Stjórnir SL lífeyrissjóðs og Almenna-Lífsverks lífeyrissjóðsins hafa ákveðið að hefja könnunarviðræður um mögulega sameiningu sjóðanna. Þetta kemur fram í tilkynningu frá stjórnum sjóðanna. Markmið viðræðnanna er að kanna hvort sameinaður lífeyrissjóður myndi skapa sterkari grunn fyrir hagstæð og trygg lífeyrisréttindi sjóðfélaga beggja sjóða, bæta þjónustu við sjóðfélaga og hvort samlegðaráhrif myndu leiða til hagræðingar í rekstri. Verði af sameiningunni yrði hinn sameinaði sjóður fjórði stærsti lífeyrissjóður landsins. Heildareignir hans næmu 1.035 milljörðum króna miðað við stöðu eigna í lok síðasta árs. Viðræðurnar eru á frumstigi en stefnt er að því að þeim ljúki fyrir mitt sumar. Náist samkomulag verða tillögur um sameiningu sjóðanna og breytingar á samþykktum lagðar fyrir stjórnar- og sjóðfélagafundi í haust. Markmiðið er að sjóðirnir sameinist 1. janúar 2027. Sameiningin er háð samþykki fjármála- og efnahagsráðuneytisins að fenginni umsögn Fjármálaeftirlitsins. Þá er sameiningin háð breytingum á lögum um SL lífeyrissjóð og eru samtöl við fjármála- og efnahagsráðuneytið hafin vegna þess. Jafnframt yrði sameiningin tilkynnt Samkeppniseftirlitinu.