Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Rannsaka áhrif almyrkva í Mosfellsbæ

Read Full Article →

Innlent | Morgunblaðið | 1.6.2026 | 15:55 Rannsaka áhrif almyrkva í Mosfellsbæ Almyrkvinn gæti orðið einhvern veginn svona. Þessa mynd tók Ragnar Axelsson ljósmyndari af almyrkva fyrir austan Grænland 1986. mbl.is/Rax Kjartan Leifur Sigurðsson [email protected] Setja bókamerki Hópur bandarískra vísindamanna mun koma hingað til lands og rannsaka áhrif almyrkvans, sem verður á sólu 12. ágúst, á andrúmsloft jarðar yfir Íslandi. Um rannsóknina er fjallað á vef Sævars Helga Bragasonar, eða Stjörnu-Sævars eins og hann er oftast kallaður, um almyrkvann. Vísindamennirnir koma frá Idaho- og Kentucky-háskóla í Bandaríkjunum en verkefnið er fjármagnað af Geimferðastofnun Bandaríkjanna, NASA. Um er að ræða teymi á vegum verkefnis sem ber heitið Nationwide Eclipse Ballooning Project en sambærilegar rannsóknir voru gerðar í Bandaríkjunum árin 2023 og 2024 er þar var hringmyrkvi og almyrkvi. Sævar Helgi segir fleiri tilraunir og rannsóknir í tengslum við almyrkvann vera í bígerð, ljóst sé því að fjöldi vísindamanna muni sækja Ísland heim í ágústmánuði. „Það er frábært að hingað séu að koma vísindahópar. Þetta snýst um að rannsaka áhrif sólmyrkva á andrúmsloftið okkar. Markmiðið er að hjálpa okkur að afla gagna sem myndu hjálpa okkur að bæta veðurlíkön og loftslagslíkön.“ Eðli máls samkvæmt hefur almyrkvi á sólu töluverð áhrif á andrúmsloftið enda verður þá skyndilegt myrkur um miðjan dag og getur hitastig í kjölfarið fallið hratt. Til þess að mæla breytingarnar munu vísindamennirnir senda loftbelgi, útbúna með veðurkönnum, á loft á hálftíma til klukkutíma fresti. Námu sérstakar bylgjur Við rannsóknir í Bandaríkjunum árið 2023 nam vísindateymið þyngdarbylgjur og telur teymið sama fyrirbæri hafa mælst í almyrkvanum þar í landi ári síðar, þó að enn hafi það ekki verið staðfest. „Þyngdarbylgjur eru bylgjur í andrúmsloftinu okkar sem mynda ákveðna tegund af skýjum líka. Þegar lofthjúpurinn okkar kólnar fer hann á hreyfingu og þá verða til þrýstingsbylgjur sem kallaðar eru þyngdarbylgjur. Það verður þá eins og þvottabretti á himninum, það koma bylgjur og skýin verða mjög áberandi þar sem þau sjást. Það getur verið gott að vita hvenær þetta gerist og af hverju, þá er hægt að bæta veðurfarslíkön í leiðinni,“ segir Sævar Helgi. Líklegast fer rannsóknin fram við Tungubakka í Mosfellsbæ og eru áhugasamir hvattir til þess að koma og fylgjast með. Verður þar boðið upp á sólmyrkvagleraugu og límmiða frá NASA. „Belgirnir sjálfir eru mjög litlir, þannig að fólk þarf að vera nálægt til þess að verða vitni að þessu. Vísindafólkið býður fólki að fylgjast með sér og njóta myrkvans. Það er gaman að sjá vísindamenn að störfum,“ segir Sævar Helgi. Teymið sem kemur hingað til lands mun telja um tíu manns og er rannsóknin því töluvert minni í sniðum en rannsóknirnar í Bandaríkjunum árið 2023 og 2024, þar sem 50 teymi tóku þátt auk mörg hundruð nemenda. „Það verður annar hópur á Spáni, þar sem myrkvinn endar, við sambærilegar rannsóknir,“ segir Sævar Helgi. Hvetur Sævar Helgi Íslendinga til að hafa það í huga að almyrkvinn verður mikið sjónarspil burtséð frá því hvort veðrið muni leika við landsmenn eður ei. „Ég vona að landsmenn geri sem allra mest úr þessum degi, sem kemur aldrei aftur á okkar ævi. Þetta er einstakt tækifæri og alveg sama hvernig viðrar verður þetta ógleymanleg upplifun.“ Almyrkvi á sólu í ágúst Einstakt tækifæri Almyrkvi á sólu gengur yfir Norðurskautið 12. ágúst og mun hann ganga yfir vesturhluta Íslands, þar á meðal höfuðborgarsvæðið. Myrkvinn mun vara lengst hérlendis við Látrabjarg, þar sem almyrkvi verður í 2 mínútur og 13 sekúndur. Í Reykjavík mun hann vara í 59 sekúndur en í heildina verður almyrkvi hérlendis í 6 mínútur og 48 sekúndur. Myrkvinn fer svo suður Atlantshafið og endar á Spáni. Um einstakt tækifæri er að ræða enda verður næsti almyrkvi hér á landi ekki fyrr en í júní árið 2196. Ágúst Almyrkvi við Látrabjarg varir í rúmar tvær mínútur. Morgunblaðið/Sigurður Bogi Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Skoða áskriftarleiðir Innskráning Gleymt lykilorð? Kennitala: Lykilorð: Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ég er nú þegar áskrifandi Ég er ekki með notendaaðgang Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » Rannsaka áhrif almyrkva í Mosfellsbæ Réðst á dóttur sína eftir löðrung Ráðherrar Þýskalands og Noregs sneru við Framlengir við Ármenninga Strong earthquake strikes Mosfellsheiði Umræðan Þing í gíslingu Skýrsla sem segir ekki það sem okkur er sagt að hún segi Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Dróni lenti á kjarnorkuveri í Úkraínu Nafn mannsins sem lést á Hólmsheiði Getum ekki verið með bundið fyrir bæði augu Vaknaði við þjófa þrátt fyrir öryggiskerfi Mest lesið Í gær Í vikunni Snarpur skjálfti á Mosfellsheiði Nafn mannsins sem lést á Hólmsheiði Flugi Icelandair aflýst vegna mönnunarvanda „Ætlaði aldrei að eignast nýja vini“ Skólabygging sett á söluskrá „Svo dystópíulegt að það er næstum kómískt“ Staðan gjörbreytt á einum áratug Sigmundur Davíð kynnir nýjan fjölskyldumeðlim Röng túlkun ráðherra Jafnlaunavottun lögð niður Fangi á Hólmsheiði lést í nótt Íbúar skelkaðir eftir dularfullt lágflug Sex flugferðum aflýst vegna áhafnaskorts Vara við leigubremsunni Viðstöðulaus skjálftahrina á Hellisheiði Hrifsa heiminn úr klóm tæknirisanna Flytja gríðarstór hús eftir þjóðveginum í nótt Loka skrifstofum: Funda um óvissu í starfi „Góðverk dagsins og jafnvel ársins“ Loka Vesturlandsvegi vegna malbikunar Grunnskólakennari sakaður um að maka saur Fjölskyldufaðir hætt kominn eftir rof á pakkningum Snarpur skjálfti á Mosfellsheiði Krefur móður svara: „Vinsamlega rökstyddu mál þitt“ Lést við barnsburð á Landspítalanum Einn ráðherra á meðal launahæstu ríkisstarfsmanna Hótelstjóri veitir áfallahjálp nær daglega Boðar fjöldaúrsagnir úr flokknum Verulegur munur á árangri eftir grunnskólum Myndband: Handtaka í Hveragerði Nýjast á mbl.is » Rannsaka áhrif almyrkva í Mosfellsbæ Réðst á dóttur sína eftir löðrung Ráðherrar Þýskalands og Noregs sneru við Framlengir við Ármenninga Strong earthquake strikes Mosfellsheiði Umræðan Þing í gíslingu Skýrsla sem segir ekki það sem okkur er sagt að hún segi Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Snarpur skjálfti á Mosfellsheiði Hætt að lesa Njálu í skólum landsins Krefur Ragnar svara um niðurskurðinn Viðskipti með Oculis vekja grunsemdir Mest lesið Í gær Í vikunni Snarpur skjálfti á Mosfellsheiði Nafn mannsins sem lést á Hólmsheiði Flugi Icelandair aflýst vegna mönnunarvanda „Ætlaði aldrei að eignast nýja vini“ Skólabygging sett á söluskrá „Svo dystópíulegt að það er næstum kómískt“ Staðan gjörbreytt á einum áratug Sigmundur Davíð kynnir nýjan fjölskyldumeðlim Röng túlkun ráðherra Jafnlaunavottun lögð niður Fangi á Hólmsheiði lést í nótt Íbúar skelkaðir eftir dularfullt lágflug Sex flugferðum aflýst vegna áhafnaskorts Vara við leigubremsunni Viðstöðulaus skjálftahrina á Hellisheiði Hrifsa heiminn úr klóm tæknirisanna Flytja gríðarstór hús eftir þjóðveginum í nótt Loka skrifstofum: Funda um óvissu í starfi „Góðverk dagsins og jafnvel ársins“ Loka Vesturlandsvegi vegna malbikunar Grunnskólakennari sakaður um að maka saur Fjölskyldufaðir hætt kominn eftir rof á pakkningum Snarpur skjálfti á Mosfellsheiði Krefur móður svara: „Vinsamlega rökstyddu mál þitt“ Lést við barnsburð á Landspítalanum Einn ráðherra á meðal launahæstu ríkisstarfsmanna Hótelstjóri veitir áfallahjálp nær daglega Boðar fjöldaúrsagnir úr flokknum Verulegur munur á árangri eftir grunnskólum Myndband: Handtaka í Hveragerði

Share this article