Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Greiða út fimm milljarða

Read Full Article →

Samstæða Rapyd Europe hf. hagnaðist um 3.127 milljónir króna í fyrra eftir skatta, samanborið við 3.070 milljóna hagnað árið áður, sem var metár. Heildartekjur jukust um 30% milli ára og námu 46.979 milljónum króna. Rekstrarhagnaður fyrir fjármagnsliði nam 4.616 milljónum króna, samanborið við 3.818 milljónir árið 2024. Ársverk voru 203 og launagreiðslur námu 4.263 milljónum króna. Í lok 2024 gerðu Rapyd Europe og Síminn Pay samkomulag um að síðarnefnda félagið myndi taka yfir kortalán og greiðsludreifingar VISA og MasterCard korthafa sem sett voru á laggirnar og starfrækt af hálfu Valitor. Í lok febrúar 2025 tók Síminn Pay við kortalánum um níu þúsund einstaklinga fyrir 1.500 milljónir króna. Eignir Rapyd Europe voru bókfærðar á 50.022 milljónir króna í árslok 2025 og eigið fé nam 14.829 milljónum. Eiginfjárhlutfall í árslok var því 29,6%. Stjórn leggur til að 40 milljóna dala arðgreiðslu, eða sem nemur um 5 milljörðum króna. Nánar er fjallað um málið í Viðskiptablaðinu . Áskrifendur geta lesið fréttina í heild hér .

Share this article