Atvinnuleysi mældist 5,8% í apríl, samanborið við 6,3% í mars, samkvæmt árstíðaleiðréttum niðurstöðum vinnumarkaðsrannsóknar Hagstofunnar. Í apríl 2026 voru 13.500 atvinnulausir. Hlutfall starfandi var 75,4% og stóð í stað. Atvinnuþátttaka dróst saman um 0,5 prósentustig og nam 80%. Atvinnuleysi á meðal fólks á aldrinum 16 til 74 ára 6,6% í apríl 2026, samkvæmt mælingu vinnumarkaðsrannsóknar Hagstofunnar. Fjöldi atvinnulausra var um 15.300. Hlutfall starfandi var 74,2%, sem samsvarar tæplega 217.200 einstaklingum, og atvinnuþátttaka var 79,4% eða um 232.500 manns á vinnumarkaði. Samanborið við sama mánuð 2025 jókst atvinnuleysi um 2,6 prósentustig, hlutfall starfandi lækkaði um 3,3 prósentustig og atvinnuþátttaka minnkaði um 1,3 prósentustig. Athygli vekur að leitni atvinnuleysis hækkaði milli mánaða og mælist nú 5,8%. Það hefur ekki verið hærra síðan í maí 2021.