Innlent | Morgunblaðið | 28.5.2026 | 6:00 Andlát: Stefán Carlsson Stefán Carlsson. Setja bókamerki Stefán Carlsson bæklunarskurðlæknir lést 23. maí síðastliðinn, tæplega 77 ára að aldri. Stefán fæddist 29. maí 1949 í Reykjavík. Foreldrar hans voru Carl Pétur Stefánsson, rafvirki og bankamaður, og Guðríður Lilja Jónsdóttir húsfreyja. Stefán varð stúdent frá Menntaskólanum við Hamrahlíð 1970 og lauk læknisprófi frá Háskóla Íslands árið 1976. Hann var aðstoðarlæknir á Borgarspítalanum 1976 til 1979 og fór þá til náms við háskólann í Västerås í Svíþjóð þar sem hann lauk sérfræðinámi í bæklunarskurðlækningum árið 1983. Stefán flutti þá til Íslands ásamt fjölskyldu sinni og starfaði eftir það sem bæklunarskurðlæknir á Borgarspítalanum og síðar Landspítalanum, lengst af á slysa- og bráðamóttökunni í Fossvogi. Stefán var með fyrstu læknum á þyrlum Landhelgisgæslunnar og hann var um árabil læknir íslenska karlalandsliðsins í handknattleik, átti jafnframt sæti í landsliðsnefnd HSÍ. Stefán var meðal stofnenda Orkuhússins við Suðurlandsbraut árið 2003, ásamt fleiri læknum, og sat þar í stjórn fyrstu árin. Þá var hann um tíma formaður Bæklunarlæknafélags Íslands og sótti margar ráðstefnur erlendis á vegum þess. Stefán sinnti ýmsum félagsstörfum og áhugamálum, var mikill Valsari og starfaði lengi fyrir félagið. Hann var um árabil félagi í Oddfellowreglunni þar sem hann starfaði í stúkunni Þorgeiri, m.a. sem yfirmeistari. Stefán hafði mikinn áhuga á flugustangveiði og var reglulegur gestur í helstu laxveiðiám landsins. Fékk hann snemma áhuga á veiðinni er hann var í sveit í Vatnsdalnum sem ungur drengur. Eftirlifandi eiginkona Stefáns er Rannveig Ásbjörnsdóttir, f. 1949. Börn þeirra eru Hrönn, f. 1975, og Ásbjörn, f. 1979. Barnabörnin eru níu talsins. Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » Hegðunin ljót undir áhrifum áfengis „Það verður ekkert hik á okkur“ Segja Ísland ógna útgáfufrelsi Andlát: Stefán Carlsson Verulegur munur á árangri eftir grunnskólum Umræðan Hræðsluáróður um staðreyndir Fyrirspurn til Kristrúnar Frostadóttur Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Segja Ísland ógna útgáfufrelsi Samgöngusáttmálinn helsta þrætueplið Skipta bókavörðum safnsins út fyrir öryggisverði Gripinn við að sækja Fedex-sendingu í Hafnarfirði Mest lesið Í gær Í vikunni Stakk mann og sló annan með járnröri í höfuðið Kynna ný gögn í Óshlíðarmálinu fyrir lögreglu Þingmenn fái aðgang að trúnaðargögnum um ESB Ákvað strax að liggja ekki bara yfir bókunum Boðar fjöldaúrsagnir úr flokknum Skipta bókavörðum safnsins út fyrir öryggisverði Þingfundur á morgun: Miðflokkurinn einn í húsi Icelandair: Flugfarþegar þurfa ekki að hafa áhyggjur Búið er að finna konuna Segir misskilning að fyrirtæki græði á að gera upp í evru Boðar fjöldaúrsagnir úr flokknum Grunnskólakennari sakaður um að maka saur Óbærileg ár fram undan Hildur Björnsdóttir verður borgarstjóri Fulltrúar þriggja flokka undirrita samning í Viðey Afhenti Daða 42 þúsund undirskriftir Búið er að finna konuna Ari Edwald: „Mjög skrýtið“ Gripinn við að sækja Fedex-sendingu í Hafnarfirði Þórarna nýr forstjóri Grunnskólakennari sakaður um að maka saur Krefur móður svara: „Vinsamlega rökstyddu mál þitt“ Einn ráðherra á meðal launahæstu ríkisstarfsmanna Hótelstjóri veitir áfallahjálp nær daglega Enginn mætti frá ríkisstjórninni „Alvarlegt atvik í vesturbæ Kópavogs“ Boðar fjöldaúrsagnir úr flokknum „Fólk verður bara lasnara og lasnara“ Öllum sagt upp hjá Hilton og Natura Hildur: „Hann lék tveimur skjöldum“ Nýjast á mbl.is » Hegðunin ljót undir áhrifum áfengis „Það verður ekkert hik á okkur“ Segja Ísland ógna útgáfufrelsi Andlát: Stefán Carlsson Verulegur munur á árangri eftir grunnskólum Umræðan Hræðsluáróður um staðreyndir Fyrirspurn til Kristrúnar Frostadóttur Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Ari Edwald: „Mjög skrýtið“ Kynna ný gögn í Óshlíðarmálinu fyrir lögreglu Inga kynnir áform um einkunnabreytingu Selenskí bað Trump um fleiri skotfæri Mest lesið Í gær Í vikunni Stakk mann og sló annan með járnröri í höfuðið Kynna ný gögn í Óshlíðarmálinu fyrir lögreglu Þingmenn fái aðgang að trúnaðargögnum um ESB Ákvað strax að liggja ekki bara yfir bókunum Boðar fjöldaúrsagnir úr flokknum Skipta bókavörðum safnsins út fyrir öryggisverði Þingfundur á morgun: Miðflokkurinn einn í húsi Icelandair: Flugfarþegar þurfa ekki að hafa áhyggjur Búið er að finna konuna Segir misskilning að fyrirtæki græði á að gera upp í evru Boðar fjöldaúrsagnir úr flokknum Grunnskólakennari sakaður um að maka saur Óbærileg ár fram undan Hildur Björnsdóttir verður borgarstjóri Fulltrúar þriggja flokka undirrita samning í Viðey Afhenti Daða 42 þúsund undirskriftir Búið er að finna konuna Ari Edwald: „Mjög skrýtið“ Gripinn við að sækja Fedex-sendingu í Hafnarfirði Þórarna nýr forstjóri Grunnskólakennari sakaður um að maka saur Krefur móður svara: „Vinsamlega rökstyddu mál þitt“ Einn ráðherra á meðal launahæstu ríkisstarfsmanna Hótelstjóri veitir áfallahjálp nær daglega Enginn mætti frá ríkisstjórninni „Alvarlegt atvik í vesturbæ Kópavogs“ Boðar fjöldaúrsagnir úr flokknum „Fólk verður bara lasnara og lasnara“ Öllum sagt upp hjá Hilton og Natura Hildur: „Hann lék tveimur skjöldum“