- What: Discussion about big-tech companies and browser competition
- Impact: Not directly relevant to security
Innlent | mbl | 30.5.2026 | 22:25 Hrifsa heiminn úr klóm tæknirisanna Jón von Tetzchner gagnrýnir risana Google og Facebook. Og fleiri. Hann er í samkeppni við Google með vafrann Vivaldi og óttast ekki þá samkeppni en vill hjálpa því fólki sem þykir lítið til þess koma að hafa bandarísk stórfyrirtæki með augu og eyru í tækjum heimilisins. mbl.is/Kristinn Magnússon Atli Steinn Guðmundsson [email protected] Setja bókamerki „Ég held að fleiri og fleiri séu núna að átta sig á því að tæknirisarnir eru að gera hluti sem þeir ættu ekki að vera að gera og fólk er að leita að betri lausnum,“ segir Jón von Tetzchner, frumkvöðull, fjárfestir og forstjóri norsk-íslenska tæknifyrirtækisins Vivaldi Technologies, fyrirtækisins á bak við Vivaldi-vafrann, í samtali við mbl.is. Yfir tæknirisa notar hann hugtakið „big-tech“ en við höldum okkur við tæknirisa í viðtalinu og þar með átt við risastór bandarísk tæknifyrirtæki á borð við Amazon, Apple, Google, Microsoft og Meta eiganda Facebook, fyrirtæki sem fylgjast grannt með notendum lýðnetsins og skrá hvert þeirra fótmál í nafni markaðssetningar sem ekki allir eru sérstaklega hrifnir af. Vivaldi, í samstarfi við Gróttu á Seltjarnarnesi, hélt í dag viðburð á Vivaldi-vellinum þar á nesinu, undir heitinu „Digital Dugnad“, sem er vitundarátak sem svissneska tæknifyrirtækið Proton og Vivaldi standa í sameiningu að um allan heim, eins konar vakning um veldi tæknirisana og sagði Haakon R ølmann , markaðs- og samskiptastjóri Vivaldi, blaðamanni frá því að í dag hefði fyrsta skrefið verið tekið í átt að því að miðla átakinu til netnotenda heimsins. Ætla að sýna heiminum einmitt þetta Vivaldi er norskt fyrirtæki jafnframt því að vera íslenskt og hugtakið „dugnad“ er enda norskt. Í Noregi er það notað um athafnir á borð við þegar nágrannar í fjölbýli koma saman og taka til í garðinum eða þrífa stigaganginn og margar hendur látnar vinna létt verk. „Það sem við ætlum að sýna heiminum er einmitt þetta, hvernig leysa má stór verkefni sem erfitt er að takast á hendur einn, en verða létt þegar margir leggja gjörva hönd á plóg,“ segir R ølmann og kveður tilganginn með samátakinu á Seltjarnarnesi í dag vera að bjarga lýðnetinu. „Og það er ekkert smáverkefni, það er risastórt,“ bætir hann við. Á Gróttuvelli í dag. Bláklæddur vinstra megin er Haakon Rølmann, markaðs- og samskiptastjóri Vivaldi, þá Marianne Kvan, starfandi sendiherra Noregs á Íslandi, og Þór Sigurgeirsson, bæjarstjóri á Seltjarnarnesi. Ljósmynd/André Skjeggestad „Nágrannar, vinir, fjölskylda, vinnufélagar og bara allir, við viljum koma boðskapnum til allra þeirra sem við náum til svo fólk geti tekið fyrsta skrefið frá tæknirisunum, hvort sem það er stórt eða lítið,“ segir samskiptastjórinn og vitnar í heimsþekkt orð fyrsta mannsins sem steig fæti á tunglið hér um árið og talaði um lítið skref fyrir manneskju en risastórt fyrir mannkynið þótt hann mismælti sig reyndar. Völdu frelsunardaginn norska „Ekki skiptir öllu máli hvort fólk byrjar á að skipta um leitarvél eða gerir eitthvað meira, allt færir okkur í átt að því að taka valdið úr höndum tæknirisanna og það er einmitt mjög í anda „dugnad“, að við tökum höndum saman til að koma einhverju til leiðar,“ heldur hann áfram og segir fr á átaki sem táknrænt var haldið á „frelsunardaginn“ í Noregi eða „ frigjøringsdagen“ sem er 8. maí þegar Norðmenn minnast sama dags árið 1945 þegar landið losnaði undan járnhæl þýska hernámsliðsins við lok síðari heimsstyrjaldar. „Þá vorum við með 200 sjálfboðaliða um allan Noreg sem ræddu við fólk á kaffihúsum, götum, bókasöfnum og úti um allt, sögðu frá því hvernig losna mætti undan oki stórfyrirtækjanna og svo gátu viðmælendurnir komið boðskapnum áfram,“ segir hann frá. R ølmann segir sérstakan fatnað hafa verið gefinn út í tilefni dagsins í dag, bol með áletruninni „Digital Dugnad“ og þar fyrir neðan „Margar hendur vinna létt verk“. Margar hendur vinna létt verk. Gróttustúlkur taka höndum saman í stuttermabolum merktum verkefni Vivaldi og Proton. Ljósmynd/André Skjeggestad Vinna að kynnast einhverju nýju Áfram heldur Jón von Tetzchner sem viðurkennir að „dugnad“ sé ekki auðþýtt á íslensku, alla vega ekki í þeirri merkingu sem Norðmenn noti það. „En þetta gengur í þessu tilfelli bara út á að skýra út fyrir fólki í litlum skrefum að það finnist eitthvað annað en tæknirisarnir. Þú kaupir tölvu eða síma og fólk heldur einhvern veginn að það sé læst inni í einhverju kerfi sem sé mjög erfitt að brjótast út úr og skipta yfir í eitthvað annað. Auðvitað er það alltaf smá vinna að kynnast einhverju nýju en ég held að fleiri og fleiri séu á því að það sé kominn tími til að leita að öðrum lausnum,“ segir forstjóri Vivaldi. Frétt af mbl.is Er bíllinn þinn að njósna um þig? Hann segir mikinn áhuga víða hjá fólki á því að snúa baki við risafyrirtækjunum með sínar vefnjósnir sem nýttar séu í markaðslegum tilgangi sem sniðinn er að því að selja netnotendum varning eða þjónustu sem byggir á því hvað fólk skoði og lesi á netinu. „Það er verið að ýta hlutum á fólk sem það oft ekki vill fá og það trúir því að það verði að láta þetta yfir sig ganga – en það finnast lausnir og það finnast góðar lausnir og fólk vill hjálpa öðrum yfir í aðrar lausnir, evrópskar lausnir og bara eitthvað annað en „big-tech“. Núna er ég búinn að vera að byggja vafra síðan 1994 og ég hef alltaf litið svo á að annað væri ómögulegt en að gera samninga við fyrirtæki eða ríkisstjórnir. Það er hins vegar að breytast,“ segir Jón. Fólk sé nú tekið að hugsa meira út í staðbundnar lausnir og hverfa frá því að úthýsa öllu til risafyrirtækja. Ýta ekki rafmynt að fólki „Nú erum við farin að sjá fyrirspurnir frá ríkisstjórnum og fyrirtækjum, sem við höfum ekki séð áður, þannig að umhverfið er orðið breytt og nú er fólk í meira mæli farið að íhuga evrópskar lausnir,“ segir hann enn fremur. Hvert yrði þá það draumaumhverfi sem þið sæjuð fyrir ykkur? „Fyrst og fremst að fólk skipti yfir í Vivaldi sem er norsk-íslenskur vafri, það eru nú ekki margir vafrar í Evrópu yfirhöfuð. Við erum ekki að safna gögnum eða reyna að ýta rafmyntum, gervigreind eða öðru að fólki. Ef fólk vill nota gervigreind getur það notað hana en vafrinn safnar ekki gögnum um hvað þú ert að gera. Ég held að langflestum finnist þetta ganga of langt orðið,“ svarar hann. „Fókus hjá okkur er að kynna þessi minni fyrirtæki. Það finnst mikið af góðum lausnum. Fólk þarf bara að vera viljugt til að prófa eitthvað nýtt,“ segir Jón von Tetzchner. Ljósmynd/Vivaldi Fyrirtækin finnist fyrir þá sem vilji finna lausnirnar en það þýði þá að fólk þurfi að vera viljugt til að prófa eitthvað nýtt. „En gleðin við að prófa eitthvað nýtt er ríkuleg, það eru ekki bara risafyrirtæki sem geta búið til lausnir, flott lítil fyrirtæki eru að búa til flottar lausnir og okkar fókus er að byggja upp þessi fyrirtæki svo fólki bjóðist góðir valmöguleikar,“ heldur Jón áfram. Veldisvöxtur í Danmörku Hann segir Vivaldi nú eiga sér talsverðan notendahóp á Íslandi og í Noregi og hafi notkun Vivaldi aukist um 50 til 100 prósent í flestum Evrópuríkjum síðasta árið. Aðspurður segir hann aukninguna mesta í Danmörku, Hollandi, Noregi, Svíþjóð og Þýskalandi, til dæmis hafi veldisvöxtur orðið í notkun vafrans í Danmörku. „Fólk er að leita sér að lausnum, það er ekki hrifið af þessari stöðu sem tæknirisarnir hafa. Auðvitað er ekki auðvelt að breyta um stýrikerfi í símanum þínum, þar eru að mestu bara Android og iOS. Auðvitað er hægt að fara yfir í Linux en þar eru mjög fáar lausnir í síma, á tölvu er auðveldara að fara yfir í Linux,“ segir vafrasmiðurinn. „En vafrinn er það mikilvægasta, þú getur gert mikið í gegnum vafrann,“ segir Jón von Tetzchner, frumkvöðull, fjárfestir og forstjóri norska tæknifyrirtækisins Vivaldi Technologies sem nú hefur tekið næsta skref í að losa milljónir netnotenda undan njósnum, oki og markaðssetningu gríðarstórra og alltumlykjandi tæknifyrirtækja. Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Hrifsa heiminn úr klóm tæknirisanna Klopp að fá nýtt starf? Góð birtuskilyrði lykilþáttur „Fólk er að gefast upp“ Linda Dröfn valin kona ársins Umræðan Staðalbúnaður tungumálsins Óhreina tauið Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Reynum að fanga sál Evrópu Leggja línurnar um lágmarksbirtu í nýbyggingum Vill selja Landsbankann vegna samgöngusáttmálans Bendir á fleiri leiðir en að hækka laun Mest lesið Í gær Í vikunni Myndband: Handtaka í Hveragerði Tekur undir orð Bjarna Breyta fánareglum Reykjavíkurborgar Timburdekkið lagt niður „Grunsamleg háttsemi“ við grunnskóla Hluthafar greiði launin Leyniherbergi í Alþingishúsinu Telur fánamál Snorra ekki hafa vegið þungt Skatturinn slæm ákvörðun en Ísland nái sér á strik Einn hlaut hátt í 12 milljónir Lést við barnsburð á Landspítalanum Inga farin í veikindaleyfi Eldri hjón unnu 336 milljónir Myndband: Handtaka í Hveragerði Veðurstofan varar við eldingaveðri og gul viðvörun gengur yfir Inga Sæland: Vonast til að verða ekki lengi frá Andlát: Stefán Jökulsson Séra Kristján segir af sér vegna meints brots Einn fluttur á slysadeild eftir harðan árekstur Daði tjáir sig um símtalið við Hildi Grunnskólakennari sakaður um að maka saur Krefur móður svara: „Vinsamlega rökstyddu mál þitt“ Fjölskyldufaðir hætt kominn eftir rof á pakkningum Lést við barnsburð á Landspítalanum Einn ráðherra á meðal launahæstu ríkisstarfsmanna Hótelstjóri veitir áfallahjálp nær daglega Boðar fjöldaúrsagnir úr flokknum Verulegur munur á árangri eftir grunnskólum „Alvarlegt atvik í vesturbæ Kópavogs“ Myndband: Handtaka í Hveragerði Nýjast á mbl.is » Hrifsa heiminn úr klóm tæknirisanna Klopp að fá nýtt starf? Góð birtuskilyrði lykilþáttur „Fólk er að gefast upp“ Linda Dröfn valin kona ársins Umræðan Staðalbúnaður tungumálsins Óhreina tauið Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Bendir á fleiri leiðir en að hækka laun Meiðyrðamáli foreldranna vísað frá Líkur á að kjarasamningar bresti Vill selja Landsbankann vegna samgöngusáttmálans Mest lesið Í gær Í vikunni Myndband: Handtaka í Hveragerði Tekur undir orð Bjarna Breyta fánareglum Reykjavíkurborgar Timburdekkið lagt niður „Gruns