Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Svona líta áherslumál nýs meiri­hluta út

Read Full Article →

Sjálf­stæðis­flokkur, Viðreisn og Framsóknar­flokkur hafa myndað nýjan meiri­hluta í Reykja­vík. Sam­starfssátt­máli flokkanna verður undir­ritaður í Viðey fyrir há­degi í dag og blaða­manna­fundur haldinn í kjölfarið. Í sátt­málanum kemur fram að flokkarnir sam­einist um lykiláherslur fyrir kjörtíma­bilið 2026 til 2030. Meðal þess sem nýr meiri­hluti boðar er að lækka fast­eigna­skatta á íbúðar­húsnæði og at­vinnu­húsnæði, lengja opnunar­tíma sund­lauga til klukkan 22 og bjóða tekjulágu eldra fólki 60 þúsund króna ár­legan frí­stunda­styrk. Þá ætlar meiri­hlutinn að bjóða út sorp­hirðu í einu hverfi borgarinnar í til­rauna­skyni, svo undir­búa megi rekstrarút­boð á allri sorp­hirðu borgarinnar. Í sam­starfssátt­málanum er einnig boðað að ráðast eigi í hag­ræðingar og stjórn­kerfis­breytingar í borgar­kerfinu með það að mark­miði að auka skil­virkni og draga úr sóun. Í skóla- og daggæslumálum ætlar nýr meiri­hluti að aug­lýsa eftir vinnustöðum til sam­starfs um rekstur leikskóla eða daggæslu. Þá á að setja mælan­leg mark­mið um aukinn árangur í skóla­starfi og stefna að skóla­kerfi í fremstu röð. Meiri­hlutinn ætlar jafn­framt að efla stoðþjónustu við börn inni í skólum borgarinnar og tryggja að öll börn geti tekið þátt í skipulögðu íþrótta- og tóm­stunda­starfi. Í húsnæðis- og skipu­lags­málum er boðað að breyta fyrir­liggjandi skipu­lagi nýrra hverfa í Keldna­landi og Úlfarsár­dal. Þá á að hefja skipu­lag nýrra framtíðar­hverfa á Kjalar­nesi, Geldinga­nesi, Gufu­nesi og Granda. Meiri­hlutinn ætlar jafn­framt að endur­skoða fyrir­hugað deili­skipu­lag við Suður­lands­braut í sam­starfi við hagaðila. Í sam­göngumálum er boðað að hefja sam­tal við ríkis­stjórnina og nágranna­sveitarfélög um endur­skoðun sam­göngusátt­mála höfuð­borgar­svæðisins, fjár­mögnun hans og fram­kvæmda­hraða. Þá ætlar meiri­hlutinn að endur­skoða breytingar á gatna­mótum við Höfða­bakka. Einnig stendur til að stytta gjald­skyldutíma á bílastæðum í mið­borginni í sam­vinnu við íbúa og fyrir­tæki. Í íþrótta- og tóm­stunda­málum ætlar nýr meiri­hluti að kort­leggja aðstöðumál íþrótta­félaga og fjár­fram­lög til þeirra. Mark­miðið er að for­gangs­raða verk­efnum og tryggja jafn­ræði milli félaga. Þá er í sátt­málanum boðað að standa eigi vörð um og efla græn svæði borgarinnar og ráðast í skógræktará­tak. Í al­mennum inn­gangi sátt­málans segir að flokkarnir ætli að svara ákalli borgar­búa eftir breytingum í Reykja­vík. Þar er boðað að ráðast eigi í róttækar breytingar á stjórn­kerfi og rekstri borgarinnar, nýta tíma og fjár­muni betur og bæta þjónustu. Þá segir að Reykja­vík eigi að veita framúr­skarandi þjónustu og setja hags­muni íbúa í fyrsta sæti. Meiri­hlutinn segist ætla að blása lífi í stórsókn í skólamálum, inn­leiða fjöl­breyttari lausnir í leikskóla- og daggæslumálum og auka að­gengi barna að skipulögðu íþrótta- og tóm­stunda­starfi. Í sátt­málanum segir einnig að huga þurfi vel að eldra fólki og tryggja því áhyggju­laust ævikvöld í Reykja­vík. Þá segir að fjár­festa eigi í inn­viðum hverfanna, stórauka húsnæðis­upp­byggingu og koma fólki hraðar á milli staða. Meiri­hlutinn vill tryggja sam­keppnis­hæfni borgarinnar með því að styðja við at­vinnulíf, menningu og skapandi greinar. Í sátt­málanum segir að Reykja­vík eigi að vera lifandi og skemmti­leg, frjáls­lynd en ekki stjórn­lynd, og að áhersla verði lögð á að mæta þörfum en ekki breyta þeim. Flokkarnir þrír mynda meiri­hluta eftir sveitar­stjórnar­kosningarnar á dögunum. Sjálf­stæðis­flokkurinn fékk 32,5% at­kvæða, Viðreisn 10,5% og Framsóknar­flokkurinn 6,8%. Mið­flokkurinn fékk 12,6% og Sam­fylkingin 18%. Ítar­legri verk­efna­listi verður gerður að­gengi­legur á vefsíðunni verk­efna­listi.is þegar nýr meiri­hluti tekur form­lega við störfum 2. júní næst­komandi.

Share this article