Eftirspurn eftir hlutdeildarlánum í maí var nær þreföld á við það fjármagn sem var til úthlutunar hjá Húsnæðis- og mannvirkjastofnun. Alls voru 458 milljónir króna til úthlutunar í mánuðinum, líkt og í fyrri úthlutunum ársins, en sótt var um hlutdeildarlán fyrir um 1.300 milljónir króna. Þetta kemur fram í tilkynningu frá HMS. HMS hefur lokið við úthlutun hlutdeildarlána í maí. Alls voru 78 umsóknir til yfirferðar, þar af 36 umsóknir sem bárust í fyrri mánuðum ársins. Í langflestum umsóknum lá fyrir samþykkt kauptilboð í fasteign sem hafði verið samþykkt af HMS og uppfyllti skilyrði hlutdeildarlána. Slíkar umsóknir njóta forgangs umfram umsóknir þar sem kauptilboð liggur ekki fyrir. Eftir yfirferð HMS uppfylltu 63 umsóknir öll skilyrði til úthlutunar. Heildarfjárhæð þeirra nam um 985 milljónum króna. Þar sem umsótt fjárhæð var umfram það fjármagn sem var til úthlutunar þurfti að velja af handahófi úr hópi umsókna sem uppfylltu öll skilyrði. Þetta er þriðji mánuðurinn í röð sem slíku fyrirkomulagi er beitt. Alls voru 33 umsóknir dregnar út af fulltrúa sýslumannsins á höfuðborgarsvæðinu, í samræmi við forgangsreglur úthlutunar. Heildarfjárhæð úthlutaðra lána nam um 530 milljónum króna. Samtals hlutu 30 umsækjendur ekki úthlutun í maí þrátt fyrir að uppfylla öll skilyrði. Þeim hefur verið boðið að halda umsókn sinni opinni og færa hana yfir í úthlutun í júní. Hlutdeildarlán eru veitt til kaupa á nýjum íbúðum og eru ætluð fyrstu kaupendum, sem og þeim sem ekki hafa átt fasteign síðustu fimm ár og eru undir tilteknum tekjumörkum. Markmið lánanna er að aðstoða fyrstu kaupendur við að komast inn á húsnæðismarkaðinn með því að brúa bilið við fasteignakaup.