Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Um 30 stöðugildi verða lögð niður

Read Full Article →

Starfsmönnum Bláa lónsins voru í dag kynntar skipulagsbreytingar í höfuðstöðvum félagsins. Breytingarnar fela það í sér að 29 stöðugildi verða lögð niður, 55 starfsmenn flytjast á milli sviða og ráðið verður í ný störf sem ekki voru til innan félagsins. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Bláa lóninu en þar segir jafnframt að skipurit félagsins verði uppfært samhliða breytingum. „Markmið breytinganna eru fyrst og fremst að skerpa á hlutverki móðurfélagsins í þjónustu sinni við dótturfélögin. Við viljum gera skilin á milli kjarnastarfsemi og stoðstarfsemi skýrari, auka áherslu á sölu og markaðssetningu með tækni, tryggja örugga framkvæmd þróunar- og fjárfestingaverkefna en á sama tíma sækja nauðsynlega hæfni til þess að ná árangri í framtíðinni,“ segir Sigríður Margrét Oddsdóttir forstjóri Bláa Lónsins. Sjá einnig For­stjóri Bláa Lónsins tjáir sig um skráningu Heildarfjöldi stöðugilda hjá samstæðunni lækkar úr 807 í 778 við breytingarnar og eftir þær starfa alls 116 í höfuðstöðvum félagsins. Engar breytingar voru gerðar á rekstri dótturfélaga innan samstæðunnar. „Í dag sjáum við á eftir góðu samstarfsfólki sem hefur staðið sig mjög vel og við óskum því alls hins besta.“

Share this article