Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Hagnaður OR dregst saman

Read Full Article →

Orkuveita Reykjavíkur (OR) hagnaðist um 3,1 milljarð króna á fyrsta ársfjórðungi, samanborið við 4,5 milljarða á sama tímabili í fyrra. „Lækkunin skýrist fyrst og fremst af óhagstæðri þróun fjármagnsliða, auk þess sem atburðir tengdir starfsemi Norðuráls á Grundartanga höfðu áhrif á uppgjör fyrsta ársfjórðungs,“ segir í afkomutilkynningu Orkuveitunnar. „Uppkeyrsla Norðuráls hófst á fjórðungnum en óvissa ríkir áfram um þróun mála og endanleg áhrif á rekstur og afkomu Orkuveitunnar.“ EBITDA jókst um 10% milli ára. Rekstrartekjur OR námu 20,7 milljörðum króna, sem er 10,1% aukning frá sama tímabili árið áður. Rekstrarhagnaður fyrir afskriftir (EBITDA) var 13,7 milljarðar króna og jókst um 10,2% milli ára. Veltufé frá rekstri nam 10,7 milljörðum króna, sem er 14,1% aukning milli ára. „Þetta uppgjör sýnir styrk og stöðugleika í kjarnastarfseminni, sem við erum að efla enn frekar. Fjárfestingar í auknu afli hitaveitna, aukinni vernd vatnsveitna og umhverfisvænni fráveitum eru í okkar áætlunum. Kröftug og snörp viðbrögð vegna bilana hjá Norðuráli á Grundartanga drógu verulega úr áhrifum tekjutapsins,“ segir Sævar Freyr Þráinsson , forstjóri OR. „Enn er þar þó óvissa vegna málreksturs og framvindu viðgerða í álverinu.“ Orkuveitunni og Norðuráli hefur greint á um hvort álverinu beri að standa við kaupskyldu raforkusamnings og greiða fyrir samningsbundið magn þrátt fyrir að veita því ekki viðtöku vegna rekstrarstöðvunar í álveri félagsins á Grundartanga í október. Norðurál ber fyrir sig Force Majeure aðstæður. Slíku hefur ON Power hafnað og hafa Orkuveitan og ON Power hafið gerðardómsmeðferð til að fá úr því skorið. Sjá einnig Tvö dóms­mál bíða OR

Share this article