Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Stór og stæði­legur raf­jeppi fyrir ís­lenskar aðstæður

  • What: New Kia EV5 electric SUV released
  • Impact: Offers extended range and features for electric vehicle market
Read Full Article →

EV5 er nýr sportjeppi í ört stækkandi rafbílaflóru Kia. Bíllinn var fyrst prófaður í vetur við frekar erfiðar aðstæður, í miklum snjó og hálfgerðri ófærð. Þrátt fyrir að vera framhjóladrifinn stóðst hann þessa prófraun óaðfinnanlega. Veghæðin skipti þar einhverju, sem og krafturinn. EV5 situr mitt á milli EV3 og EV9 í stærð og er ætlaður sem rafmagnsvalkostur við hinn vinsæla Kia Sportage. Hann er líkastur EV9 í hönnun, með frekar kassalaga og upprétta hönnun og Tiger Face-framenda. Brettin eru stór og ferköntuð og er hann með meira jeppaútlit en margir rafbílar Kia. Vegfrí hæð er 167 mm. EV5 er með 81,4 kWh rafhlöðu og er drægni bílsins allt að 530 km. Bíllinn sem var reynsluekið er af gerðinni Earth og er 217 hestöfl og hröðunin í 100 km/klst er 8,4 sekúndur. Bíllinn er ríkulega útbúinn af staðalbúnaði, m.a. lyklalausu aðgengi og ræsingu, hljóðdempunarfilmu á framrúðu, forhitunarmöguleika, íslensku leiðsögukerfi o.m.fl. Hann kemur á 18" álfelgum í Air-útgáfunni en í Earth er hann á 19". Earth býður aukalega upp á 360° myndavél, aðkomuljós í fram- og afturhurðum, kælingu í framsætum og stemningslýsingu. Mælaborðið samanstendur af tveimur 12,3" skjáum sem mynda skemmtilega heild. Innanrýmið flott og vel hannað Innanrýmið er einn stærsti styrkleiki bílsins, það er virkilega flott og vel hannað. Þar leggur Kia áherslu á þægindi, einfaldleika og notagildi. Mælaborðið samanstendur af 12,3" LCD mælaborði og 12,3" margmiðlunarskjá sem mynda skemmtilega heild. Þeir eru alls ekki of stórir og í góðri sjónlínu fyrir ökumann. Þá eru stjórntakkar undir margmiðlunarskjánum fyrir flýtileiðir í skjánum sem og fyrir miðstöðina. Í stýrinu eru einfaldir og þægilegir takkar fyrir útvarp sem og hraðastillir og stilling fyrir fjarlægðaskynjara o.fl. Sætin eru svokölluð Premium Relaxation-sæti og eru, eins og nafnið segir til um, mjög þægileg og veita líka réttan stuðning. Framsætin eru með hita og í Earth-útgáfunni eru aftursætin einnig með hita. Nóg fóta- og höfuðpláss er fyrir aftursætisfarþega og mikið fótarými og flatt gólf gera ferðalög þægileg fyrir fjölskyldur og farþega. Flott umhverfislýsing er í EV5 sem aðlagast akstursstillingum. Farangursrýmið er einnig stórt og hagnýtt. Farangursrýmið er 566 lítrar með sætin uppi og auk þess er 44,4 lítra aukageymslupláss undir húddinu að framan fyrir hleðslukapla eða smáhluti. Fyrirtaks aksturseiginleikar Aksturseiginleikar bílsins eru fyrirtaks góðir fyrir svona stóran bíl, en heildarlengd bílsins er 4610 mm og heildarbreiddin 1875 mm. Hjólhafið er 2750 mm. EV5 er með frekar kassalagaða og upprétta hönnun. Í Earth-útfærslunni er EV5 með 19" álfelgur. Frekar hljóðlátur og mjúkur í akstri Rafmótorinn skilar um 217 hestöflum, sem er meira en nóg fyrir venjulegan akstur, og hröðunin er mjúk og þægileg. Bíllinn er 8,4 sekúndur í hundraðið, sem er ágætt fyrir bíl í þessum flokki. Það segir kannski sitt um áherslur Kia að með EV5 er hugsunin góður fjölskyldubíll frekar en sportlegur jeppi, eins margir samkeppnisaðilar leggja áherslu á. Eigin þyngd bílsins er rétt undir tveimur tonnum og er dráttargeta á framhjóladrifnum EV5 1200 kg. Rafhlaðan er 81,4 kWh og drægnin getur farið upp í um 530 kílómetra samkvæmt WLTP-staðli. Hleðslutíminn er um 8 og hálfur klukkutími í 11 kW AC heimahleðslu en í hraðhleðslu tekur um 30 mínútur að hlaða hann úr 10 í 80%. Í heildina er Kia EV5 mjög vel heppnaður fjölskyldurafjeppi sem leggur áherslu á þægindi, rými og einfalda notkun fremur en sportlegan karakter. Hann hentar sérstaklega vel fólki sem vill rúmgóðan, nútímalegan og hljóðlátan rafbíl til daglegrar notkunar. EV5 verður einnig í boði fjórhjóladrifinn og koma fyrstu bílarnir í lok sumars. Verð fyrir framhjóladrifinn EV5 er frá 8.190.777 kr. KIA EV5 Tígrisandlitið Digital Tiger Face er endurtúlkun á hönnunarauðkenni Kia, Tiger Nose, sem hefur verið aðlöguð fyrir rafbíla. Hönnunin var kynnt með Kee-hugmyndabílnum á bílasýningunni í Frankfurt árið 2007 og varð Tiger Nose fljótt táknræn hönnun fyrir Kia. Með þróun frá hefðbundnu grillinu yfir í Tiger Face, þar sem framljósin tengjast hönnuninni, var Digital Tiger Face fyrst kynnt með EV6 og síðar einnig notuð á EV9 og nú á EV5. Nánar er fjallað um málið í sérblaðinu Bílar , sem fylgdi Viðskiptablaðinu. Áskrifendur geta lesið viðtalið í heild hér .

Share this article