Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Ellefu bak við lás og slá eftir nóttina fyrir líkamsárás og margvísleg lögbrot önnur

Read Full Article →

Ellefu manns var stungið bak við lás og slá í gærkvöld og nótt.Þ / RÚV Tveir voru handteknir fyrir líkamsárás í miðborg Reykjavíkur í gærkvöld eða nótt að því er segir í morgunskeyti lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu án þess að tíundað sé frekar hvað hafi átt sér stað. Þar voru jafnframt tveir handteknir fyrir brot á lögreglusamþykkt, sá þriðji fyrir brot á áfengislögum og stjórnandi rafhlaupahjóls var tekinn eftir að hafa ekið því á bíl. Ökumaður var handtekinn fyrir að keyra ölvaður á byggingu í Hafnarfirði og auk hans voru nokkrir handteknir fyrir ölvunarakstur víðs vegar um borgina. Ellefu gistu fangageymslur í morgun.

Share this article