- What: New cybersecurity solution deployed to protect sensitive data
- Impact: Cultural institution enhances data protection measures
Þjóðskjalasafn Íslands og netöryggisfyrirtækið Varist undirrituðu nýlega samning um innleiðingu á hugbúnaðarlausn Varist til að vernda mikilvæg gögn í langtímavörslu hjá stofnuninni. Lausnin, Varist Hybrid Detection Engine, er sérstaklega hönnuð til að skanna og greina gögn út frá þekktum og óþekktum ógnum. Þjóðskjalasafn Íslands geymir mikilvægar upplýsingar, þar á meðal gögn sem oft eru eftirsótt í tölvuárásum. Má þar nefna ýmis gögn tengd íslenska ríkinu, manntalsgögn, persónuupplýsingar íslenskra ríkisborgara eins og fæðingar-, dánar- og hjónavígsluvottorð, sem og sögulegar heimildir og skjöl. „Þjóðskjalasöfn um allan heim leggja aukna áherslu á að herða öryggi í sínum rekstri. Fjárfesting í lausninni frá Varist tryggir að við geymum þau gögn sem send eru til okkar í langtímavarðveislu á stafrænu formi án þess að þeim fylgi möguleg óværa,“ segir Kristján Þorvaldsson, fjármálastjóri Þjóðskjalasafns. Sjá einnig Vefveiðaárásir hafa aukist um 49% síðan 2021 Kristján segir að hefðbundin greining netógna sé ekki lengur nægjanleg til að gæta öryggis og að eldri lausnir séu ekki lengur nægjanlegar til að tryggja öryggi. „Þegar ógnirnar voru af mannavöldum höfðu tölvuþrjótar takmarkaða getu til að útfæra óværur. Þegar við eigum í höggi við gervigreind sem getur búið til nýjar ógnir þarf að beita nýjustu aðferðum í vörnum. Í breyttum heimi leggjum við frekari áherslu á varnir á ýmsu sviði netöryggis og einn lykilþáttur í okkar öryggisnálgun er að tryggja heilleika þeirra gagna sem við varðveitum til langframa.“ Siggi Pétursson, vörustjóri Varist, segir að gervigreindin sé þegar farin að framleiða ný spilliforrit. „Hraðvirk og auðveld samþætting lausnar Varist og greining hennar á spilliforritum gerir okkur kleift að takast á við krefjandi ógnir.“