Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Tap annað árið í röð hjá Keahótelum

Read Full Article →

Keahótela-samstæðan tapaði 182 milljónum króna eftir skatta á síðasta ári, samanborið við 163 milljóna króna tap árið 2024, samkvæmt nýbirtum ársreikningi. Rekstrartekjur Keahótela, sem rekur tíu hótel, jukust um 4,3% milli ára og námu 7,6 milljörðum króna. Rekstrartap (EBIT) jókst lítillega og nam 220 milljónum króna samanborið við 207 milljónum árið áður. Í skýrslu stjórnar segir að rekstrarumhverfi ferðaþjónustunnar hafi verið krefjandi á árinu 2025. Hækkandi verðlag og styrking íslensku krónunnar hafi sett þrýsting á samkeppnishæfni Íslands sem áfangastaðar. „Styttri dvalartími og lægra gistináttaverð leiddu til samdráttar í rekstrartekjum. Rekstrarkostnaður félagsins hækkaði á milli tímabila vegna hækkunar á launakostnaði og vísitöluhækkunar á leigugjöldum.“ Eignir Keahótela námu tæplega 1,3 milljörðum króna í árslok 2025, samanborið við 1,6 milljarða í lok árs 2024. Eigið fé nam 373 milljónum króna og eiginfjárhlutfall var 28,8%. Félagið Prime Hotels ehf. á 65% hlut í Keahótelum á móti Landsbankanum. Prime Hotels er samkvæmt síðasta birti ársreikningi fjárfestingarfélagsins í helmingseigu Pt. Capital, fjárfestingarsjóðs frá Alaska. Þá eiga félögin JL Properties, sem er í eigu Jonathan B. Rubini, ríkasta manns Alaska, og Silfurhvönn ehf., sem er í eigu Fannars Ólafssonar, Kristjáns M Grétarssonar, Þórðar Kolbeinssonar og Andra Gunnarssonar, hvor um sig 25% hlut í Prime Hotels. Landsbankinn, sem er lánveitandi Keahótela, eignaðist 35% hlut í hótelkeðjunni í kjölfar fjárhagslegrar endurskipulagningar félagsins árið 2020. Landsbankinn fer með eignarhlutinn í Keahótelum í gegnum félagið Hömlur ehf. Sjá einnig Ekki tókst að selja 35% hlut í Kea­hótelum Landsbankinn auglýsti hlut sinn í hótelkeðjunni Keahótelum til sölu í desember 2024. Söluferli Landsbankans lauk án þess að samningar hafi náðst um sölu en hlutur bankans í hótelfélaginu er áfram til sölu.

Share this article