Knattspyrnukonan Sveindís Jane Jónsdóttir þarf að draga sig úr íslenska landsliðshópnum sem mætir Úkraínu og Spáni 5. og 9. júní í undankeppni HM vegna meiðsla. Ljóst var þegar hópurinn var valinn að þátttaka Sveindísar væri ekki örugg þar sem hún hefur ekki spilað unanfarna leiki með Angel City í Bandaríkjunum og KSÍ hefur nú staðfest að hún verði ekki með. Landsliðsþjálfarinn Þorsteinn Halldórsson hefur valið Hrafnhildi Ásu Halldórsdóttur í hennar stað. Hrafnhildur Ása hefur skorað 4 mörk fyrir Breiðablik í fyrstu 6 leikjum Bestu deildarinnar og er markahæst ásamt Allison Grace Lowrey í ÍBV og Þróttaranum Sigríði Theódóru Guðmundsdóttur. Hin 19 ára Hrafnhildur Ása gæti spilað sinn fyrsta A-landsleik en hún á að baki 43 leiki fyrir yngri landslið Íslands og hefur skorað í þeim 10 mörk. Ísland er sem stendur í þriðja sæti A3-riðils með þrjú stig, sex stigum á eftir Spáni og þremur stigum á undan Úkraínu. Það skiptir miklu máli að ná þriðja sætinu, bæði upp á betri stöðu fyrir umspilið um sæti á HM sem og til þess að halda sæti sínu í A-deild. Báðir leikir Íslands, gegn Úkraínu ytra 5. júní og Spáni heima 9. júní, verða í beinni útsendingu á RÚV.