Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Ökumaður handtekinn og annar fluttur á slysadeild eftir umferðaróhapp

Read Full Article →

Ökumaður var handtekinn grunaður um akstur undir áhrifum fíkniefna og einn fluttur á slysadeild með minniháttar áverka eftir umferðarslys miðsvæðis í Reykjavík í gærkvöld eða nótt. Lögreglukonur í miðborg Reykjavíkur. Mynd úr safni.RÚV Minnst einn hlaut sekt fyrir hraðakstur að því er segir í morgunskeyti lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu og bifhjólamaður var sektaður fyrir að aka hjólinu án ökuréttinda og án öryggisbúnaðar ásamt því sem það var ekki rétt skráð. Fjórir menn reyndu að brjótast inn í hús í úthverfi Kópavogs en á öryggismyndavélum má sjá þá forða sér þegar viðvörunarkerfi tók að óma. Átta gistu fangageymslur höfuðborgarsvæðisins í morgun.

Share this article