Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

„Meirihluti sem ég reyndi að mynda fyrir 15 mánuðum“

Read Full Article →

Innlent | mbl | 27.5.2026 | 12:57 „Meirihluti sem ég reyndi að mynda fyrir 15 mánuðum“ Björg Magnúsdóttir, oddviti Viðreisnar, Hildur Björnsdóttir, oddviti Sjálfstæðisflokksins, og Einar Þorsteinsson, oddviti Framsóknar. mbl.is/Eggert Jóhannesson Setja bókamerki Tengdar fréttir Sveitarstjórnarkosningar Sigmundur Davíð: „Augljóst í hvað stefndi“ Hér má skoða samstarfssáttmála nýs meirihluta Samgöngusáttmálinn helsta þrætueplið Hildur Björnsdóttir verður borgarstjóri Fulltrúar þriggja flokka undirrita samning í Viðey » Fleiri tengdar fréttir Samgöngusáttmáli höfuðborgarsvæðisins Hér má skoða samstarfssáttmála nýs meirihluta Samgöngusáttmálinn helsta þrætueplið Meira fjármagn myndi flýta Miklubrautargöngum Boðar aukið samstarf við atvinnurekendur Framkvæmdum seinkað um sjö ár að meðaltali » Fleiri tengdar fréttir „Loksins er kominn meirihluti sem hefur sameiginlega sýn á hvað skiptir máli hérna í Reykjavík,“ segir Einar Þorsteinsson, oddviti Framsóknar í Reykjavík, um nýjan meirihluta borgarstjórnar. Tilkynnt var um meirihlutasamstarf Sjálfstæðisflokksins, Framsóknarflokksins og Viðreisnar fyrr í dag. Mun Hildur Björnsdóttir taka við embætti borgarstjóra á meðan Einar verður formaður borgarráðs og Björg Magnúsdóttir, oddviti Viðreisnar, forseti borgarstjórnar. Frétt af mbl.is Hildur Björnsdóttir verður borgarstjóri „Meirihluti sem ég reyndi að mynda fyrir 15 mánuðum“ „Þetta leggst bara mjög vel í mig. Þetta er í raun og veru meirihluti sem ég reyndi að mynda fyrir fimmtán mánuðum síðan, þá var reyndar Flokkur fólksins með en kjósendur töldu að þetta væri nóg,“ segir Einar í samtali við mbl.is. „Við erum svona aðeins að horfast í augu við áskoranirnar í Reykjavík og mér hefur fundist fókusinn vera allt of víða, á málefni sem brenna ekkert endilega á borgarbúum, þannig að ég bind miklar vonir við það að þessi meirihluti nái miklum árangri hratt.“ Frétt af mbl.is Hér má skoða samstarfssáttmála nýs meirihluta Voru ekki ósammála um margt Þið töluðuð um að þið hefðuð verið ansi mikið sammála. Hvar voruð þið ekki sammála? „Ég myndi ekki segja að við höfum verið ósammála um margt, eða eiginlega um nokkurn skapaðan hlut. Við þurftum auðvitað að tala okkur í gegnum sameiginlega sýn hvað varðar samgöngusáttmálann og þær fjárfestingar. Aðalatriðið þar er að vera með praktíska og skynsama nálgun um það hvernig við náum sem mestum árangri fyrir borgarbúa og svörum því ákalli sem myndaðist í þessari kosningabaráttu,“ segir Einar. Aðspurður segir Einar að breytingar verði á skipulagi Suðurlandsbrautar. „Já, augljóslega. Það var ákall um það og við töluðum öll fyrir því að staldra við, taka skipulagið til baka og vinna það betur í samvinnu við hagaðila þarna. Það er bara eitt af okkar allra fyrstu verkum.“ Frétt af mbl.is Samgöngusáttmálinn helsta þrætueplið Meiri stöðugleiki með þriggja flokka stjórn Þú vísaðir áðan til Flokks fólksins. Heldurðu að þau hafi ekki lært af ykkar reynslu? „Þau fóru í meirihluta þar sem þau náðu ekki árangri. Þeim bauðst að koma í meirihluta með okkur, þessum flokkum, og hættu við, þrátt fyrir yfirlýsingar um annað, og nú eru þau ekki lengur í borgarstjórn vegna þess að borgarbúar vilja flokka sem eru tilbúnir í breytingar.“ Þá segist Einar ánægður með að nú séu þrír flokkar í meirihluta og telur hann það munu sýna meiri stöðugleika en ef fleiri flokkar væru við völd. „Við sáum að það gerðist ekki neitt í Reykjavík og ákallið um breytingar var enn skýrara en nokkru sinni áður.“ Erfitt að sjá á eftir borgarstjórastólnum Telurðu að það hafi þjónað þér vel í þessum kosningum að hafa slitið meirihlutanum síðast? „Ég held að það þjóni stjórnmálamönnum almennt vel að standa á sannfæringu sinni og vinna fyrir borgarbúa fyrst og fremst en ekki bara þiggja valdastólana og góð laun, sama hvað. Það var ekki auðvelt fyrir mig að taka þá ákvörðun að slíta síðasta meirihluta. Það var mjög þungbær ákvörðun að gera það. Það var erfitt að sjá á eftir borgarstjórastólnum í hendurnar á öðrum flokkum, en ég er stoltur af því að hafa tekið þessa ákvörðun vegna þess að ég fann að hún var rétt og það er það sem skiptir máli á endanum þegar maður leggst á koddann.“ Spenntur fyrir því að setjast niður með starfsfólki borgarinnar Hverju ertu spenntastur fyrir af þeim verkefnum sem þið hafið sett ykkur á þessu kjörtímabili? „Ég veit að starfsfólk Reykjavíkurborgar, þeir sem vinna inni í kerfinu, vill breytingar. Það veit hvar hægt er að gera betur. Ég hlakka til að setjast niður með starfsfólki borgarinnar og vinna að breytingum á borginni með því; stjórnkerfisbreytingum, breytingu á þjónustunni, fá meiri árangur út úr okkar frábæra starfsfólki sem hefur horft upp á stöðnun. Það finnst mér spennandi og ég fann það þegar ég var borgarstjóri að kerfið var til í þetta, að breyta, en það vantaði pólitíska samstöðu um þær breytingar. Þannig ég hlakka til að setjast núna niður með starfsfólki borgarinnar, ég gegni embætti formanns borgarráðs fyrst um sinn og þetta eru fyrstu verkefnin. Ég hlakka til þess.“ Tengdar fréttir Sveitarstjórnarkosningar Sigmundur Davíð: „Augljóst í hvað stefndi“ Hér má skoða samstarfssáttmála nýs meirihluta Samgöngusáttmálinn helsta þrætueplið Hildur Björnsdóttir verður borgarstjóri Fulltrúar þriggja flokka undirrita samning í Viðey » Fleiri tengdar fréttir Samgöngusáttmáli höfuðborgarsvæðisins Hér má skoða samstarfssáttmála nýs meirihluta Samgöngusáttmálinn helsta þrætueplið Meira fjármagn myndi flýta Miklubrautargöngum Boðar aukið samstarf við atvinnurekendur Framkvæmdum seinkað um sjö ár að meðaltali » Fleiri tengdar fréttir Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Daði um undirskriftarlistann: „Mjög impónerandi“ Ný stjórn SFHR tekin við störfum Menntaskólinn í Kópavogi útskrifaði eftir metaðsókn Gott samtal breytti hugsjón Agnars Flottustu sumarfötin núna Umræðan Tæknin lækkar fæðingartíðni Opin skilyrði vegna ESB viðræðna Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Óbærileg ár fram undan Ekki óafturkræfar breytingar gerðar Grunnskólakennari sakaður um að maka saur „Meirihluti sem ég reyndi að mynda fyrir 15 mánuðum“ Mest lesið Í gær Í vikunni Grunnskólakennari sakaður um að maka saur Fulltrúar þriggja flokka undirrita samning í Viðey Óbærileg ár fram undan Hildur Björnsdóttir verður borgarstjóri Þórarna nýr forstjóri Gantaðist með götuheiti á borgarstjórnarfundi Óvissan í fluginu bætist við mótvind Ver Ísland gegn tölvuárásum Tæpur þriðjungur gesta var í boði ríkisins Gangandi umferð þrýst út í bílagötu Einn ráðherra á meðal launahæstu ríkisstarfsmanna Hótelstjóri veitir áfallahjálp nær daglega Grunnskólakennari sakaður um að maka saur Sagt að hafa veitingastað Safna undirskriftum gegn nýjum meirihluta Niðurrif húsa hefst brátt á Traðarreit Íhugar að flytja úr landi vegna skattastefnu Valdimar kveður: Síðustu dagar verið krefjandi Hret í kortunum og líkur á snjókomu „Hvaða hörmung ertu kominn með?“ Krefur móður svara: „Vinsamlega rökstyddu mál þitt“ Blóðugur reikningur á Tenerife Grunnskólakennari sakaður um að maka saur Einn ráðherra á meðal launahæstu ríkisstarfsmanna Enginn mætti frá ríkisstjórninni Hótelstjóri veitir áfallahjálp nær daglega „Alvarlegt atvik í vesturbæ Kópavogs“ „Fólk verður bara lasnara og lasnara“ Öllum sagt upp hjá Hilton og Natura Hildur: „Hann lék tveimur skjöldum“ Nýjast á mbl.is » Daði um undirskriftarlistann: „Mjög impónerandi“ Ný stjórn SFHR tekin við störfum Menntaskólinn í Kópavogi útskrifaði eftir metaðsókn Gott samtal breytti hugsjón Agnars Flottustu sumarfötin núna Umræðan Tæknin lækkar fæðingartíðni Opin skilyrði vegna ESB viðræðna Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Ný aðildarríki ESB yrðu án neitunarvalds fyrstu árin Samgöngusáttmálinn helsta þrætueplið Þriggja ára fangelsi fyrir kynferðisbrot á Múlaborg Markmiðið að hanna einföld og auðskilin merki Mest lesið Í gær Í vikunni Grunnskólakennari sakaður um að maka saur Fulltrúar þriggja flokka undirrita samning í Viðey Óbærileg ár fram undan Hildur Björnsdóttir verður borgarstjóri Þórarna nýr forstjóri Gantaðist með götuheiti á borgarstjórnarfundi Óvissan í fluginu bætist við mótvind Ver Ísland gegn tölvuárásum Tæpur þriðjungur gesta var í boði ríkisins Gangandi umferð þrýst út í bílagötu Einn ráðherra á meðal launahæstu ríkisstarfsmanna Hótelstjóri veitir áfallahjálp nær daglega Grunnskólakennari sakaður um að maka saur Sagt að hafa veitingastað Safna undirskriftum gegn nýjum meirihluta Niðurrif húsa hefst brátt á Traðarreit Íhugar að flytja úr landi vegna skattastefnu Valdimar kveður: Síðustu dagar verið krefjandi Hret í kortunum og líkur á snjókomu „Hvaða hörmung ertu kominn með?“ Krefur móður svara: „Vinsamlega rökstyddu mál þitt“ Blóðugur reikningur á Tenerife Grunnskólakennari sakaður um að maka saur Einn ráðherra á meðal launahæstu ríkisstarfsmanna Enginn mætti frá ríkisstjórninni Hótelstjóri veitir áfallahjálp nær daglega „Alvarlegt atvik í vesturbæ Kópavogs“ „Fólk verður bara lasnara og lasnara“ Öllum sagt upp hjá Hilton og Natura Hildur: „Hann lék tveimur skjöldum“

Share this article