Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

„Skelfilega erfið mál“

Read Full Article →

Innlent | mbl | 2.6.2026 | 14:41 „Skelfilega erfið mál“ Kristrún Frostadóttir segir Bakkakotsmálin eitt af því erfiðasta sem hún hafi staðið frammi fyrir á tíma sínum sem forsætisráðherra. Morgunblaðið/Eggert Atli Steinn Guðmundsson [email protected] Setja bókamerki Tengdar fréttir Bakkakot Brýnt að fá niðurstöður sem fyrst Rannsóknarnefnd um Bakkakot í smíðum Fyrrverandi húsfreyja á Bakkakoti er látin Athuga eftirlit með börnum í fóstri 25 milljóna króna styrkur frá ríkinu » Fleiri tengdar fréttir „Í ársbyrjun ákváðum við í ríkisstjórninni að fara í fjölþættar aðgerðir í tengslum við Bakkakotsmálið,“ segir Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra í samtali við mbl.is en ríkisstjórnin samþykkti á fundi sínum í morgun frumvarp um skipun rannsóknarnefndar sem fara mun ofan í saumana á aðstæðum barna sem vistuð voru á einkaheimilum fyrir tilstilli stjórnvalda. Auk þess stendur til að leggja fram frumvarp um sanngirnisbætur í haust. Kristrún segir fyrstu aðgerð í þessari vegferð hafa verið að veita þeim, sem vistaðir voru á fósturheimilinu Bakkakoti á Suðurlandi á sínum tíma, sálrænan stuðning sem nú sé hafinn. Frétt af mbl.is Brýnt að fá niðurstöður sem fyrst „Svo var ráðist í að gera úttekt á núverandi barnaverndarkerfi sem Gæða- og eftirlitsstofnun velferðarmála er nú með í vinnslu. Einnig lá alltaf fyrir að til stæði að koma með tvö frumvörp, annars vegar núna fyrir þinglok um það sem snýr að heimild til rannsóknarnefndar og svo það sem við stefnum á að leggja fram í haust sem er frumvarp um almennar sanngirnisbætur,“ segir ráðherra. Gefist færi á að segja sína sögu Með fyrra frumvarpinu sé rannsóknarnefnd gert kleift að taka fyrir mál á borð við Bakkakotsmálið og fleiri mál þar sem grunur leiki á að óviðunandi meðferð á börnum hafi átt sér stað „og í raun og veru bara að gefa viðkomandi einstaklingum færi á að segja sína sögu í öruggu umhverfi og rannsaka það sem farið hafi úrskeiðis,“ segir Kristrún og er spurð út í sálræna stuðninginn, skimanir á Landspítalanum sem leitt hafi til þess að fólki sé vísað í viðunandi meðferð. Frétt af mbl.is Rannsóknarnefnd um Bakkakot í smíðum „Mér skilst að um 30 einstaklingar hafi nýtt sér þessa skimun á vegum Landspítala og að um helmingi þeirra hafi verið vísað áfram í langvarandi meðferð, það er að segja ítarlegri meðferð eftir að það lá fyrir hvernig best væri að takast á við þeirra áskoranir. Þannig að þetta hefur gefist vel og ég held að þarna séum við komin inn á eitthvað vegna þess að það verður án efa og eðlilega umræða í haust þegar við leggjum fram frumvarpið um sanngirnisbæturnar,“ svarar Kristrún. Því miður ekki einsdæmi Skipt geti máli fyrir þolendur að fá viðurkenningu á sínu máli og auðvitað líka að fá bætur en í mörgum tilfellum geti það skipt máli fyrir fólk að fá aðstoð vegna andlegrar líðanar sinnar, tækifæri til að vinna úr sínu máli og ákveðinn forgang er að því komi. „Við höfum áhuga á því að skoða þetta fram á veginn, líka sem viðbrögð stjórnvalda við eldri málum og eins ef mál nær okkur í tíma koma upp,“ segir Kristrún. Hvað finnst þér sjálfri um þessar uppljóstranir og upplýsingar sem nú hafa komið fram? „Þetta eru auðvitað alveg skelfilega erfið mál,“ svarar ráðherra, „og líklega eitt af því erfiðasta sem ég hef tekist á við í þessu starfi, að mæta þessum mönnum [brotaþolum]. Þetta er því miður ekki einsdæmi og svona mál hafa reglulega komið upp. Það er ekki útilokað að fleiri mál muni koma upp eða ekki koma upp,“ heldur hún áfram. Telur Kristrún það mikilvægast fyrir þá sem nú hafa stigið það stóra skref að segja sína sögu – fyrst og fremst fyrir aðra, til að skapa umhverfi fyrir aðra til að segja frá sínum málum – að tekið sé mark á þeim strax, á þá hlustað og þeim veitt viðhlítandi meðferð. „Það er mín von að með þessum úrræðum sem voru strax virkjuð, og þessu frumvarpi um rannsóknarheimild, sem vonandi verður klárað strax á næstu dögum eða fyrir þinglok, og svo hinu frumvarpinu, sýnum við að við tökum þessu alvarlega, viljum hlusta á þessa einstaklinga og finna hvernig við getum gert upp þennan tíma en líka auðvitað fundið glufur sem eru án efa enn til staðar í einhverjum kerfum,“ segir Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra að lokum. Tengdar fréttir Bakkakot Brýnt að fá niðurstöður sem fyrst Rannsóknarnefnd um Bakkakot í smíðum Fyrrverandi húsfreyja á Bakkakoti er látin Athuga eftirlit með börnum í fóstri 25 milljóna króna styrkur frá ríkinu » Fleiri tengdar fréttir Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Áfram lækkar hlutabréfaverð Oculis Frá Liverpool til Madrídar Frederiksen heldur áfram um stjórnartaumana „Skelfilega erfið mál“ Vilja ljúka 190 verkefnum á fjórum árum Umræðan Af hverju er ESB svona vinsælt? Krónan kostar Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Frederiksen heldur áfram um stjórnartaumana Nýjar loftmyndir sýna Ölfusárbrú taka á sig mynd Fyrsti fundur nýrrar borgarstjórnar Vilja grafa upp bein Jónasar Hallgrímssonar Mest lesið Í gær Í vikunni Andlát: Margrét Jónsdóttir Margir kvarta undan tvöfaldri rukkun Mennirnir ekki tengdir fjölskylduböndum „Reta er bara Ozempic á sterum“ Segir lyfin geta dregið fólk til dauða Tveir skólar sameinast í haust Vilja grafa upp bein Jónasar Hallgrímssonar Markaðsvirði Oculis hrynur Margt á huldu um kjör flugmanna Icelandair Skýrt umboð til breytinga Snarpur skjálfti á Mosfellsheiði Flugmaður Icelandair hjólar í Boga Nafn mannsins sem lést á Hólmsheiði Braut gegn stúlku sem lá á bráðamóttöku Mótmælendur öskruðu og blístruðu á þingheim Flugi Icelandair aflýst vegna mönnunarvanda Jafnlaunavottun lögð niður Kort: Hrinan á svæði þar sem líkur eru á gosupptökum „Ætlaði aldrei að eignast nýja vini“ Útskýring fengin á lágfluginu Snarpur skjálfti á Mosfellsheiði Grunnskólakennari sakaður um að maka saur Fjölskyldufaðir hætt kominn eftir rof á pakkningum Lést við barnsburð á Landspítalanum Einn ráðherra á meðal launahæstu ríkisstarfsmanna Boðar fjöldaúrsagnir úr flokknum Verulegur munur á árangri eftir grunnskólum Myndband: Handtaka í Hveragerði Íbúar skelkaðir eftir dularfullt lágflug Loka svæðinu eftir að víðfeðmt sprungunet var afhjúpað Nýjast á mbl.is » Áfram lækkar hlutabréfaverð Oculis Frá Liverpool til Madrídar Frederiksen heldur áfram um stjórnartaumana „Skelfilega erfið mál“ Vilja ljúka 190 verkefnum á fjórum árum Umræðan Af hverju er ESB svona vinsælt? Krónan kostar Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Rúmlega 1.100 skjálftar: Dregið hefur úr virkninni Nýjar loftmyndir sýna Ölfusárbrú taka á sig mynd Endurskoða Suðurlandsbraut strax Frederiksen heldur áfram um stjórnartaumana Mest lesið Í gær Í vikunni Andlát: Margrét Jónsdóttir Margir kvarta undan tvöfaldri rukkun Mennirnir ekki tengdir fjölskylduböndum „Reta er bara Ozempic á sterum“ Segir lyfin geta dregið fólk til dauða Tveir skólar sameinast í haust Vilja grafa upp bein Jónasar Hallgrímssonar Markaðsvirði Oculis hrynur Margt á huldu um kjör flugmanna Icelandair Skýrt umboð til breytinga Snarpur skjálfti á Mosfellsheiði Flugmaður Icelandair hjólar í Boga Nafn mannsins sem lést á Hólmsheiði Braut gegn stúlku sem lá á bráðamóttöku Mótmælendur öskruðu og blístruðu á þingheim Flugi Icelandair aflýst vegna mönnunarvanda Jafnlaunavottun lögð niður Kort: Hrinan á svæði þar sem líkur eru á gosupptökum „Ætlaði aldrei að eignast nýja vini“ Útskýring fengin á lágfluginu Snarpur skjálfti á Mosfellsheiði Grunnskólakennari sakaður um að maka saur Fjölskyldufaðir hætt kominn eftir rof á pakkningum Lést við barnsburð á Landspítalanum Einn ráðherra á meðal launahæstu ríkisstarfsmanna Boðar fjöldaúrsagnir úr flokknum Verulegur munur á árangri eftir grunnskólum Myndband: Handtaka í Hveragerði Íbúar skelkaðir eftir dularfullt lágflug Loka svæðinu eftir að víðfeðmt sprungunet var afhjúpað

Share this article