Innlent | mbl | 26.5.2026 | 8:28 Valdimar kveður: Síðustu dagar verið krefjandi Valdimar Víðisson, bæjarstjóri Hafnarfjarðar. mbl.is/Kristófer Liljar Setja bókamerki Tengdar fréttir Sveitarstjórnarkosningar Safna undirskriftum gegn nýjum meirihluta Hafa náð samkomulagi um meirihluta í Hafnarfirði Hefja formlegar viðræður í Hafnarfirði Nýr meirihluti Sjálfstæðisflokks og Framsóknar Meirihlutasamstarf D og A handsalað » Fleiri tengdar fréttir Valdimar Víðisson, bæjarstjóri Hafnarfjarðar og oddviti Framsóknarflokksins í bæjarfélaginu, segir síðustu daga hafa verið krefjandi og að margt hafi verið sagt um hans persónu sem hann taki nærri sér. Senn líður að því að Valdimar láti af störfum sem bæjarstjóri. Frá þessu greinir Valdimar með færslu á Facebook en mikið hefur gengið á við myndun nýs meirihluta í Hafnarfirði. Í síðustu viku slitu sjálfstæðismenn meirihlutaviðræðum við Framsókn og var ástæðan sögð vera trúnaðarbrestur. Í kjölfarið náðu Sjálfstæðisflokkur, Viðreisn og Samfylking samkomulagi um meirihlutasamstarf í Hafnarfirði. Frétt af mbl.is Hafa náð samkomulagi um meirihluta í Hafnarfirði Frétt af mbl.is Safna undirskriftum gegn nýjum meirihluta „Síðustu dagar hafa verið kveðjandi“ „Nú líður að því að ég láti af starfi sem bæjarstjóri Hafnarfjarðar. Það hafa verið í senn forréttindi og heiður að fá tækifæri til að gegna þessu starfi. Í umboði ykkar og fyrir ykkur. Ég geng stoltur frá borði. Stoltur af því hvernig ég tókst á við þetta skemmtilega verkefni, stoltur yfir því að hafa náð að breyta ásýnd bæjarstjórastarfsins og færa það nær fólkinu en fyrst og fremst stoltur og þakklátur fyrir það eitt að hafa fengið að starfa með og fyrir ykkur,“ skrifar Valdimar í færslu sinni. „Síðustu dagar hafa verið krefjandi. Margt sem hefur verið sagt um mig og mína persónu. Orð sem ég tek að sjálfsögðu nærri mér. En allir hafa rétt á sinni skoðun og að tjá hana. Ég sjálfur hef tamið mér það að sýna öllum virðingu í orði og verki, ég er orðvar og legg áherslu á heiðarleika og einlægni. Það eru eiginleikar sem ég er stoltur af og hafa einkennt öll mín störf hvort sem það er skólastjóri, bæjarfulltrúi eða bæjarstjóri. Við í Framsókn unnum afar góðan sigur í kosningunum þann 16. maí. Bættum við okkur 11% fylgi og einum bæjarfulltrúa. Framsókn mun halda áfram að vinna vel og af heilindum fyrir ykkur. Því getið þið treyst.“ Frétt af mbl.is „Það var ekkert handsalað þegar við fórum“ Mun halda áfram að vera úti um allt í Hafnarfirði Í færslunni óskar þó Valdimar nýjum meirihluta og verðandi bæjarstjóra alls hins besta í þeirra störfum og bætir við að allir séu saman í því verkefni að vinna vel fyrir Hafnarfjörð og íbúa bæjarfélagsins. Þá taki nú við hjá honum nokkurra vikna frí sem hann mun nýta með fjölskyldu sinni. „Ég kveð ykkur með hlýju, virðingu og bjartsýni fyrir hönd Hafnarfjarðar. Ég mun halda áfram að vera út um allt í Hafnarfirði með ykkur Hafnfirðingum enda hvergi betra að vera.“ Tengdar fréttir Sveitarstjórnarkosningar Safna undirskriftum gegn nýjum meirihluta Hafa náð samkomulagi um meirihluta í Hafnarfirði Hefja formlegar viðræður í Hafnarfirði Nýr meirihluti Sjálfstæðisflokks og Framsóknar Meirihlutasamstarf D og A handsalað » Fleiri tengdar fréttir Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Vill taka upp „skandinavíska módelið“ Nokkrir látnir eftir að lest ók á skólarútu Hættir líklega í Lundúnum Mikill léttir fyrir Lionel Messi Sjö dauðsföll tengd hitabylgju í Frakklandi Umræðan Evran er varanleg lausn Tala nú um engar „óafturkræfar breytingar“ Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Slydda eða snjókoma í kortunum Ábyrgðin flugmanna vegna „samstilltra aðgerða“ Enn líkur á verstu mögulegu sviðsmynd Einn með skotáverka og annar handtekinn Mest lesið Í gær Í vikunni Hótelstjóri veitir áfallahjálp nær daglega Safna undirskriftum gegn nýjum meirihluta Sagt að hafa veitingastað „Hvaða hörmung ertu kominn með?“ Regluverkið kallað „blýþung gullhúðun“ Niðurrif húsa hefst brátt á Traðarreit Þú hefur ekki séð í hvaða formi ég er Bóluefni gegn briskrabbameini lofar góðu „Hefur valið að gera mönnun að ágreiningsefni deilunnar“ „Hefði getað farið mun verr“ Krefur móður svara: „Vinsamlega rökstyddu mál þitt“ Þurfa að láta aflífa hundinn Slydda eða snjókoma í kortunum Bárðarbunga nötraði og skalf í nótt Reyndist í endurkomubanni og hafði breytt um nafn Hafði dvalið í bíl sínum í nokkra daga Ábyrgðin flugmanna vegna „samstilltra aðgerða“ Sér ekki fyrir endann: „Mjög langt á milli manna“ Hafa náð samkomulagi um meirihluta í Hafnarfirði „Það er auðvitað mikil spenna að byggjast upp“ Krefur móður svara: „Vinsamlega rökstyddu mál þitt“ Blóðugur reikningur á Tenerife Enginn mætti frá ríkisstjórninni „Alvarlegt atvik í vesturbæ Kópavogs“ „Fólk verður bara lasnara og lasnara“ Réðust á starfsmann skoðunarstöðvar Öllum sagt upp hjá Hilton og Natura Hildur: „Hann lék tveimur skjöldum“ Andlát: Dr. Guðjón Reykdal Óskarsson Óhljóð í nýjum sætum Icelandair Nýjast á mbl.is » Vill taka upp „skandinavíska módelið“ Nokkrir látnir eftir að lest ók á skólarútu Hættir líklega í Lundúnum Mikill léttir fyrir Lionel Messi Sjö dauðsföll tengd hitabylgju í Frakklandi Umræðan Evran er varanleg lausn Tala nú um engar „óafturkræfar breytingar“ Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert „Hvaða hörmung ertu kominn með?“ Enn mikil hætta í Kaliforníu Hótelstjóri veitir áfallahjálp nær daglega Óveruleg fjárfesting í stóra samhengi hlutanna Mest lesið Í gær Í vikunni Hótelstjóri veitir áfallahjálp nær daglega Safna undirskriftum gegn nýjum meirihluta Sagt að hafa veitingastað „Hvaða hörmung ertu kominn með?“ Regluverkið kallað „blýþung gullhúðun“ Niðurrif húsa hefst brátt á Traðarreit Þú hefur ekki séð í hvaða formi ég er Bóluefni gegn briskrabbameini lofar góðu „Hefur valið að gera mönnun að ágreiningsefni deilunnar“ „Hefði getað farið mun verr“ Krefur móður svara: „Vinsamlega rökstyddu mál þitt“ Þurfa að láta aflífa hundinn Slydda eða snjókoma í kortunum Bárðarbunga nötraði og skalf í nótt Reyndist í endurkomubanni og hafði breytt um nafn Hafði dvalið í bíl sínum í nokkra daga Ábyrgðin flugmanna vegna „samstilltra aðgerða“ Sér ekki fyrir endann: „Mjög langt á milli manna“ Hafa náð samkomulagi um meirihluta í Hafnarfirði „Það er auðvitað mikil spenna að byggjast upp“ Krefur móður svara: „Vinsamlega rökstyddu mál þitt“ Blóðugur reikningur á Tenerife Enginn mætti frá ríkisstjórninni „Alvarlegt atvik í vesturbæ Kópavogs“ „Fólk verður bara lasnara og lasnara“ Réðust á starfsmann skoðunarstöðvar Öllum sagt upp hjá Hilton og Natura Hildur: „Hann lék tveimur skjöldum“ Andlát: Dr. Guðjón Reykdal Óskarsson Óhljóð í nýjum sætum Icelandair