Nýr meirihluti Sjálfstæðisflokks, Viðreisnar og Framsóknarflokks leggur fram tillögur sínar á fyrsta fundi nýrrar borgarstjórnar Reykjavíkur, sem haldinn verður á þriðjudag. Meðal tillagna er stofnun starfshóps um hagræðingar og stjórnkerfisbreytingar í borgarkerfinu. Hópurinn á að fara yfir rekstur og stjórnsýslu borgarinnar og er tillagan stærsta pólitíska málið á dagskrá fundarins. Samkvæmt fundargögnum er einnig lagt til að ráðist verði í breytingar á nefndakerfi borgarinnar. Meðal annars er gert ráð fyrir stofnun nýs leikskóla- og daggæsluráðs, menningarráðs og öldungaráðs, auk þess sem lagt er til að stafrænt ráð verði lagt niður. Annað mál sem líklegt er til að vekja athygli er tillaga um að fella niður reglur Reykjavíkurborgar um notkun fána við stjórnsýsluhús borgarinnar. Með því yrðu sérstakar reglur um hvaða fána megi draga að húni afnumdar. Meðal annarra mála á dagskrá fundarins eru tillaga um endurskoðun samgöngusáttmála höfuðborgarsvæðisins, tillaga um samstarf við atvinnulífið um rekstur leikskóla og daggæslu og tillaga um lengri opnunartíma sundlauga í Reykjavík. Þá verður einnig fjallað um breytingar á deiliskipulagi við Suðurlandsbraut. Fundurinn markar upphaf nýs kjörtímabils í Reykjavík en þar verður jafnframt kosið í borgarráð og helstu ráð og nefndir borgarinnar auk þess sem borgarstjóri verður kjörinn. Dagskrá fundarins: Borgarstjórn Reykjavíkur 2. júní 2026