Innlent | mbl | 27.5.2026 | 15:58 Segir Björgu og Einar hafa lúffað fyrir Hildi Pétur Marteinsson oddviti Samfylkingarinnar. mbl.is/Eggert Jóhannesson Setja bókamerki Tengdar fréttir Sveitarstjórnarkosningar Miðflokksmenn óánægðir með ákvörðun Hildar Boðar fjöldaúrsagnir úr flokknum Ari Edwald: „Mjög skrýtið“ Meirihlutinn starfar áfram næstu fjögur árin „Meirihluti sem ég reyndi að mynda fyrir 15 mánuðum“ » Fleiri tengdar fréttir Pétur Marteinsson, oddviti Samfylkingarinnar, telur Viðreisn og Framsókn hafa gefið eftir nær öll sín stefnumál með því að ganga til meirihlutasamstarfs með Sjálfstæðisflokki. Þá telur hann ólíklegt að flokkur hans muni ná miklum málefnalegum snertifleti við Miðflokkinn í samstarfi flokkanna í stjórnarandstöðu. Sjálfstæðisflokkur, Framsókn og Viðreisn tilkynntu fyrr í dag að samningar hefðu náðst flokkanna á milli um að starfa saman í borgarstjórn og var málefnalisti nýs meirihluta birtur sem Pétur telur bera sterkt handbragð Sjálfstæðisflokks. „Ég óska Hildi Björnsdóttur til hamingju með nýjan meirihluta og hlakka til að vinna með þeim og sérstaklega veita þeim ríkt aðhald sem ég tel líklegt að verði mikið,“ segir Pétur í samtali við mbl.is. „Af því litla sem maður hefur séð frá flokkunum er augljóst að Framsókn og Viðreisn hafa gefið eftir í nær öllum sínum málum, þá sérstaklega í samgöngumálum þar sem Björg talaði um að framkvæmdir samgöngusáttmála ættu að hefjast tafarlaust og ég minni á að Einar Þorsteinsson skrifaði undir samgöngusáttmálann fyrir 18 mánuðum,“ segir Pétur. „Í pólitíkinni myndast oft svona stemmning fyrir breytingum en mér finnst það mikið ábyrgðarmál að flokkarnir standi við samgöngusáttmálann. Þetta snertir ekki bara Reykjavíkurborg heldur einnig nærliggjandi sveitarfélög og ríkið. Þau hafa greinilega samþykkt allt frá Sjálfstæðisflokknum.“ Kjósendur Sjálfstæðisflokks hafi viljað starfa með Miðflokki Spurður hvort hann telji það klókt útspil hjá Hildi Björnsdóttur, verðandi borgarstjóra, að velja þessa flokka til samstarfs frekar en Miðflokkinn segist Pétur ekki alveg átta sig á því. Ljóst hafi verið að kjósendur Sjálfstæðisflokks hafi frekar viljað starfa með Miðflokki. „Satt að segja átta ég mig ekki á því hvert pólitíska trixið bak við það að vinna með Viðreisn og Framsókn sé fremur en að vinna með Miðflokki. Það var vitað að kjósendur Sjálfstæðisflokksins vildu vinna með Miðflokki svo það verður áhugavert að sjá hvernig mun ganga þegar þessi meirihluti sýnir meira á spilin.“ „Ef ég á að vera alveg heiðarlegur þá er alveg himinn og haf milli okkar og Miðflokksins málefnalega. Við erum auðvitað opin fyrir góðu samstarfi við alla, en við í Samfylkingunni munum þó ekki víkja frá hugmyndafræði jafnaðarmennskunnar,“ segir Pétur. Að lokum segir hann Reykjavík hafa verið í mikilli sókn undanfarin ár og að mikilvægt sé að uppbyggingu verði haldið áfram af sama krafti. Hann telur það áhyggjuefni muni meirihlutinn víkja frá áherslum jafnaðarmennsku í áframhaldandi uppbyggingu og því sé mikilvægt starf fram undan fyrir Samfylkinguna í stjórnarandstöðu. Tengdar fréttir Sveitarstjórnarkosningar Miðflokksmenn óánægðir með ákvörðun Hildar Boðar fjöldaúrsagnir úr flokknum Ari Edwald: „Mjög skrýtið“ Meirihlutinn starfar áfram næstu fjögur árin „Meirihluti sem ég reyndi að mynda fyrir 15 mánuðum“ » Fleiri tengdar fréttir Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Icelandair: Flugfarþegar þurfa ekki að hafa áhyggjur Hola í höggi á fyrsta 18 holu hringnum Brassinn að fá starf í Evrópu Íslendingar draga saman seglin en ferðamenn ekki Sjúkrabíll og sexhjól kölluð út að Helgafelli Umræðan Tæknin lækkar fæðingartíðni Dýrabær lifir enn góðu lífi Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Óbærileg ár fram undan Inga kynnir áform um einkunnabreytingu Gera má ráð fyrir snjó og krapa á vegum Hér má skoða samstarfssáttmála nýs meirihluta Mest lesið Í gær Í vikunni Grunnskólakennari sakaður um að maka saur Fulltrúar þriggja flokka undirrita samning í Viðey Hildur Björnsdóttir verður borgarstjóri Óbærileg ár fram undan Boðar fjöldaúrsagnir úr flokknum Þórarna nýr forstjóri Gantaðist með götuheiti á borgarstjórnarfundi Afhenti Daða 42 þúsund undirskriftir Ari Edwald: „Mjög skrýtið“ Óvissan í fluginu bætist við mótvind Einn ráðherra á meðal launahæstu ríkisstarfsmanna Hótelstjóri veitir áfallahjálp nær daglega Grunnskólakennari sakaður um að maka saur Sagt að hafa veitingastað Safna undirskriftum gegn nýjum meirihluta Niðurrif húsa hefst brátt á Traðarreit Íhugar að flytja úr landi vegna skattastefnu Valdimar kveður: Síðustu dagar verið krefjandi Hret í kortunum og líkur á snjókomu „Hvaða hörmung ertu kominn með?“ Krefur móður svara: „Vinsamlega rökstyddu mál þitt“ Blóðugur reikningur á Tenerife Grunnskólakennari sakaður um að maka saur Einn ráðherra á meðal launahæstu ríkisstarfsmanna Enginn mætti frá ríkisstjórninni Hótelstjóri veitir áfallahjálp nær daglega „Alvarlegt atvik í vesturbæ Kópavogs“ „Fólk verður bara lasnara og lasnara“ Öllum sagt upp hjá Hilton og Natura Hildur: „Hann lék tveimur skjöldum“ Nýjast á mbl.is » Icelandair: Flugfarþegar þurfa ekki að hafa áhyggjur Hola í höggi á fyrsta 18 holu hringnum Brassinn að fá starf í Evrópu Íslendingar draga saman seglin en ferðamenn ekki Sjúkrabíll og sexhjól kölluð út að Helgafelli Umræðan Tæknin lækkar fæðingartíðni Dýrabær lifir enn góðu lífi Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Ari Edwald: „Mjög skrýtið“ Afhenti Daða 42 þúsund undirskriftir Inga kynnir áform um einkunnabreytingu Hildur Björnsdóttir verður borgarstjóri Mest lesið Í gær Í vikunni Grunnskólakennari sakaður um að maka saur Fulltrúar þriggja flokka undirrita samning í Viðey Hildur Björnsdóttir verður borgarstjóri Óbærileg ár fram undan Boðar fjöldaúrsagnir úr flokknum Þórarna nýr forstjóri Gantaðist með götuheiti á borgarstjórnarfundi Afhenti Daða 42 þúsund undirskriftir Ari Edwald: „Mjög skrýtið“ Óvissan í fluginu bætist við mótvind Einn ráðherra á meðal launahæstu ríkisstarfsmanna Hótelstjóri veitir áfallahjálp nær daglega Grunnskólakennari sakaður um að maka saur Sagt að hafa veitingastað Safna undirskriftum gegn nýjum meirihluta Niðurrif húsa hefst brátt á Traðarreit Íhugar að flytja úr landi vegna skattastefnu Valdimar kveður: Síðustu dagar verið krefjandi Hret í kortunum og líkur á snjókomu „Hvaða hörmung ertu kominn með?“ Krefur móður svara: „Vinsamlega rökstyddu mál þitt“ Blóðugur reikningur á Tenerife Grunnskólakennari sakaður um að maka saur Einn ráðherra á meðal launahæstu ríkisstarfsmanna Enginn mætti frá ríkisstjórninni Hótelstjóri veitir áfallahjálp nær daglega „Alvarlegt atvik í vesturbæ Kópavogs“ „Fólk verður bara lasnara og lasnara“ Öllum sagt upp hjá Hilton og Natura Hildur: „Hann lék tveimur skjöldum“