsmikið hlutverk Þá segist Heiða glöð fyrir hönd Reykvíkinga að sú sem taki nú við stjórnartaumunum hafi góða reynslu úr borgarstjórn, en Hildur sat þar í átta ár. „Ég held að það sé mikilvægt. Þetta er mjög umfangsmikið hlutverk. Það kom mér meira að segja á óvart, hafandi verið borgarfulltrúi í þó nokkur ár áður en ég varð borgarstjóri, hversu umfangsmikið hlutverkið er. Ég mun bara veita henni öll þau ráð sem ég mögulega get. Það eru auðvitað ýmis starfsmannamál sem ég þarf að setja hana inn í sem framkvæmdastjóri sem er að láta af störfum.“ Ágætt að byrja á breytingum Spurð hvernig henni lítist á þau verk sem hinn nýi meirihluti hefur boðað segist Heiða ekki hafa náð að kynna sér samstarfssáttmálann í þaula enn, enda um langan lista að ræða. „En það sem við erum með hérna í dag á borgarstjórnarfundinum er fyrst og fremst bara fjölgun ráða og nefnda og við lögðum fram tillögu um það að það yrði allavega svona aðeins kostnaðargreint þannig að við myndum átta okkur á hvað það myndi þýða. Mér skilst að meirihlutinn ætli að samþykkja það,“ segir Heiða „Ég held að það sé ágætt að byrja nýtt kjörtímabil á því að gera breytingar. Ég í rauninni styð það, en svo verðum við að sjá hvort ég styðji akkúrat breytingarnar sem þau ætla að gera,“ bætir hún við kímin. Frétt af mbl.is Vilja ljúka 190 verkefnum á fjórum árum Alltaf bjartsýn Ertu bjartsýn fyrir komandi kjörtímabil? „Já, já. Ég er alltaf bjartsýn og maður náttúrulega má ekki vera hér ef maður er með einhver bönn og leiðindi. Við erum að vinna hérna fyrir borgarbúa, við tökum það að okkur. Við eigum að vera að vinna að góðum málefnum og auðvitað þurfum við að koma okkar sjónarmiðum vel á framfæri og eiga samtöl. En borgarstjórn er ekki staður til þess að vera einhvern veginn á móti öllu. Það finnst mér ekki rétt og ég mun ekki vera þannig í minnihluta.“ Tengdar fréttir Sveitarstjórnarkosningar Vilja ljúka 190 verkefnum á fjórum árum Hildur: „Fyrst og fremst spennt“ Fólk vill „burt með þetta rugl“ Beint: Fyrsti fundur nýrrar borgarstjórnar Endurskoða Suðurlandsbraut strax » Fleiri tengdar fréttir Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » ESB bætir við bannlistann „Krabbameinsgreindum er að fjölga“ Svo góðar að það skiptir litlu máli hvað fer fyrst ofan á Besti árangurinn í tæpan áratug „Þetta eru auðvitað kaflaskil í mínu lífi“ Umræðan Af hverju er ESB svona vinsælt? Krónan kostar Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Hildur: „Fyrst og fremst spennt“ Stefna að upptöku evru „Skelfilega erfið mál“ Nýr langtímasamningur við Ljósið í höfn Mest lesið Í gær Í vikunni Andlát: Margrét Jónsdóttir Margir kvarta undan tvöfaldri rukkun Mennirnir ekki tengdir fjölskylduböndum „Reta er bara Ozempic á sterum“ Segir lyfin geta dregið fólk til dauða Tveir skólar sameinast í haust Vilja grafa upp bein Jónasar Hallgrímssonar Markaðsvirði Oculis hrynur „Skelfilega erfið mál“ Margt á huldu um kjör flugmanna Icelandair Snarpur skjálfti á Mosfellsheiði Flugmaður Icelandair hjólar í Boga Nafn mannsins sem lést á Hólmsheiði Braut gegn stúlku sem lá á bráðamóttöku Mótmælendur öskruðu og blístruðu á þingheim Flugi Icelandair aflýst vegna mönnunarvanda Jafnlaunavottun lögð niður Kort: Hrinan á svæði þar sem líkur eru á gosupptökum „Ætlaði aldrei að eignast nýja vini“ Útskýring fengin á lágfluginu Snarpur skjálfti á Mosfellsheiði Grunnskólakennari sakaður um að maka saur Fjölskyldufaðir hætt kominn eftir rof á pakkningum Lést við barnsburð á Landspítalanum Einn ráðherra á meðal launahæstu ríkisstarfsmanna Boðar fjöldaúrsagnir úr flokknum Verulegur munur á árangri eftir grunnskólum Myndband: Handtaka í Hveragerði Andlát: Margrét Jónsdóttir Íbúar skelkaðir eftir dularfullt lágflug Nýjast á mbl.is » ESB bætir við bannlistann „Krabbameinsgreindum er að fjölga“ Svo góðar að það skiptir litlu máli hvað fer fyrst ofan á Besti árangurinn í tæpan áratug „Þetta eru auðvitað kaflaskil í mínu lífi“ Umræðan Af hverju er ESB svona vinsælt? Krónan kostar Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Engin töfralausn til í gjaldmiðlamálum „Skelfilega erfið mál“ Endurskoða Suðurlandsbraut strax Meiri svartsýni í fréttum en raunveruleikinn sýnir Mest lesið Í gær Í vikunni Andlát: Margrét Jónsdóttir Margir kvarta undan tvöfaldri rukkun Mennirnir ekki tengdir fjölskylduböndum „Reta er bara Ozempic á sterum“ Segir lyfin geta dregið fólk til dauða Tveir skólar sameinast í haust Vilja grafa upp bein Jónasar Hallgrímssonar Markaðsvirði Oculis hrynur „Skelfilega erfið mál“ Margt á huldu um kjör flugmanna Icelandair Snarpur skjálfti á Mosfellsheiði Flugmaður Icelandair hjólar í Boga Nafn mannsins sem lést á Hólmsheiði Braut gegn stúlku sem lá á bráðamóttöku Mótmælendur öskruðu og blístruðu á þingheim Flugi Icelandair aflýst vegna mönnunarvanda Jafnlaunavottun lögð niður Kort: Hrinan á svæði þar sem líkur eru á gosupptökum „Ætlaði aldrei að eignast nýja vini“ Útskýring fengin á lágfluginu Snarpur skjálfti á Mosfellsheiði Grunnskólakennari sakaður um að maka saur Fjölskyldufaðir hætt kominn eftir rof á pakkningum Lést við barnsburð á Landspítalanum Einn ráðherra á meðal launahæstu ríkisstarfsmanna Boðar fjöldaúrsagnir úr flokknum Verulegur munur á árangri eftir grunnskólum Myndband: Handtaka í Hveragerði Andlát: Margrét Jónsdóttir Íbúar skelkaðir eftir dularfullt lágflug