Mikil orkunotkun gagnavera á Írlandi hefur hækkað rafmagnsreikninga heimila í landinu um hundruð evra á síðustu árum. Þetta kemur fram á vef Guardian en þar segir að þróunin gæti verið svipuð annars staðar í Evrópu í framtíðinni. Samkvæmt gögnum frá írsku hagstofunni notuðu gagnaver á Írlandi 22% af allri raforku landsins á síðasta ári en það er meira en öll heimili innan þéttbýlis samanlagt. Skýrsla, sem var unnin af samtökunum Friends of the Earth Ireland og Beyond Fossil Fuels, segir að aukin raforkuþörf gagnavera hafi hækkað rafmagnsreikninga írskra heimila að meðaltali um 360 evrur milli 2015 og 2023. Sjá einnig Gagnaverin knýja vöxt Höfundar skýrslunnar halda því fram að írsk heimili hafi í raun verið látin niðurgreiða starfsemi stórra tæknifyrirtækja með földum gagnaveraskatti á rafmagnsreikningum sínum. Írsk heimili gætu jafnframt þurft að greiða að meðaltali 295 til 644 evrur til viðbótar milli 2025 og 2034 vegna aukinnar uppbyggingar gagnavera. Á landsvísu myndi það samsvara kostnaði upp á 633 milljónir til 1,43 milljarða evra.