Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Evruskýrslan án skýrrar niðurstöðu

Read Full Article →

Innlent | Morgunblaðið | 30.5.2026 | 19:45 Evruskýrslan án skýrrar niðurstöðu Daði Már Kristófersson, fjármála- og efnahagsráðherra, birti skýrslu starfshóps í gær, en henni var skilað til ráðherra hinn 13. maí. Samsett mynd Andrés Magnússon [email protected] Setja bókamerki Tengdar fréttir Ísland og ESB Íhugar að kynna samningsmarkmið Óræð niðurstaða um krónu og evru Segja kostnaðinn við krónuna líklega meiri en ábatann Ekki gert ráð fyrir aðildarviðræðum í fjárlögum Samtalið við þjóðina um ESB er hafið » Fleiri tengdar fréttir Ný skýrsla erlendra sérfræðinga um gjaldmiðlamál Íslands dregur upp tvíbenta mynd af krónunni og hugsanlegri upptöku evru, en ekki er hægt að segja að hún auðveldi mönnum að gera upp hug sinn standi þeir frammi fyrir slíku vali. Rakið er að krónunni fylgi miklar gengissveiflur, áhættuálag, meiri óvissa og kostnaður fyrir fyrirtæki og heimili. Á hinn bóginn er minnt á að krónan hafi einatt gegnt lykilhlutverki við aðlögun hagkerfisins, sérstaklega í stóráföllum. Meginniðurstaðan er sjálfsagt sú, að upptaka evru myndi ekki leysa undirliggjandi vanda íslensks efnahagslífs nema samhliða yrði komið á meiri aga í ríkisfjármálum, breytingar gerðar á vinnumarkaði og viðhöfð öflug þjóðhagsvarúð. Því má eflaust við koma, þótt ekki verði það vandalaust, en spurningin þá kannski sú hvaða nauðsyn beri til gjaldmiðilsskipta takist eyjarskeggjum það allt. Áhrif aðildaráforma Í inngangi segir að skýrslan hafi verið unnin fyrir fjármála- og efnahagsráðherra vegna ráðgerðrar þjóðaratkvæðagreiðslu um hvort hefja skuli aðildarviðræður við Evrópusambandið (ESB) á ný og verkefnið afmarkað við valið milli krónu og evru. Það er athyglisvert, því þegar Daði Már Kristófersson, fjármála- og efnahagsráðherra, skipaði hópinn síðastliðið sumar var ekki minnst á þjóðaratkvæðagreiðsluna eða aðildarviðræður, heldur hópurinn aðeins beðinn um að „að vinna skýrslu um valkosti Íslands í gjaldmiðlamálum. „Verkefni hópsins verður að meta kosti og galla sjálfstæðs gjaldmiðils samanborið við aðild að stærra gjaldmiðlasvæði eins og evrusvæðinu.“ Niðurstöður skýrsluhöfunda eru ekki einhlítar eða afgerandi. Rakið er að Ísland skeri sig úr í norrænum samanburði með meiri sveiflum í gengi, verðbólgu, vöxtum, fjármagnsflæði og þjóðarbúskap. Gengissveiflur hafi vissulega reynst vel í stóráföllum, en ekki alltaf temprað niðursveiflur, stundum jafnvel fremur magnað áhrif þeirra en mildað. Sjálfstæð peningastefna sé hins vegar ekki gagnslaus og því slegið föstu að peningastefna Seðlabanka Íslands virki. Vaxtahækkanir geti styrkt krónuna og dregið úr verðbólgu. Það séu einna sterkustu reynslurökin fyrir því að halda eigin gjaldmiðli. Kostir og gallar Skýrslan rekur ýmsa hugsanlega kosti evruupptöku. Gjaldeyriskostnaður myndi lækka, gengisáhætta minnka gagnvart stórum hluta utanríkisviðskipta og betri aðgangur fengist að dýpri fjármálamörkuðum. Fjármagnskostnaður ríkis, fyrirtækja og heimila gæti lækkað vegna minna áhættuálags. Í skýrslunni er hins vegar ekki haldið fram að upptaka evru myndi sjálfkrafa lækka vexti, verðbólgu eða jafna sveiflur í íslensku hagkerfi. Þvert á móti er bent á að lægri vextir gætu í upphafi aukið eftirspurn og verðbólguþrýsting, nema ríkisfjármálum væri beitt hart á móti. Fyrst og síðast yrði Ísland þó án eigin peningastefnu eftir upptöku evru og þyrfti að reiða sig meira á fjárlög, vinnumarkað, launamyndun og þjóðhagsvarúð til að bregðast við áföllum. Spunnið með skýrsluna Þar með er ekki sagt að skýrslan sé gegnsýrð af pólitískum áhrifum verkbeiðenda, það er hún ekki. En uppleggið er þrengra en miðað var við og um sumt gætir ókunnugleika hinna erlendu höfunda, sem hægt hefði verið að laga með því að óska ábendinga frá t.d. Seðlabanka og Hagfræðistofnun. Hins vegar vekur athygli að kynning ráðuneytisins á skýrslunni gengur lengra en innistæða er fyrir í skýrslunni. Þar var slegið upp að kostnaður af krónunni sé líklega meiri en ábatinn, en það virðist vera ályktun ráðherra fremur en að sú staðhæfing byggist á heildstæðri kostnaðar- og ábatagreiningu. Hana er ekki að finna í skýrslunni. Sjálfsagt er ráðherra vorkunn, því miðað við málflutning Viðreisnar og annarra Evrópusambandssinna var þetta ekki skýrslan sem þeir óskuðu sér. Og er hugsanlega ástæðan fyrir því að birting hennar var látin bíða þar til eftir að Alþingi afgreiddi þingsályktunartillögu um þjóðaratkvæðagreiðslu um aðildarviðræður við ESB. Ráðherra gat þess þó að krónan væri góð í „stóráföllum“ eins og skýrsluhöfundar tíunda og nefna vitaskuld bankahrunið 2008 og eftirmál þess sérstaklega. Með evru yrðu slík viðlög ekki í boði lengur, heldur yrði að bæta samkeppnisstöðuna með meiri framleiðni, minni hagnaði, auknu atvinnuleysi eða beinni lækkun raunlauna. Ekki er það heldur svo að evruupptaka væri töfrasleggja á vextina. Skýrslan bendir til þess að fjármagnskostnaður gæti lækkað við upptöku evru, einkum vegna minna gengisáhættuálags og aukins aðgengis að stærri fjármálamörkuðum. Það kynni að lækka vexti um 0,25% til 1,0. Hins vegar er bent á að vaxtalækkun sé ekki gallalaus. Ef vaxtastig evrusvæðisins reyndist of lágt miðað við íslenskar aðstæður gæti það ýtt undir útlánavöxt og hækkun fasteignaverðs, öðru nafni bólu. Þá muni reyna á þjóðhagsvarúðartæki eins og Írar og Spánverjar hafi kynnst, en þau komi ekki að fullu í stað sjálfstæðrar peningastefnu. Niðurstaðan er því hvorki svört né hvít, heldur ákaflega grá. Evran hefur ýmsa kosti, en hún er ekki allsherjarlausn íslensks efnahagslífs, nú eða bara við háum vöxtum. Krónan er ekki gallalaus og hefur kostnað í för með sér, en í stórum efnahagsáföllum er hún ákaflega gagnleg. Evran gæti haft með sér ávinning í viðskiptum og fjármögnun, en aðeins með strangari hagstjórn en hér hefur tíðkast, sem gætu haft mikil áhrif á vinnumarkað og kjör almennings. Gjaldmiðillinn skiptir máli, en kemur ekki í stað aga í hagstjórn. Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Skoða áskriftarleiðir Innskráning Gleymt lykilorð? Kennitala: Lykilorð: Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ég er nú þegar áskrifandi Ég er ekki með notendaaðgang Tengdar fréttir Ísland og ESB Íhugar að kynna samningsmarkmið Óræð niðurstaða um krónu og evru Segja kostnaðinn við krónuna líklega meiri en ábatann Ekki gert ráð fyrir aðildarviðræðum í fjárlögum Samtalið við þjóðina um ESB er hafið » Fleiri tengdar fréttir Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » Evruskýrslan án skýrrar niðurstöðu Mourinho búinn að semja Fimm í gæsluvarðhald vegna fíkniefnamáls Bráðamatsdeild opnuð í september Þrjár jafnar á toppnum Umræðan Staðalbúnaður tungumálsins Óhreina tauið Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Eldri hjón unnu 336 milljónir Reynum að fanga sál Evrópu Lyfta grettistaki í Gambíu Evruskýrslan án skýrrar niðurstöðu Mest lesið Í gær Í vikunni Myndband: Handtaka í Hveragerði Tekur undir orð Bjarna Breyta fánareglum Reykjavíkurborgar Timburdekkið lagt niður „Grunsamleg háttsemi“ við grunnskóla Hluthafar greiði launin Leyniherbergi í Alþingishúsinu Skatturinn slæm ákvörðun en Ísland nái sér á strik Telur fánamál Snorra ekki hafa vegið þungt Miðill læknaði hann af kviðsliti Lést við barnsburð á Landspítalanum Inga farin í veikindaleyfi Eldri hjón unnu 336 milljónir Myndband: Handtaka í Hveragerði Veðurstofan varar við eldingaveðri og gul viðvörun gengur yfir Inga Sæland: Vonast til að verða ekki lengi frá Andlát: Stefán Jökulsson Séra Kristján segir af sér vegna meints brots Einn fluttur á slysadeild eftir harðan árekstur Daði tjáir sig um símtalið við Hildi Grunnskólakennari sakaður um að maka saur Krefur móður svara: „Vinsamlega rökstyddu mál þitt“ Fjölskyldufaðir hætt kominn eftir rof á pakkningum Lést við barnsburð á Landspítalanum Einn ráðherra á meðal launahæstu ríkisstarfsmanna Hótelstjóri veitir áfallahjálp nær daglega Boðar fjöldaúrsagnir úr flokknum Verulegur munur á árangri eftir grunnskólum „Alvarlegt atvik í vesturbæ Kópavogs“ Loka svæðinu eftir að víðfeðmt sprungunet var afhjúpað Nýjast á mbl.is » Evruskýrslan án skýrrar niðurstöðu Mourinho búinn að semja Fimm í gæsluvarðhald vegna fíkniefnamáls Bráðamatsdeild opnuð í september Þrjár jafnar á toppnum Umræðan Staðalbúnaður tungumálsins Óhreina tauið Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Margt jákvætt í nýjum verðbólgutölum Menn „passlega ánægðir og passlega óánægðir“ Breytingar boðaðar í borginni Segja stöðuna betri: „Skiljanlega er fólki brugðið“ Mest lesið Í gær Í vikunni Myndband: Handtaka í Hveragerði Tekur undir orð Bjarna Breyta fánareglum Reykjavíkurborgar Timburdekkið lagt niður „Grunsamleg háttsemi“ við grunnskóla Hluthafar greiði launin Leyniherbergi í Alþingishúsinu Skatturinn slæm ákvörðun en Ísland nái sér á strik Telur fánamál Snorra ekki hafa vegið þungt Miðill læknaði hann af kviðsliti Lést við barnsburð á Landspítalanum Inga farin í veikindaleyfi Eldri hjón unnu 336 milljónir Myndband: Handtaka í Hveragerði Veðurstofan varar við eldingaveðri og gul viðvörun gengur yfir Inga Sæland: Vonast til að verða ekki lengi frá Andlát: Stefán Jökulsson Séra Kristján segir af sér vegna meints brots Einn fluttur á slysadeild eftir harðan árekstur Daði tjáir sig um símtalið við Hildi Grunnskólakennari sakaður um að maka saur Krefur móður svara: „Vinsamlega rökstyddu mál þitt“ Fjölskyldufaðir hætt kominn eftir rof á pakkningum Lést við barnsburð á Landspítalanum Einn ráðherra á meðal launahæstu ríkisstarfsmanna Hótelstjóri veitir áfallahjálp nær dagl

Share this article