Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Húsið fellur vel að anda staðarins

  • What: Description of a garden in Akureyri
  • Impact: Local community interest
Read Full Article →

Innlent | Morgunblaðið | 31.5.2026 | 20:15 Húsið fellur vel að anda staðarins Valur Þór Hilmarsson forstöðumaður Lystigarðsins og Jónína Mjöll Þormóðsdóttir feta hér stíga. mbl.is/Sigurður Bogi Sigurður Bogi Sævarsson [email protected] Setja bókamerki „Lystigarðurinn er einstakur; umhverfi sem er draumur garðyrkjumanns að starfa í. Dýrðarstaður sem sjálfsagt er eitthvað í líkingu við aldingarðinn þar sem Adam og Eva voru forðum,“ segir Valur Þór Hilmarsson. Hann tók nú á vordögum við starfi forstöðumanns Lystigarðsins á Akureyri; þess áhugaverða reits sem er á suðurbrekkunni þar í bæ. Oft er tiltekið hve allt sé vel gróið á Akureyri; falleg blóm í görðum og hávaxin tré sem aftur skapa skjólið. Í bænum er rík hefð fyrir ræktun og þar kunna áhrif frá Lystigarðinum góða að koma til; menning sem hefur með sjálfsáningu náð til bæjarins alls. Fallegur garður fólki til dægrastyttingar Byrjað var að leggja drög að Lystigarðinum á Akureyri árið 1909, það er skipuleggja og planta, og formlega var garðurinn svo opnaður þremur árum síðar. Frumkvæðið kom frá danskri konu, Önnu Katharine Schiöth, sem skipulagði garðinn. Síðar tók Margrethe Schiöth tengdadóttir hennar við keflinu og var viðloðandi starfið til ársins 1953 þegar Akureyrarbær tók við starfseminni. Alls er garðurinn í dag 3,6 hektarar. „Að starfinu hér í garðinum á upphafsárunum komu ýmsar betri frúr bæjarins sem höfðu ef til vill meira á milli handanna en aðrir. Hugsunin með því starfi var að bæjarbúar hefðu aðgang að fallegum blómagarði sér til dægrastyttingar. Þetta helst í hendur við að síðar hafa komið fram margar rannsóknir á sviði umhverfis- og skipulagsmála sem sýna mikilvægi þess að almenningur hafi aðgengi að gróðri og görðum með tilliti til lýðheilsu,“ greinir Valur frá. Gróður er góður er samandregið inntak orða hans. Horft yfir suðurhluta garðsins góða þar sem kaffihúsið Lyst er á besta stað. Sunnan garðsins er sjúkrahúsið og ekki langt í Kjarnaskóg. mbl.is/Sigurður Bogi Öll flóra og fjölmargt fleira Öll íslenska flóran – rúmlega 150 plöntur – og fjölmargt fleira er til í Lystigarðinum. Mikilvægur þáttur í starfseminni er ræktun á ýmsum framandi plöntum. Fræ eru send frá görðum og tilraunastöðvum víða erlendis í því skyni að sjá hvernig til tekst við ræktun á Akureyri miðað við staðhætti þar og veðráttu. „Rannsóknarhefðin hér er mjög sterk,“ segir Valur Þór sem minnist sinnar fyrstu heimsóknar í Lystigarðinn. „Þetta eru um 60 ár síðan og ég kom þá frá Ólafsfirði, heimabæ mínum, með ms. Drangi sem var í áætlunarsiglingum hér um Eyjafjörðinn. Við frænka röltum hér upp brekkurnar og komum í garðinn þar sem þá strax greip mig sú tilfinning að ég væri í útlöndum. Þetta var allt svo framandi og vakti ef til vill áhuga minn á ræktun og gróðri. Sem ungur maður var ég til sjós og fleira, en fór svo til náms í Garðyrkjuskólanum á Reykjum í Ölfusi. Fyrir sunnan starfaði ég meðal annars á garðyrkjustöð við rósaræktun, en kom svo aftur norður og vann þá meðal annars við verkefni tengd umhverfismálum hjá Ferðamálastofu,“ segir Valur sem síðast var forstöðumaður þjónustumiðstöðvar umhverfissviðs Akureyrarbæjar, en tók við núverandi starfi 1. mars síðastliðinn. Arkitekt Logi Einarsson hér í garðinum við veitingaskálann sem er hans hönnun. mbl.is/Sigurður Bogi Fræðslustarfið verði eflt „Möguleikarnir hér eru miklir. Lengi hefur verið í umræðunni að stækka Lystigarðinn og ef til vill kemur að því. Einnig myndi ég vilja að hér væri reist gesta- eða fræðslustofa enda verði fræðslustarf eflt. Þar sé ég fyrir mér aukið samstarf við skólana hér í bænum. Einnig og hugsanlega sjúkrahúsið, sem hér er rétt hjá, samanber hve heilnæm tenging við náttúruna er og getur stuðlað að bata þeirra sem sjúkir eru,“ sagði Valur þar sem hann fylgdi blaðamanni um garðinn. Hann sagði til dæmis frá trjám, blómum og minnismerkjum en þarna eru nokkur. Rjóður og rósarunnar, gosbrunnur og grænar lautir. Hver staður hér á sína sögu. Einnig má nefna Vigdísarstíg, braut þar sem Vigdís Finnbogadóttir forseti Íslands gekk um forðum og gróðursetti. Kortlagðir álfar og enginn meðalvegur Í Lystigarðinum er svo líka sitthvað á sveimi sem ekki verður séð, samanber kortlagningu Bryndísar Fjólu Pétursdóttur á álfabyggðum á svæðinu. Þar er allt á hreinu og Huldustígur, eins og álfaslóðin er stundum nefnd, er víst enginn meðalvegur. Huldufólkið sem þar er á vappi eru þau Pia, Lovísa og Heimir og enginn ætti að efast um tilvist þeirra. Pia er heilari með lækningamátt og Lovísa er með græna fingur; er lagin garðyrkjukona, rétt eins og huldumaðurinn Heimir, sem er búhöldur góður og býsna verklaginn, segja þau sem þekkja. Efst og syðst í Lystigarðinum á Akureyri er veitingahúsið Lyst; í byggingu sem arktitektinn Logi Einarsson, nú ráðherra menningar-, nýsköpunar- og háskólamála, teiknaði. Húsið var reist árið 2012 fyrir Akureyrarbæ í tilefni af 100 ára afmæli Lystigarðsins. „Markmiðið af minni hálfu þegar þetta hús var teiknað var að byggt yrði látlaust og hlýlegt kaffihús sem félli vel að anda staðarins,“ segir Logi Einarsson sem Morgunblaðsmaður hitti einmitt á rölti sínu um Lystigarðinn í síðustu viku. „Húsið sækir grunnform sitt til Eyrarlandsstofu sem stendur skammt frá og var byggð 1844. Efnistök og útfærsla nýja hússins eru þó mjög frábrugðin því gamla enda fannst mér að það ætti að bera samtíma sínum vitni. Mér þykir vænt um garðinn og húsið, ekki síst eftir að rekstur þess komst í hendurnar á mjög metnaðarfullum rekstraraðilum, með Reyni Grétarsson í fararbroddi.“ Á Lyst er áherslan lögð á einfaldar veitingar úr fyrsta flokks hráefni í notalegu andrúmslofti. Fiskur og grænmeti í hádeginu er aðalsmerki,“ segir í kynningu á vefsetri staðarins þar sem stundum er efnt til menningarviðburða, svo sem tónleika. Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Skoða áskriftarleiðir Innskráning Gleymt lykilorð? Kennitala: Lykilorð: Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ég er nú þegar áskrifandi Ég er ekki með notendaaðgang Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » Gripnir skilríkislausir við umfangsmikinn matvælaþjófnað Húsið fellur vel að anda staðarins Þetta þykir eitt fallegasta sjávarþorp Portúgals Þrítugasti sigurinn í þrítugasta leiknum Valur - Víkingur R., staðan er 0:3 Umræðan Staðalbúnaður tungumálsins Óhreina tauið Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Vill selja Landsbankann vegna samgöngusáttmálans Evruskýrslan án skýrrar niðurstöðu Hér um bil dáinn í El Grillo Fullveldisbaráttunni lauk 1. júní Mest lesið Í gær Í vikunni Fangi á Hólmsheiði lést í nótt Sex flugferðum aflýst vegna áhafnaskorts Vara við leigubremsunni Hrifsa heiminn úr klóm tæknirisanna Loka skrifstofum: Funda um óvissu í starfi Viðstöðulaus skjálftahrina á Hellisheiði Íbúar skelkaðir eftir dularfullt lágflug Loka Vesturlandsvegi vegna malbikunar Linda Dröfn valin kona ársins Einn hlaut hátt í 12 milljónir Myndband: Handtaka í Hveragerði Tekur undir orð Bjarna Breyta fánareglum Reykjavíkurborgar Timburdekkið lagt niður „Grunsamleg háttsemi“ við grunnskóla Hluthafar greiði launin Einn hlaut hátt í 12 milljónir Leyniherbergi í Alþingishúsinu Telur fánamál Snorra ekki hafa vegið þungt Skatturinn slæm ákvörðun en Ísland nái sér á strik Grunnskólakennari sakaður um að maka saur Krefur móður svara: „Vinsamlega rökstyddu mál þitt“ Fjölskyldufaðir hætt kominn eftir rof á pakkningum Lést við barnsburð á Landspítalanum Einn ráðherra á meðal launahæstu ríkisstarfsmanna Hótelstjóri veitir áfallahjálp nær daglega Boðar fjöldaúrsagnir úr flokknum Verulegur munur á árangri eftir grunnskólum Myndband: Handtaka í Hveragerði „Alvarlegt atvik í vesturbæ Kópavogs“ Nýjast á mbl.is » Gripnir skilríkislausir við umfangsmikinn matvælaþjófnað Húsið fellur vel að anda staðarins Þetta þykir eitt fallegasta sjávarþorp Portúgals Þrítugasti sigurinn í þrítugasta leiknum Valur - Víkingur R., staðan er 0:3 Umræðan Staðalbúnaður tungumálsins Óhreina tauið Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Vill selja Landsbankann vegna samgöngusáttmálans Líkur á að kjarasamningar bresti Íhugar að kynna samningsmarkmið Margt jákvætt í nýjum verðbólgutölum Mest lesið Í gær Í vikunni Fangi á Hólmsheiði lést í nótt Sex flugferðum aflýst vegna áhafnaskorts Vara við leigubremsunni Hrifsa heiminn úr klóm tæknirisanna Loka skrifstofum: Funda um óvissu í starfi Viðstöðulaus skjálftahrina á Hellisheiði Íbúar skelkaðir eftir dularfullt lágflug Loka Vesturlandsvegi vegna malbikunar Linda Dröfn valin kona ársins Einn hlaut hátt í 12 milljónir Myndband: Handtaka í Hveragerði Tekur undir orð Bjarna Breyta fánareglum Reykjavíkurborgar Timburdekkið lagt niður „Grunsamleg háttsemi“ við grunnskóla Hluthafar greiði launin Einn hlaut hátt í 12 milljónir Leyniherbergi í Alþingishúsinu Telur fánamál Snorra ekki hafa vegið þungt Skatturinn slæm ákvörðun en Ísland nái sér á strik Grunnskólakennari sakaður um að maka saur Krefur móður svara: „Vinsamlega rökstyddu mál þitt“ Fjölskyldufaðir hætt kominn eftir rof á pakkningum Lést við barnsburð á Landspítalanum Einn ráðherra á meðal launahæstu ríkisstarfsmanna Hótelstjóri veitir áfallahjálp nær daglega Boðar fjöldaúrsagnir úr flokknum Verulegur munur á árangri eftir grunnskólum Myndband: Handtaka í Hveragerði „Alvarlegt atvik í vesturbæ Kópavogs“

Share this article