Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Upp­skera eins og til var sáð

Read Full Article →

Sjálfstæðisflokkurinn vann afgerandi sigur um allt land í sveitarstjórnarkosningunum. Sigurinn var þó hvergi sætari en í Reykjavík þar sem flokkurinn hlaut 32,9% atkvæða og níu borgarfulltrúa. Besta útkoma flokksins í höfuðborginni í meira en áratug. Hildur Björnsdóttir, oddviti og borgarstjóraefni flokksins, stendur nú með pálmann í höndunum. Það er auðvelt að gleyma því í gleðinni yfir úrslitunum hversu langan veg Hildur á að baki. Hún tók við oddvitastól flokksins árið 2022 og hefur setið í minnihluta síðan 2018, hlutskipti sem reynir á úthald og þolinmæði. Ég sjálf gat ekki hugsað mér að gera það lengur en eitt kjörtímabil. Á leiðinni þurfti líka að taka erfiðar ákvarðanir, losa sig við innanflokksstjórnarandstöðu og endurnýja hópinn þannig að samstaðan yrði raunveruleg. Það tókst með eftirtektarverðum hætti. Þegar vangaveltur voru uppi um að aðrir myndu sækjast eftir oddvitasætinu lét Hildur það ekki á sig fá, heldur lagði fram skýra framtíðarsýn sem fékk hljómgrunn meðal kjósenda. Boðskapurinn var skýr: nýja forystu og raunverulegan árangur. Ekki má heldur líta framhjá afreki Ásdísar Kristjánsdóttur í Kópavogi. Hún náði hreinum sex manna meirihluta með 45,7% atkvæða þrátt fyrir að Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra hafi tekið virkan þátt í baráttunni gegn henni, talað niður Kópavogsmódelið í leikskólamálum og gagnrýnt bæjaryfirvöld harðlega á verkalýðsdaginn. Það telst í besta falli mjög sérstakt að sitjandi forsætisráðherra blandi sér með þeim hætti inn í sveitarstjórnarkosningar í einu sveitarfélagi. Kjósendur í Kópavogi gáfu sitt eigið svar, afgerandi og óumdeilt. Tvær konur leiddu flokkinn til sigurs í tveimur stærstu sveitarfélögum landsins. Þær eru fyrirmyndir í alla staði. Grjótharðar, vinnusamar og hafa trú á eigin stefnu. Þetta er afrek sem á eftir að hafa áhrif langt út fyrir Ráðhúsið og Hamraborgina.

Share this article