Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Braut gegn stúlku sem lá á bráðamóttöku

Read Full Article →

Innlent | mbl | 1.6.2026 | 17:00 Braut gegn stúlku sem lá á bráðamóttöku Stúlkan lá með litla meðvitund á bráðamóttöku Landspítalans. mbl.is/Árni Sæberg Setja bókamerki Karlmaður hefur fengið skilorðsbundinn dóm í Héraðsdómi Reykjavíkur fyrir að brjóta gegn barnungri stúlku á gangi bráðamóttöku Landspítalans í Fossvogi í júní 2024. Manninum var gefin sök á því að hafa kysst stúlkuna á munninn og stungið fingrum upp í munn hennar þar sem hún lá með skerta meðvitund í sjúkrarúmi á gangi bráðamóttökunnar. Ákærði neitaði sök í málinu. Dómurinn féll 20. maí og var birtur nýlega. Sagðist aðstoða stúlkuna við að fá vatn Lögreglumenn ræddu við manninn á vettvangi þar sem segir í skýrslu að hann hafi verið sjáanlega ölvaður og áfengislykt frá honum. Hann sagðist hafa verið að aðstoða stúlkuna við að fá starfsmenn bráðamóttökunnar til að kæra hana um vatn. Kvaðst hann hafa kysst hendur stúlkunnar en aðeins viljað veita henni aðstoð. Hjúkrunarfræðingur á vakt umrætt kvöld sagðist hafa séð manninn bogra yfir stúlkunni og að hann hefði verið í sleik við hana. Annað vitni lýsti því að hann hefði séð manninn standa yfir stúlkunni og að hann hefði haft fingur sína í munni hennar. Fleiri vitni staðfestu að maðurinn hefði átt í einhverjum samskiptum við stúlkuna umrætt kvöld. Stúlkan kvaðst hafa munað lítið eftir umræddu kvöldi. Hún hefði farið með vinkonum sínum að borða í mathöllinni á Hafnartorgi og drukkið nokkra drykki. Síðar fékk hún upplýsingar um að hún og vinkonur hennar hefðu farið út og hún verið flutt með sjúkrabíl á bráðamóttöku Landspítalans en stúlkan kvaðst ekki muna eftir því. Hún sagðist hafa munað fyrst eftir sér þegar hún vaknaði í rúmi heima hjá móður sinni morguninn eftir. Hún hafði enga minningu um veru sína á bráðamóttökunni. Segir í dómnum að fósturmóðir hennar hafi sagt henni frá atvikum nokkrum dögum síðar. Sagðist stúlkunni hafa liðið ömurlega, allt hefði farið niður á við og hún átt erfitt með að vera ein. Stúlkan sagðist hafa leitað sér upplýsinga um ákærða á netinu og því þekkt hann í sjón þegar hún sá hann í eitt sinn. Kvaðst hún hafa fengið kvíðakast og lamast af ótta við að sjá hann. Spítalanum misfórst að afhenda myndskeið Í dómnum segir að lögregla hafi óskað eftir myndskeiðum úr eftirlitsmyndavélum á bráðamóttökunni fimm dögum eftir atvikið. Kom það í hlut Landspítalans að afhenda umbeðin myndskeið og hafði spítalinn lofað því. Lögregla ítrekaði beiðnina viku síðar og aftur í september 2024. Þá var lögreglan upplýst um að misfarist hefði að finna umbeðin myndskeið og myndskeið frá júní 2024 væru ekki lengur til. Dómurinn taldi fullsannað að stúlkan hafi verið mjög ölvuð þegar hún kom á bráðamóttöku Landspítalans umrætt kvöld. Var framburður hennar um að hún ætti enga minningu um dvöl sína trúverðugur og gat hún því ekki borið um háttsemi ákærða í sinn garð. Óviðeigandi og óeðlileg samskipti Í ljósi framburðar ákærða og vitna þótti ljóst að afskipti ákærða hefðu verið mjög óviðeigandi og óeðlileg. Dómurinn taldi ótrúverðugt að maðurinn hafi ætlað að aðstoða brotaþola. „Verður að ætla að mun nær hefði verið að ákærði kallaði eftir aðstoð starfsfólks bráðamóttökunnar teldi hann brotaþola hafa þörf fyrir aðstoð,“ segir í dómnum. Dómurinn taldi háttsemi ákærða sönnuð og var hann því fundinn sekur um verknaðinn. Við ákvörðun refsingar var horft til þess að maðurinn hafi brotið gegn barnungri stúlku sem hafi legið með skerta meðvitund sökum áfengisneyslu á bráðamóttöku Landspítalans þar sem henni skyldi veitt skjól og umönnun. „Við þær aðstæður braut ákærði freklega gegn brotaþola með kynferðislegum hætti,“ segir í dómnum. Eins og áður segir hlaut maðurinn skilorðsbundinn dóm, nánar tiltekið þriggja mánaða, skilorðsbundinn til tveggja ára. Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Ástæða bilunar reynist tímafrek Rannsaka hvort glæpahópar hafi notað Wise Svæðið á inni fyrir öðrum stórum skjálfta Braut gegn stúlku sem lá á bráðamóttöku HM í hættu hjá stjörnu Arsenal Umræðan Þing í gíslingu Skýrsla sem segir ekki það sem okkur er sagt að hún segi Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Hætt að lesa Njálu í skólum landsins Nafn mannsins sem lést á Hólmsheiði Getum ekki verið með bundið fyrir bæði augu Svæðið á inni fyrir öðrum stórum skjálfta Mest lesið Í gær Í vikunni Snarpur skjálfti á Mosfellsheiði Nafn mannsins sem lést á Hólmsheiði Flugmaður Icelandair hjólar í Boga Flugi Icelandair aflýst vegna mönnunarvanda „Ætlaði aldrei að eignast nýja vini“ Skólabygging sett á söluskrá Jafnlaunavottun lögð niður Útskýring fengin á lágfluginu „Svo dystópíulegt að það er næstum kómískt“ Sigmundur Davíð kynnir nýjan fjölskyldumeðlim Fangi á Hólmsheiði lést í nótt Íbúar skelkaðir eftir dularfullt lágflug Sex flugferðum aflýst vegna áhafnaskorts Vara við leigubremsunni Viðstöðulaus skjálftahrina á Hellisheiði Hrifsa heiminn úr klóm tæknirisanna Flytja gríðarstór hús eftir þjóðveginum í nótt Loka skrifstofum: Funda um óvissu í starfi „Góðverk dagsins og jafnvel ársins“ Loka Vesturlandsvegi vegna malbikunar Grunnskólakennari sakaður um að maka saur Snarpur skjálfti á Mosfellsheiði Fjölskyldufaðir hætt kominn eftir rof á pakkningum Krefur móður svara: „Vinsamlega rökstyddu mál þitt“ Lést við barnsburð á Landspítalanum Einn ráðherra á meðal launahæstu ríkisstarfsmanna Hótelstjóri veitir áfallahjálp nær daglega Boðar fjöldaúrsagnir úr flokknum Verulegur munur á árangri eftir grunnskólum Myndband: Handtaka í Hveragerði Nýjast á mbl.is » Ástæða bilunar reynist tímafrek Rannsaka hvort glæpahópar hafi notað Wise Svæðið á inni fyrir öðrum stórum skjálfta Braut gegn stúlku sem lá á bráðamóttöku HM í hættu hjá stjörnu Arsenal Umræðan Þing í gíslingu Skýrsla sem segir ekki það sem okkur er sagt að hún segi Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Nafn mannsins sem lést á Hólmsheiði Flugmaður Icelandair hjólar í Boga Snarpur skjálfti á Mosfellsheiði Svæðið á inni fyrir öðrum stórum skjálfta Mest lesið Í gær Í vikunni Snarpur skjálfti á Mosfellsheiði Nafn mannsins sem lést á Hólmsheiði Flugmaður Icelandair hjólar í Boga Flugi Icelandair aflýst vegna mönnunarvanda „Ætlaði aldrei að eignast nýja vini“ Skólabygging sett á söluskrá Jafnlaunavottun lögð niður Útskýring fengin á lágfluginu „Svo dystópíulegt að það er næstum kómískt“ Sigmundur Davíð kynnir nýjan fjölskyldumeðlim Fangi á Hólmsheiði lést í nótt Íbúar skelkaðir eftir dularfullt lágflug Sex flugferðum aflýst vegna áhafnaskorts Vara við leigubremsunni Viðstöðulaus skjálftahrina á Hellisheiði Hrifsa heiminn úr klóm tæknirisanna Flytja gríðarstór hús eftir þjóðveginum í nótt Loka skrifstofum: Funda um óvissu í starfi „Góðverk dagsins og jafnvel ársins“ Loka Vesturlandsvegi vegna malbikunar Grunnskólakennari sakaður um að maka saur Snarpur skjálfti á Mosfellsheiði Fjölskyldufaðir hætt kominn eftir rof á pakkningum Krefur móður svara: „Vinsamlega rökstyddu mál þitt“ Lést við barnsburð á Landspítalanum Einn ráðherra á meðal launahæstu ríkisstarfsmanna Hótelstjóri veitir áfallahjálp nær daglega Boðar fjöldaúrsagnir úr flokknum Verulegur munur á árangri eftir grunnskólum Myndband: Handtaka í Hveragerði

Share this article